Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Side 22

Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Side 22
75 ÁRA: KNÚTUR KRISTINSSON HÉRAÐSLÆKNIR Knútur Kristinsson fyrrv. hér- aðslæknir og núverandi læknir á Hrafnistu, dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík, varð 75 ára hinn 10. septemher síðastliðinn. Það hefur margt og mikið verið skrafað og skrifað um lækna und- anfarið og sumt miður fallegt, einkum er varðar tregðu þeirra til að setjast að úti á landsbyggðinni. Bkki ætla ég að leggja þar orð í belg, en vil aðeins geta þess, að ekkert af þvi leiða hjali getur átt við Knút Kristinsson, enda verður ekkert annað en gott um hann sagt og undan vanda hefur hann ekki skotið sér, heldur tekizt drengi- lega á við þá erfiðleika, sem fylgja starfi héraðslæknis í erfiðum hér- uðum, við almennar vinsældir og góðan orðstír. — Hann var vamim laus maður og virtur af öllum sem til þekkja enda ljúfmenni hið mesta, heiðarlegur og eðlisgóður svo af ber. Knútur fæddist á Söndum í Dýrafirði hinn 10. sept. árið 1894 sonur hins landskunna merkis- prests séra Kristins Daníelssonar, sem þá var prestur í Dýrafirði, seinna prófastur á Útskálum og konu hans Idu Júliu Halld'órsdótt- ur. Hann varð stúdent frá Mennta- skóla Reykjavíkur árið 1914 og kandídatsprófi í læknisfræði lauk hann frá Háskóla íslands árið 1922. — Framihaldsmám stundaði hann á fæðingarstofnunum í Dan mörku árið 1924, en hafði þá starf að sem settur héraðslæknir í tvö ár, annað á Patreksfirði 1922— 1923 og hitt á Fiateyri 1923—1924, og raunar þar áður, meðan hann enn var við nám, staðgengill fyrir héraðslækninn í Árneshéraði á Ströndum 1918—1919. Þegar hann kom frá námsdvöl sinni erlendis varð hann héraðs- læknir í Nautevrarhéraði við ísa- fjarðardjúp og þjónaði þar í 6 ár eða til ársins 1930. Þaðan fór hann austur á Höfn í Hornafirði og var héraðslæknir þar í 13 ár eða til ársins 1943. Á Hornafirði kynntist Knútur Huldu,# dóttur Þórhalls Daníelsson ar, sem var landskunnur athafna maður austur þar. Þótti Hulda hinn bezti kvenkostur, glaðvær, falleg og heMandi. Henni kvænt- ist Knútur 13. marz árið 1932 og hefur hjónaband þeirra vei-ið far- sælt, þótt heilsuleysi hafi nú um árabil hrjáð Huldu. Hún heldur þó stjórnar heldur jafnframt flestra ríkisstjórna um gervallan hinn vest ræna heim, (og jafnvel hinn eystri Hka) og er fús að ræða þessi mál við hvern sem er, því maðurinn er að eðlisfari mjög félagslyndur og nýtur þess í fyllstu merkingu orðs ins að deila geði við aðra. Og hann leyfir sér að gagnrýna og benda á aðrar leiðir eins og ratvís sjómaður sem engan „radar“ þarf annan en eigið brjóstvit og eðlishvöt. Og hann labbar að ég held að minnsta kosti eina ferð á dag niður í sína gömlu vélsmiðju. Ekki af því að hann vantreysti sonum sín- um, heldur blátt áfram vagna þess, að þessu starfi var liann tengdur, þótti vænt um það og nýt ur þess að sjá smiðju sína lifa og dafna. Og meðan hann hefur fótavist, þá mun hann sjást á ferii, hvar sem starf er innt af hendi í byggðarlagi hans og taka að vissu leyti þátt í því með lifandi áhuga. Og það er gott að mæta gamla Olsen á götu. Bros hans er hlýtt og handtak hans innilegt eins og þess manns, sem er sáttur við alla tilveruna. Maður kemst akki hjá því að komast í gott skap við að sjá þessa mildu heiðríkju, sem yfir bragð öldungsins ber með sér. Kona hans og trúfastur lífsföru- nautur um rúmlega fimmtíu ára skeið er Magdalena Jónatansdóttir frá Sigluvík við Eyjafjörð. Þau hjón eignuðust sex syni og eina dóttur, en einn sona þeirra lézt i bernsku. Húsfreyjan á heim ilinu hefur því haft ærinn starfa, því þá var véltækni nútímans lítt búin að halda innreið sína í ríki húsmœðranna. Og auk síns stóra heimilis, varð hún oft að taka í fæði og þjónustu 2—3 verkamenn úr simiðjunni, án þess um neina heim- ilisaðstoð væri að ræða. Mun lítt hafa hallazt á með þeim hjónum um dugnað og atorku. Magdalena hefur nú allmörg síðustu ár átt við þráláta van heilsu að búa og nú um alllangt skeið dvalizt á sjúkrahúsi. Þó stóð hún enn einu sinni við hlið manns síns í gleðisamkvæmi hans með af- komendum og vinum. Hvorugt þeirra hjóna gefst upp fyrr en í fulla hnefa. Allir hinir mörgu vin ir þeirra Olsen og Lenu víðsvegar um land árna þeim langra og far- sælla lífdaga, og allar munu þær hamingjuóskir koma beint frá hjartanu. Sigurbjörn Ketiisson. ISLENDINGAÞÆTTIR 22

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.