Íslendingaþættir Tímans - 10.03.1979, Síða 5

Íslendingaþættir Tímans - 10.03.1979, Síða 5
sinn i veikindum hans, en naut til þess góðrar hjálpar frændfólksins, ekki sfst Guðmundar Bjarnasonar, sem var nokkr- um árum eldri en hún. Þau Guömundur og Sigriður giftust árið 1920, og sama ár fluttu þau ásamt sr. Gisla, Þuriði Runólfsdóttur móður Guð- mundar og systkinum hans að Selinu i Skaftafeili, þar sem þau bjuggu til ársins 1939, er þau fluttu til Reykjavlkur. Eftir að Sigriður gerðist húsmóöir i Skaftafelii varð erfiöara um vik fyrir hanaað taka þátt i félagsllfi sveitarinnar, þvi 25km voru á samkomustað og Skafta- fellsá, sem mest er af þeim vötnum sem renna milli bæja i öræfum, i leiðinni. Að vísu kom fleira til, en bústaðaskipti þessarar fjölskyldu hafa eflaust átt drjúg- an þátt í að starfsemi ungmennafélagsins Framtiðin lagðist niður árið 1921. 12 árum siðar var aftur stofnað ung- mennafélag I öræfum. A einum fundi þess var rætt um orgelkaup i samvinnu við sóknina og gert ráð fyrir að ungmennafé- lagið fengi að nota orgelið, þó hlutur þess yrði minni en safnaðarins. í þessum um- ræðum minntist einn þeirra, sem verið hafði i gamla félaginu á hlut Sigríðar I þvi, og kvaðst ætla. að ef félagið heföi haft aðgang að orgeli og starf Sigriðar getað haldið áfram, mundi það félag hafa lifaö góðu lifi fram á þann dag. Má af þvi tnarka hvers virði starf hennar fyrir fé-. lagið var. Aðrirhafa getið ættar Sigriðar og helstu æviatriöa ogskalþað ekki endurtekið hér, enda hafði undirritaður ekki mikil kynni af fjölskyldunni i Selinu. Það var fyrst alllöngu eftir að þau hjón- >n fluttu til Reykjavíkur að ég hafði af þeim veruleg kynni. Ég var þá að kynna mér ýmsa þætti þess ltfs, sem þróast hafði i öræfum á liðinni tiö, og þótti mikill fengur að geta talað við Svein bróður Guðmundar, sem var þá (og er enn) elst- ur þeirra manna, er fæddir eru og uppald- >r I Öræfum, og vel minnugur (fæddur 1881), en hann átti heima hjá þeim hjón- um. Er þar skemmstaf aö segja, að ég fór alltaf fróðarifráþeim en þegar ég kom og var Sveinn ekki einn um að veita mér fræðslu, þó hann væri aö visu drýgstur á þvl sviöi. En þau kynni, sem. af þessu leiddi urðu öl þess að ég reyndi alltaf að heimsækja þau hjónin ef ég átti Ieið til Reyk javfkur, enda voru það ánægjustundir, sem ég er þakklátur fyrir að hafa notiö. Aldrei bar þó þátt Sigriðar I starfi ungmennafélags- >ns á góma I þessum heimsóknum, en um hann hef ég farið eftir samtima heimild °g sögn þeirra, sem muna hann. Við frá- fall hennar votta ég eftirlifandi manni hennarog öllu skylduliði einlæga samúö. Blessuð sé minning hennar. tSigurður Björnsson ■slendingaþættir HINN 26. þ.m. andaðist frú Sigriður Gisladóttir, Ljósvallagötu 32hér i bæ eftir löng og erfið veikindi . Hún hafði þó oftast fótavist þar til siðustu vikurnar á sjúkra- húsi. Ég heyröi hennar fyrst getið haustið 1920 þegar ég gerðist kennari viö barna- skólann á Eyrarbakka litt reyndur og öll- um ókunnur þar. Atvikin höguðu þvi svo til að ég kynntist þar einna fyrst frú Guö- björgu Guðmundsdóttur frá Háeyri og fjölskyldu hennar en Sigriður var elst hennar barna og farin að heiman þegar hér var komiö sögu. Hún haföi farið með sr. Gisla fóöur sinum austur I öræfi sem siðar segir frá. En hér minnist ég þess, að ég heyröi fjölskylduna tala um þessa fjar- lægu stúlku á sérstakan hátt, mér skildist meðmeiriástogviröingu en almennt ger- ist um skyldmenni. Ég man aö mig langaði til að kynnast þessari stúlku. Þaö varð líka mörgum árum seinna þvi að hér mun minn eigin örlagavaldur hafa gripið i taumana. Hjá þessari fjölskyldu kynntist ég systur frú Guðbjargar, Sólveigu er siðar varö ástrik eiginkona mln og trygg- ur förunautur til hinstu stundar. Svo var litill aldursmunur þeirra frænkna Sigrlð- ar og hennar aö þær vorunær þvi að vera systur en frændkonur. Ég kynntist þvi Sigrlði nokkrum árum seinna þegar viðbæöi áttum orðiö heima hér i bæ. Hún hefur þvi verið tryggðavin- ur minn um 40 ára skeið. Og eigi ég aö lýsa Sigriöi með einu orði verður þaö svo að elskulegri mannesku hefi ég ekki þekkt. Það er ótrúlegt en satt, að ég hefi aldrei heyrt henni hallmælt. Égmunnúreynaaðsegja sögu hennar i svo stuttu máli sem unnt er enda þótt ég finni vanmátt minn til þess. Sigriður var fædd að Felli i Mýrdal 20. júli 1897, en faðir hennar, Gisli Kjartans- son var þá prestur Mýrdalsþinga. Móöur- foreldrar Sigriðar voru hjónin Guð- mundur Isleifsson óðalsbóndi og út- gerðarmaöur á Eyrarbakka og k.h. Sig- riður Þorleifsdóttir, „rika” á Stóru-Há- eyri en fööurforeldrar Kjartan Jónsson prestur i Ytri-Skógum og Ragnhildur Gisladóttir kona hans. Eru þetta kunnar ættir sem ekki verða raktar hér. Sigriöur ólst upp hjá foreldrum sínum fyrst á Felli og siöan i Reykjavik þegar faðir hennar varð aö láta af embætti sök- um heilsubrests 1903 og fluttist til Reykja- vikur. En árið 1905 fluttist fjölskyldan að Stað i Grunnavík til sr. Kjartans Kjartanssonar bróður sr. Gisla. Var hann aöstoðarprestur bróður slns næstu 4 árin. Siöan fluttust þau hjón aftur til Rvikur með börn si'n og vann sr. Gísli þá skrif- stofustörf I nokkur ár, þvi aö hann var fjölhæfur verkamaður glæsimenn i sjón og þótti ágætis prestur, þegar hann naut sin vegna veikindanna. Og alltaf þráði hann preststarfiö. Svo skipaðist nú til um heilsufar hans að honum var veitt Sand- fellsprestakall I Oræfum 1912 og var hann skiþaöur þar 1913. Þá höföu þau frú Guð- björg eignast 10 börn hvar af 6 voru á lífi það yngsta fætt 1913. Þaö þótti þvi ekki ráölegt að flytja fjölskylduna alla þessa leið i einangraöa og fjarlæga sveit. Þá varð það að ráði aö elsta dóttirin Sigriður flytti með föður slnum austur og geröist ráðskona hans. Hún hafði þá veriö við nám i Kvennaskóla Rvikur og tekið þaðan próf meö mjög hárri einkunn þvl aö hún var skarpgreind og námfús. En hér skipti sköpum i ævi hennar.Hún varð áfram verndarvættur hins veika föð- ur sins þvi aö heilsu hans hrakaði svo aftur, að honum var veitt lausn frá em- bætti 5. mai 1916. Fjölskylda hans komst þvi aldrei austur i öræfi en dvaldi I Reykjavik og á Eyrarbakka þessi og næstu ár. Hins vegar varð hlutverk Sig- riðar eins og flestra annarra myndar- kvennaaö hún giftist áriö 1920 góðum og gjörvulegum manni Guömundi Bjarna- syni i Skaftafelli. Hann var einn 5 bræðra er bjuggu þar félagsbúi meö móöur sinni Þuriöi Runóifsdóttur er þótti skörungs- kona að allri gerð. Nú fluttist Sigriður á þetta heimili með fööur sinn veikan. Naut hann þar hinnar bestu aöhlynningar hjá ágætri dóttur sinni og tengdafólki hennar og þar dó hann 12. sept. 1921. En svo viö höldum áfram sögu ungu hjónanna þá bjuggu þau þarna I sambýl- inu til ársins 1939, að þau fluttust til Reykjavikur og bjuggu sjálfstætt úr þvi.f Ekki þarf miklaglöggskyggni til að sjá að þessi ár hafa verið erfið fyrir unga konu sem átti orðiö 4 börn. Allir vita að þriöji og þó einkum fjórði áratugur aldar- innarvar erfiöur islenskum bændum. Auk þess var Oræfasveitin algjörlega ein-. angruð af stórvötnum. Og þótt fagurt sé I Skaftafelli er ég ekki viss um, aö gott sé að búa þar. Aö minnsta kosti þarf þar mikinn mannafla til smalamennsku og selveiða og illt er að gera jarðarbætur I grennd við bæina. Unga konan i Skaftafelli komst aldrei i heimsókn til fjölskyldu sinnar þessi ár, en hafði stöðugt samband við hana. Elsti bróöir hennar dvaldi eystra um tima og fyrir kom aö önnur eldri systkini komu i heimsókn. Það voru sólskinsdagar i lífi Sigriðar. Ein aðalástæða til þess að þau hjónin fluttu frá Skaftafelli var auðvitað löngunin til þess aö veita börnum sínum betra tækifæri til lærdóms og þroska en unnt var aö veita i innilokaöri sveit. Enda tókstþeim þaðmeð dugnaöi og framsýni enda þótt hér verði ekki talaö um skóla- göngu hvers og eins þeirra. En hins verður aö geta aö Guðmundur fékk strax góöa atvinnu hér i bæ og hefur unnið eins og vikingur, enda létu kona og börn ekki sitt eftir liggja. Það varð heim happ aö eignasthúsiö á Ljósvallagötu 32 þar sem fjölskyldan hefurnúhaft aðsetur um ára- bil. Hér skulu nú talin börn þeirra Sigriðar og Guðmundar i aldursröð: 1. Þuríöur Elin. Var heilsulaus mestan 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.