Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Qupperneq 5

Íslendingaþættir Tímans - 09.08.1975, Qupperneq 5
Guðmundur I. Guðmundsson þeim tima, er hræra þurfti alla steypu með handafli og lyfta upp i vatnsföt- um, auk þess sem steypuefnið varð að draga að i hestkerru alllanga leið. Halldór var tvikvæntur. Fyrri kona hans var Kristin Hallgrimsdóttir frá Syðri Reistará. Hún lézt 13. febrúar 1933. bau Halldór höfðu gifzt á gamlársdag árið 1917 og voru jafn- aldra. Tvö fyrstu börn sin misstu þau ung, sem áður segir. Börn þeirra á lifi eru: Ólina kona Yngva Hjörleifssonar ljósameistara Sjónvarps og Baldur tx5ndi og skipasmiður að Hliðarenda við Akureyri, kvæntur Jóhönnu Lárus- dóttur úr Borgarnesi. Seinni kona Halldórs var Sigriður ólafsdóttir frá Bakkagerði. Dóttir þeirra er Kristin kona Sigurðar Gests- sonar brunavarðar á Akureyri. I riti sinu Bændur og Búhagir, segir Hannes Daviðsson frá Hofi svo ma. um Búlandshjónin. „Gestrisni þeirra hjóna var mikil, en komur manna tið- ar til oddvitans. Þegar Halldór missti Sigriði, hætti hann búskap og fór til Hjalteyrar um sinn, en siðan til Akur- eyrar, en þangað voru þá börn hans flutt. Sveitungarnir standa i þakkar- skuld við Halldór Ólafsson, hann var hinn mætasti maður, sem og konur hansbáðar.”Sigriðurlézt5. april 1960. Heimili þeirra Halldórs og Sigriðar var á æskuárum minum stór hluti þeirrar veraldar, sem þá var, enda ná- in samvinna milli þeirra bræðra Hall- dórs og föður mins um ýmislegt i bú- skap. Sigriður i Búlandi var lærð saumakona og léku hannyrðir i hönd- um hennar. Hún hafði lika dvalið i Reykjavik og kynnzt þar fyrirmönn- um. Bar heimili þeirra nokkurn svip af þessu. Meiri heimsbragur rikti þar en annars staðar, ogstraumur almennra landsmála léku þar um stofu og eld- hús. Búskapur þeirra hjóna var ekki stór á nútima visu, en snyrtilegur mjög og arðsamur eftir stærð. Nú er þetta allt gengið sinn veg. Aðr- ir smala nú ásana og móana suður að læknum og niður að sjó. Túnið, sem Halldór sléttaði verður að sjálfsögðu slegið i sumar, en heimili þeirra Hall- dórs og Sigriðar verður ekki endur- reist. Þar sem ég átti þess ekki kost að fylgja Halldóri frænda minum til graf- ar, þykir mér hlyða að biðja maga hans að bera keðju mina norður. Lýk ég svo þessu máli með visu eftir bróð- ur Halldórs, Ólaf Ólafsson frá Ytri Bakka. Alltaf breytist aldarfar ekki eru tiðir samar. Nú verða gömlu göturnar gengnar aldrei framar. Jón frá Pálmholti. íslendingaþættir Guðmundur Ingvar Guðmundsson, netagerðarmeistari, Fjarðarstræti 2 Isafirði, andaðist i Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði 24. júni s.l. Hann var fæddur á ísafirði 18. aprfl 1921 og voru foreldrar hans Sigrún Kristjánsdóttir og Guðmundur Salomonsson. Arsgam- all fór hann i fóstur til h jónanna Stein- unnar Guðmundsdótturog Eliasar Sig- mundssonar, Fagrahvammi i Skutuls- firði. Fáum árum siðar andaðist Stein- unn, en eftir það var hann i umsjá Albertinu dóttur þeirra hjónanna og eftir að hún giftist Pétri Péturssyni, ólst hann upp á heimili þeirra i Braut- arholti og siðar á Grænagarði. Guðmundur stundaði nám i Gagn- fræðaskólanum á tsafirði, og einn vet- ur var hann við nám i Laugaskóla i Þingeyjarsýslu. Hann nam netagerð hjá Pétri Njarðvik og lauk jafnframt á þeim árum námi i Iðnskóla Isafjarðar. Hann var einn af stofnendum Neta- gerðar Vestfjarða h.f., ásamt Guð- mundi Sveinssyni o.fl. árið 1954, og eftir það vann hann stöðugt hjá þvi fyrirtæki. Hann var talinn mjög fær iðnaðarmaður isinni grein og afkasta- maður mikill við störf, meðan hann hafði heilsu. Það sýnir vel, hversu mikils álits hann naut sem netagerð- armaður, að fyrir nokkrum árum var hann ráðinn til Indlands til að kenna þarlendum meðferð neta og netagerð. En eftir nokkurra mánaða dvöl við þessi störf i Indlandi, varð hann fyrir þvi slysi að fótbrotna og varð þvi að hverfa heim miklu fyrr en ráð var fyrir gert. Guðmundur kvæntist eftirlifandi konu sinni, Helgu Kristjánsdóttur, 6. október 1944 og áttu þau alltaí heima á tsafirði. Þau eignuðust fjögur börn: Kristján Rafn, sem er búsettur á Isa- firði, kvæntur Ásthildi Hermannsdótt- ur, Jóninu Elisu, búsett i Þingeyjar- sýslu, gift Aðalsteini Jónssyni, Albert, nemanda i verkfræðideild Háskóla ts- lands og dóttur sem dó i frumbernsku. Guðmundur t. Guðmundsson var maður velviljaður, ágætlega vel gef- inn, fróður og minnugur. Hann var skemmtilegur i viðræðu og viðkynn- ingu allri og jafnan fús til að leggja hverju góðu máli lið. Hann var áhuga- samur um þjóðfélagsmál og fylgdist vel með i þeim efnum, og á velferðar- málum bæjarfélags sins hafði hann mikinn áhuga. Árum saman var hann i stjórn Byggingarfélags verkamanna á Isafirði. Hann var mikill unnandi iþrótta og stundaði þær mikið fyrr á árum, sérstaklega knattspyrnu og skiðaiþróttina. Lengi var hann i stjórn Knattspyrnuráðs tsafjarðar, bæði sem formaður og gjaldkeri. Með Guðmundi t. Guðmundssyni er fallinn frá mætur maður og drengur góður. Ég votta Helgu og börnum þeirra, sem og öðrum aðstandendum einlæga samúð. Jón A. Jóhannsson.

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.