Íslendingaþættir Tímans - 31.08.1972, Síða 10

Íslendingaþættir Tímans - 31.08.1972, Síða 10
Elínbjörg Petrea Jónsdóttir húsfreyja Skrapatungu K. :$1. ágúst 1895 I). 22. marz 1972. ..Vertu trúr allt til dauðans og ég mun gefa þér lifsins kórónu", stendur spaklega letrað á viturlegum stað og er þar ekki átt við valdakórónu mann- legs tildurs og hégóma, heldur þann lýsandi geislabaug, er minningin um góðan dreng myndar um höfuð hans i hugum þeirra, er hjarta hafa til þess að skilja og meta. Þaö voru þannig auðæfi, sem Peta (þannig var hún jafnan kölluð) i Skrapatungu ávann sér i lifinu. Þau fylgdu henni út i móðuna miklu og lýsa þar sem mynd á fortjaldi þeirra miklu hulduheima. Veraldarauðurinn vafðist ekki fyrir henni um dagana, né varð henni að fótakefli. t Laufási i Viðidal bjuggu, árið 1895 og lengi eftir það, hjónin Jón Daniels- son og Helga Bjarnadóttir. Þetta voru ekki neinir auðkýfingar. en 31. ágúst , þá um sumarið fæddist þeim þó dóttir sú. er hér hefur verið nefnd. Tvö önnur börn eignuðust þau hjón. dótturina Guðrúnu og soninn Guðmund. Jón bóndi Danielsson hafi hinsvegar eignazt með fyrri konu sinni. tvo drengi, Jón og Pétur,og eina dóttur, Ólöfu, og svo bættist þriðji hálf- bróðurinn við i heimilið nokkru siðar, Valdimar að nafni. er flestir Is- lendingar munu kannast við sem séra Valdimar Eylands, prest i Vestur-ts- lendingabyggðum Norður-Ameriku, og kunnur er að góðu hér heima. Er hann nú einn á lifi af þessum barna- hópi enda yngstur þeirra. Það voru ánægjustundir, er séra Valdimar var hér heima siðast og heimsótti systur sina fyrir norðan. Ég heyrði það á Petu, siðast er við hittumst og töluðumst við, að endur- fundirnir höfðu orðið henni mikill gleðigjafi. Hjá foreldrum sinum ólst Peta upp til 24 ára aldurs. — hafði þó dvalizt um tima á Sauðárkróki til þess að læra þar karlmannafatasaum, er henni var mjög hugstæður, og sem hún hugðist gera að æfistarfi sinu og atvinnu. þvi hún var snillingur i höndunum. En svo 10 giftist hún árið 1924, Guðmundi Antoniusi Péturssyni, geðþekkum bókhneigðum greindarmanni úr nágrannasveit hennar. Hjúskap sinn og búskap hófu þau á Hnjúkum, sem þá tilheyrðu Torfalækjarhreppi, og voru þar i eitt ár. Þar urðu þau fyrir tilfinnanlegu tjóni á skepnum sinum og urðu að flytja þaðan, svo ekki byrjaði glæsilega. Þau fluttu að Hamrakoti og svo að Holti i Torfa- lækjarhreppi, — og loks að Mýrarkoti i Engihliðarhreppi árið 1928, og bjuggu þar í 17 ár. Ekki var efnunum fyrir að fara, er þangað var flutt og litið mun veraldarauðurinn hafa safnazt fyrir hjá þeim hjónum á þessum 17 árum i Mýrarkoti. enda jörðin þá rýrðarkot og bústofninn jafnan eftir þvi, — i minna lagi. Véltæknin var þá ekki komin til sögunnar, til þess að létta mönnum erfiðið. Allt var slegið með orfi og ljá og önnur búskapartæki voru eftir þvi. Nægjanlegt hey var t.d. ekki fáanlegt heima við, svo snapa varö það saman fjarri heimilinu og flytja langan veg, sem oft vildi ganga erfiðlega og reyna á þrekið. Fyrir kom að Antonius bóndi réði sig hjá öðrum. sumartima til þess að reyna að drýgja tekjur heimilisins. Varð þá Peta að vera bæði húsbóndinn og húsfreyjan og vinna beggja störf. Bróðurson sinn, Hjört hafði hún tekið að sér áður en hún giftist og alið upp sem sitt eigið barn. Nú varð Hjörtur, drenghnokkinn, aðstoð hennar, þegar svo stóð á. að maöur hennar var fjar- verandi og hún ein við búskapinn. Hún bæði sló og rakaði. Hún batt og lyfti böggunum upp á klakkana, en Hjörtur stóð undir fyrri bagganum, á meðan hún kom hinum siðari á sinn stað. Oft risti Peta sjálf torfið. sem nota þurfti — kom blautum torfunum, ein, upp hestbakið og siðan upp á hátt hey. Þetta var ekki kvenmannsverk — en Peta var sterk og all-hraust framan af. En jafnvel hraustasta likama er hægt að ofbjóða og Peta fór ekki varhluta af þeirri reynslu. Kölkun i hnjáliðum og svo i fótum gerði henni æ erfiðara fyrir við öll störf, til hinztu stundar. Meö erfiðismunum og tækjahjálp. gat hún hreyft sig. innan húss, siðustu árin. Það var erfitt. Árið 1945 fluttust þau Petrea og Antoníus að Skrapatungu i Vindhælis- hreppi og áttu þar heima eftir það, og nú tók efnahagurinn heldur að vænk- ast. Mann sinn missti Peta á aðfangadag 1957,— en þau höfðu eignast 2 börn, Helgu Guðrúnu. nú húsfreyju á Höskuldsstöðum, i sömu sveit, og Sigurlaug Sófus. er tók við búinu með móður sinni. Býr Sófus nú i Skrapa- tungu eftir lát hennar. tms ungmenni. önnur en börn hennar og fóstursonur. áttu athvarf hjá Petu i Skrapatungu i lengri eða skemmri tima. og sóttu þangað á sumrum. lengi eftir það, til þess að njóta þeirrar andlegu hlýju og mann- lega skilnings. er hún Var svo rik af Dóttir min var meðal þeirra. Á hinum mörgu ferðum minum um landið. i leit að fegurstu stöðunum. hef islendinga þættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.