Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 31.08.1972, Qupperneq 23

Íslendingaþættir Tímans - 31.08.1972, Qupperneq 23
SEXTUGUR Halldór Þorsteinsson 1 dag hefur Halldór Þorsteinsson verzlunarmaóur hjá Kristni á Klapparstignum, en búsettur að Ásbraut 3 i Kópavogi, lokið sjötta áratugnum, þó að engan veginn beri hann það meö sér,er hann t.d. nýbúinn að synda 200 metrana tvö hundruð sinnum, sem mér er sagt, að muni gefa dýrlegan gullhest i aðra hönd. Efast ég ekki um, að Halldór kunni slikt að meta, þó að flest sé honum raunar betur gefið en hestamennska. Fæddur er Halldór á Stöðvarfirði 23. júli 1912, sonur þeirra merku sæmdar- hjóna Þorsteins Þorsteinssonar Mýrmanns. kaupmanns, og konu hans Guðriðar Guttormsdóttur Vigfússonar prests að Stöð. Er hún enn á lifi háöldruð. Ólst Halldór upp i föður- garði. en þau systkyni voru sjö, er hvort tveggja voru vel gefin og nutu góðs up'peldis.eftir þvi, sem þá tiðkað- ist og efni og ástæður framast leyfðu. Auk þeirra tima barnafræðslu stundaöi Halldór nám á Hvitárbakka og siðar i Reykholtsskóla er skólinn var fluttur þangað. Var siðan barna- kennari i nokkra vetur með ágætum árangri. Munu þeir vetur einnig hafa revnzt honum notadrjúgur mennta- gjafi með sjálfsnámi og lestri allra þeirra bóka er til náðist. enda er hann eigi siður menntaður en margir þeir, sem lengri skólagöngu hafa notið. Á hann gott og fjölbreytt bókasafn. svo sem jafnan telst menningarvottur á hverju heimili. Um margra ára skeið var Halidór búsettur á Akranesi, þar sem hann nam vélsmiði hjá Þorgeir & Ellert h.f. og starfaði við það fyrirtæki svo lengi sem hann bjó þar. Á þeim árum tók hann mikinn þátt i félagsstörfum, sér- staklega ýmsum bæjarmálum á veg- um Sósialistaflokksins og gengdi þar ýmsum trúnaðarstöðum, þó að eigi verði það frekar rakið hér, en vissulega áttu þau stjórnmálasamtök á bak að sjá góðum og ósérhlifnum liðsmanni, er hann fluttist búferlum. Kvæntur er Halldór Ruth Guðmundsdóttur frá Helgafelli i Þverárhlið, listrænni ágætiskonu. Eiga þau tvo syni, Sigurð húsasmiða- meistara og Birgi, starfsmann hjá at- vinnudeild Háskólans, báðir fjöl- skyldumenn og mætir borgarar. Á þessum merkisdegi i lifi þinu, mágur sæil, vil ég, svo sem hinir fjöl- miirgu lrændur þinir og vinir, færa þér minar beztu þakkir fyrir ágæt kynni frá fyrstu tið svo og innilegustu hamingjuóskir okkar systur þinnar og barna okkar. Guðmundur Hjörnsson. halda. Eins og gefur að skilja voru efnin ekki mikil á þessu barnmarga heimili en tsfold naut þess að gefa og gaf gjafarinnar sjálfrar vegna. Þessi gjafmildi tsfoldar kom þó hvað skyrast i ljós á siðari árum. þegar hún veitti barnabörnum sinum þau jarð- nesku gæði. sem hennar eigin börn höfðu farið á mis við hér áður fyrr. Eins og áður sagði höfðu þau hjónin fyrir stóru heimili að sjá, en þegar börnin voru vaxin úr grasi. fór lsfold að vinna utan heimilis. Hún ávann sér traust og virðingu vinnuveitenda sinna sem kunnu að meta samvizkusemi hennar og dugnað. Hún lagði alúð við störf sin og komst vel af við sitt samverkafólk. Eggert Bjarna henti sú ógæfa að missa heilsuna þegar hann var rúm- lega sextugur að aldri. Hann náði aldrei heilsu aftur og lézt 29. septem- ber 1962. Kynni min af ísfold eru eingöngu góö. Það var áberandi að hún gerði öll- um jafn hátt undir höfði hvort sem i hlut átti hennar eigið barn, barnabarn systkin eða systkinabarn. Einnig var eftirtektarvert hve auðveldlega hún gat sett sig i annarra spor og hversu skilningsrik hún var á þarfir hvers og eins einstaklings. Þá var henni einkar iagið aö laða fram það bezta sem i hverjum og einum bjó. — 1 návist tsfoldar var gott að vera. Siðast bjuggu hjónin i Hólmgarði 41, i Reykjavik. Til þeirra hafa margir gestkomandi lagt leið sina á liðnum árum og notið einstakrar gistivináttu. Oftast voru það skyldmenni annars hvors hjónanna Sem þangað leituðu og var þeim öllum tekið opnum örmum, enda voru samheldni og eindrægni rikjandi á heimilinu. Rikur þáttur i lundarfari ísfoldar var glaðlyndi. Kom sér oft vel að hún var gædd þeim eiginleika. tsfold hafði lengst af verið heilsuhraust og þess vegna kom á óvart, þegar hún veiktist skyndilega. Hún var flutt á Borgar- sjúkrahúsið og lézt þar eftir skamma legu. Vil ég að leiðarlokum þakka henni ómælda vináttu og velvilja á liðnum árum. Blessuð sé minning hennar. Vinur. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.