Íslendingaþættir Tímans - 10.03.1979, Blaðsíða 3

Íslendingaþættir Tímans - 10.03.1979, Blaðsíða 3
Andrea Jónsdóttir frá Litla-Fjarðarhorni f. 20.9. 1881 d. 12.1. 1979 1 Strandasýshi sunnanveröri er sá fjöröur er heitir Kollafjöröur: i fáu frá- brugöinn öörum litlum fjöröum landsins. Þó hefur hann sitt sérstaka svipmót: ár, hæöir, leiti og fjöll sem hvergi eru til annars staöar. Haglendi er þar gott og fjárbiískapur stendur þar meö blóma. En enginn fiskur gengur i fjöröinn utan sil- ungur og stöku lax villist þar inn. tltiviö nesin aftur á móti er grásleppan árviss hlunnindi svo og selur og fugl. Frá þvi ég man fyrst eftir mér hefur frá Kollafiröi aldrei komiö neitt sem frétt- næmt getur talist aö mati útvarps og dag- blaöa. Siöast er fréttist struku útilegu- hjónin Eyvindur og Halla úr vörslu sýslu- mannsins á Felli — þess er beit eyra af bónda þar i grenndinni. Þetta var á s.hl. 18. aldar. En þótt nútima-fjölmiölar slái ekki upp neinum stórtiöindum úr Koliafiröi, þá er hún amma samt fædd þar fyrir hartnær öld. Hún var eitt fjögurra barna hjónanna Jóns Andréssonar og Guörúnar Jónsdótt- ur, fædd 20. sept. 1881 og var skirö Andrea. Hún andaöist föstudaginn 12. jan. nú i ár á Sjúkrahúsi Siglufjaröar eftir langa legu og hana skorti ekki nema 3 ár i tlrætt. Langri ævi er erfitt aö gera skil i stuttu máli og skal þvi stiklaö á stóru. Kornung missir amma foreldra sína ogsamkvæmt ómennsku réttarfari aldarinnar var hún sett niöur sem sveitarómagi aö Hvituhliö I Bitrufiröi. Margar sögur eru sagöar um meöferö sveitarómaga hér á landi — og sumar ófagrar — og vlst er um þaö aö ekki var beinlfnis dekraö viö hana ömmu þar á bæ. Hvaö sem þvi leiö, þá er hún 5 ára gömul kominaö Felli — landnámsjörö og óumdeilanlegu höfuöbóli þeirra Koli- firöinga — til fósturs hjá séra Arnóri Árnasyni og Stefaniu Stefánsdóttur fyrri konu hans. Snögg umskipti til hins betra uröu á högum ömmu er hún kom aö Felli. Þar var aldrei litiö á hana sem ómaga, heldur sem fósturbarn prestsins og börn séra Arnórs tóku henni sem systur og héldu tryggð viö hana ævilangt. A Felli var 'heldur ekki skammtaö naumt til barna i uppvexti: i þvi er e.t.v. fólginn leyndar- dómurinn á bak viö árin 97. Og þótt vinnu- harka væri sist minni þar en á öörum bæj- um var fullt samræmi i vinnuog næringu og fólki því ekki ofboðið. Vinnan og gott Islendingaþættir atlæti efldi með ömmu óbilandi kjark og áræöi ogstyrkti likamann fyrir haröa lifs- baráttu. Dvölin á Felli varö ömmu lika sérstaklega hugönæm og þangað hvarflaði hugurinn oft i ellinni og ófáar sögurnar sagöi hún okkur barnabörnun- um þaðan. Amma var þvi vel undirbúin fyrir lifs- starfiöþegar hún giftist Franklin Þóröar- syni frá Stóra-Fjaröarhorni i sömu sveit. Þau voru gefin saman 1902 og tviburarnir Þórður og Siguröur fæddust ári siöar. Þau hófu búskap I Þrúðardal 1904, en ári siðar flytja þau yfir fjöröinn aö Litla-Fjaröar- homi þar sem afi húsaöi litinn bæ og byggði önnur útihús úr byggingarefnum náttúrunnar. Þarna i Litla-Fjarðarhorni bættust viö llbörnenalls eignuöustu þau 13 börn á 21 ári og eru öll á lifi. Þau eru: Þóröur (i Litla-Fjaröarhorni) og Sigurður (á Óspakseyri I Bitru) sem nýlega hafa skilaöbúi i hendur sona sinna: Hermina, Eggþór og Guðmundur búsett I Reykja- vik: Aöalheiöur sem býr á Akranesi: Benedikt, Jónog Anna búsett á Selfossi og Guöbjörg, Nanna, Margrét og Guðborg sem allar búa i Siglufiröi. Þaö þarf ekki mikiö imyndunarafl til aö skynja og sjá fyrir sér alla þá vinnu sem fátæk einyrkjahjón þurftu að inna af hendi tilaö ala önn fyrir stórum barnahóp og koma honum til þroska. Orð og sam- setningar á borö viö „hörkuduglegur”, „sistritandi”, „vikingur til allra verka”, „féll aldrei verk úr hendi” og fleiri i þeim dúr ganga sem rauöur þráöur i gegnum æviminningar fólks af kynslóö aldamót- anna en falla i gildi i augum sumra sem lesa slikar bækur I dag. En þessi orð hefj- ast i æöra veldi fyrir manni sjálfum viö náin kynni af eldra fólki eins og ömmu, eins og ég man eftir henni fyrst og æ siöan: meöslitinn likama en stórt hjarta og bjó yfir fórnfýsi sem virtist engin tak- mörk eiga. Það var mikiö afrek sem seint fyrnist aö koma stórum barnahóp á legg og þaö krafðistmikils af foreldrunum. Ekki bara ýtrustu sparsemi sem sjálfsögö þótti i þá daga, heldur og strangs aöhalds i bú- rekstri sem var framfylgt út i æsar: Allt var heimaunniö sem hægt var, föt og verkfæri. Þaö útheimti mikla eljusemi aö prjóna sokka á 30 fætur og vettlinga á jafn margar hendur. Fyrir nú utan hin hvun- dagslegu kraftaverksem amma gerði dag hvern aö töfra fram mat og mjólkursopa fyrir börnin og einnig gesti sem gjarnan komu við á bæ i alfaraleið. Þannig var amma á slnum búskaparár- um, og eins lengi og likaminn þoldi sivinn- andi frá morgni til kvölds og jafnt heigi- daga sem aöra daga. Henni féll aidrei verk úr hendi. Stórt heimili kraföist þess. Fátæktin kraföist þess. Mér er óhætt aö fullyröa þaö aö aldrei á sinni 97 ára ævi þáöi amma laun á verald- lega vfeu. Hennar laun var sigurgleöin yfir hverju uppkomnu barni hverju barnabarni hverju barnabarnabarni og barnabarnabarnabarni eöa u.þ.b. 140 af- komendum. Þeim fækkar nú óöum sem geta státaö af sliku. í striösbyr jun eða árið 1940 andaðist afi úr krabbameini — þeim þjáningarfuila aldurtila. Þá voru elstu börnin sum hver farin aö heiman en þau yngstu komin uppundir tvitugt. 1 sjö ár frá láti afa býr amma i Litla-Fjarðarhorni en 1947 bregður hún búi og flyst til Siglufjaröar á heimili foreldra minna — Guðborgar sem er yngst barnanna og Alberts Sigurösson- ar. Þar býr hún — áö fáeinum árum und- anskildum — allt til ársins 1973 er hún leggst inn á Elliheimili Siglufjarðar. Ég man fyrst eftir ömmu þegar halla tók á sjötta áratuginn. Þá var hún enn fótafær og hjálpaði til viö húsverkin sem hefúr liklega ekki veitt af þegar sildin heimtaöi til sin alla sem vettlingi gátu valdiö. Mér fannst hún stór og rómsterk og nokkuö hrjúf I framkom'u sem rekja má til harörar lifsbaráttu en aldrei var hún þaö hrjúf aö mér stæöi ógn af henni. Þvert á móti stafaði af henni slfkum bjarnyl sem þeir einir búa yfir sem hafa mikilúölegt ^vipmót og gott hjartalag. 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.