Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Side 1
ÍSLENDINGAÞJSTTIR Laugardagur 9. ágúst 1975 — 27. tbl. 8. árg. No. 218 TIMANS Einar Jóhannsson Geithellum Um framtið og örlög okkar — og annarra — vitum við ekkert utan þetta eina, að „eitt sinn skal hver deyja”, og að þau umskipti ber að á mismunandi vegu. Þó verður okkur næsta hverft við, oft og einatt, þegar útvarpið flytur andlátsfregn samferðarmanns, for- málalaust og án fyrirvara. Þannig fór mér, þegar ég heyrði lát Einars á Geithellum. Haustið 1938 kom ég i Álftafjörðinn fyrsta sinni og gisti að Geithellum. Ferðir minar um þetta svæði hafa orð- ið nokkuð margar. Heimili Einars og Laufeyjar varð strax fastur viðkomu- staður. Einar sjálfur var svo óum- brevtanlegur, glaðværð hans og fjör slikt. að enda þótt árin létu sig ekki að öðru leyti án vitnisburðar hjá honum fremur en öðrum, þá gleymdist það, þegar fundum bar saman — i minum huga var Einar á Geithellum alla tið ungur sem fyrrum. Já, það var auðvelt að gleyma stund og stað i stofunni hjá Einari og Laufeyju, að kasta ellibelgn- um og gleyma sinum eigin gráu hár- um. Og þó voru vandamál dagsins og næstu viðfangsefni i þjóðmálum og heima i héraði stöðugt á dagsskrá en á þeim hafði húsbóndinn lifandi áhuga alla tið. Þetta olli þvi, að fréttir af um- skiptunum komu mér i opna skjöldu. En — ,,úr stað og skorðum allt stund- legt ber — Framhjá þvi verður aldrei komizt. Einab fæddist á Geithellum á Alfta- firði austur 28. april 1906. Foreldrar hans voru Jóhann Jónsson bóndi þar og kona hans Helga Einarsdóttir. Einar nam við Bændaskólann á Hvanneyri. Siðari veturinn hans tók sig upp gamalt meiðsli á fæti, svo hann varð að hætta námi nokkru eftir ára- mót. — Einar byrjaði fyrst búskap með móður sinni.en Þórfinnur bróðir hans reisti nýbýli á jörðinni. Einar stofnaði siðan eigið hemili ásamt unn- ustu sinni, Laufeyju Karlsdóttur, 1931, en þau gengu i hjónaband 1934. Börn þeirra urðu niu, þrjár dætur og sex synir. Einn þeirra dó ungur. Einar bjó siðan alla ævi á Geithellum. Bújörðin ber þess vottinn, að ekki hafa þau Einar og Laufey setið auðum höndum um dagana. Slikt hið sama uppeldi margra barna, sem nú eru nýtir þjóð- félagsþegnar. En þetta átti raunar ekki að verða minningargrein — aðeins örfá kveðju- orð. Sannleikurinn er lika sá, að um æviferil Einars veit ég næsta litið, um- fram það, sem gestsaugað greindi, þegar gengið var um garða á óðali hans. Þvi Einar ræddi litið um sjálfs sin hagi. önnur umræðuefni sátu i fyrirrúmi, þegar gestir komu að Geit- hellum. A fyrstu ferð minni um Suður-Múla- sýslu fyrir nærri 37 árum mætti ég svo mikilli vinsemd að seint gleymist. Þegar þar við bætist að það fólk, sem maður hitti þá hefir æ siðan verið við sama heygarðshornið með hjálpsemi, gestrisni og góðvild — áratug eftir áratug — þá má ljóst vera að ærin er orðin þakkarskuld farandmanns. A það er hann sterklega minntur hvert eitt sinn, þegar skarð er höggvið i hóp inn þann. Einari á Geithellum á ég að skilnaði miklar þakkir að gjalda — bæði fyrir liöinn tima og ókominn — þvi lengi enn mun góðvild hans og þeirra hjóna beggja I minn garð, hlýja mér i sinni. Og það er áreiðanlega langt þangað til aö bergmálið af glaðværð hans á góðra vina fundi er að fullu hljóðnað i huga minum og annarra samferðamanna. Ég sendi Laufeyju og öðrum ást vinum Einars innilegar kveðjur. Vilhjálmur Hjálmarsson

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.