Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1979, Page 9
Indriði Kristbjörn
Vilhjálmsson
bóndi Torfunesi i Ljósavatnshreppi
Indriði Kr. fæddist 16/1 1909 i Hólsgerði
i Ljósavatnshreppi, en fluttist þaðan 3ja
ára með foreldrum sinum að Torfunesi í
sömu sveit og átti þar heima alla ævi, en
hann andaðist 3. maí 1978.
Foreldrar Indriða voru Llsibet Indriða-
dóttir og Vilhjálmur Friðlaugsson bæði af
kunnum þingeyskum ættum. Bjuggu þau
allan sinn bdskapartlma á þessum tveim-
ur jörðum Þau eignuöust sex syni og eina
dóttur sem öll ólustupp i Torfunesi til full-
orðnis ára ogvar heimilið alltaf bjargálna
þó ofthefði Vilhjálmur frátafir, þvl öll sln
búskaparár var hann lögskipaður ferju-
maður yfir Skjálfandafljót — eöa um
aldarfórðungsskeið — .
Indriði Kr. var I Laugaskóla veturinn
1926-27. A Hvanneyrarskóla var hann vet-
urna 1933-34 og 1934-35.
Indriði kvæntist 3/7 1938 eftirlifandi
konu sinni Aðalheiði Jóhannesdóttur
fæddri 7/7 1906 á Hellu í Arnarfirði. For-
eldrar hennar voru hjónin Geirþrúður F.
Jónsdóttir og Jóhannes Egilsson þau
fluttu að Bakka I sömu sveit er Aðalheiður
var þriggjaáraogólsthúnþar upp til full-
orðins ára.
Aðalheiður og Indriði Kr. eignuöust
tvær dætur —tvíbura — fæddar 14/8 1939
þær heita Arnfriður Eygló og Bjarndls
Eygló. Þær ólust upp hjá foreldrum slnum
og eru nú báðar giftar og eiga börn. Arn-
frlður Eygló er búsett á Akureyri en
Bjarndis Eygló er búsett i Hafnarfirði.
IndriðiKr. varsannur bóndii starfi sinu
öllu. Honum var vel ljóst að jörðin er
móðir og fóstra alls lifs sem á henni
hrærist og þaðlif á sér rætur þar sem það
vex upp, þess vegna þótti honum vænt um
bújörðina sina og öll dýrin sem voru I
umsjá hans.
1 Torfunesi var allt I röð og reglu og
snyrtileg umgengni allsstaðar og i stórum
dráttum vildi öll fjölskyldan I sameiningu
vinna að hamingju heimilisins viðhaldi
jarðarinnar og velliðan húsdýranna.
Indriði Kr. var mjög fjárglöggur og
hafði yndi af að umgangast sauðfé. Hann
sagði mér fyrir nokkrum árum aö hann
ætti töluvert safn af hornum af ám sem
lógað hefði veriðiTorfunesialltfrá þvi að
hann var drengur og hann myndi enn
islendingaþættir
hvað sú ær hefði heitið sem borið hefði
hverja hornasamstæðu.
Ég hef sterkan grun um að hann hafi til
þessa tíma átt þyngsta skrokk af full-
orðnum hrút sem lagður hefur verið inn I
Kaupfélag Þingeyinga á Húsavlk og sýnir
þetta að hann hafði glöggt auga fyrir því
aö eiga failegt og vænt fé.
Indriði hafði mikið yndi af hestum og
kunni vel með þá að fara ogmeðan unniö
var með hestum að bústörfum átti hann
jafnan góða og vel þjálfaða dráttarhesta,
en á seinni árum reiðhesta.
Hann var góður ungmennafélagi og
kaupfélagsmaður og var i' mörg ár sjálf-
sagöur fulltrúi Kinnardeildar á aðal-
fundum K.Þ.
Indriði var vel hagmæltur og hafði
mikið uppáhald á velgerðum vísum og
ljóðum. Hann haföi mikiö gaman af að
blanda geöi við fólk á mannamótum og
fylgdist vel með þvi sem geröist I sveit-
inni, sýslunni og i landsmálum, enn-
fremur las hann mikið einkum seinni
árin.
Geta má þess til sannindamerkis um
hvað Indriöi Kr. var mikill mannkosta-
maöur og fjölhæfur, aö hann var ætíð
boðinn og búinn að rétta hjálparhönd
hverjum þeim sem þess þurfti við, bæði
að heiman og heima. Aðalheiður kona
hans var heilsutæp og var oft rúmiiggj-
andi og kom þá I hans hlut að annast hana
ogdætur þeirra meðan þær voru i bernsku
og vann hann þau störf með prýði, svo
sem annaö er hann lagði hug og hönd að.
Nokkur siðustu æviár sln gekk Indriði
Kr. ekki heill til skógar, einkum siðasta
veturinn sem hann lifði. Nóttina fyrir 3.
mal 1978 leið honum illa, en um morg-
uninn fór hann þó á fætur og talaði viö
lækni á Húsavík. Læknirinn ráðlagöi
honum að koma til skoðunar. Indriði gekk
sjálfur út I bfl sem flutti hann til Húsa-
vlkur og úr bílnum inn á sjúkrahúsiö.
Eftir læknisskoöunina var ákveðið að
hann dveldi eitthvað a sjúkrahúsinu. Er
hann var að afklæöast þar hafði hann við
orðaðhann værisvo hress aðhonum væri
nær að hafa sig heim og það voru hans
slðustu orð, þvi að að þeim mæltum hné
hann niður og var þegar örendur.
Siöustu orö Indriða Kr. sýna vel hans
innri mann. Hversu heimilið var honum
kært og löngunina til að vinna þvi allt
meöan stætt var. Þó var honum vel ljóst
að einstaklingar og heimilin eru aðeins
nauðsynlegir hlekkir i hinni stóru al-
heimstilverusem við mennirnir I raun og
veru vitum allt of litið um.
Hinn 13. mai 1978 var Indriði Kr. borinn
til grafar á Akureyri, að afstaöinni
kveðjuathöfn I Þóroddsstaðakirkju.
Vertusæll, vinur minn, við vitum báöir
að viö eigum eftir aö hittast siðar.
Alfreö Asmundsson
frá Hllö