Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Síða 7

Íslendingaþættir Tímans - 21.07.1979, Síða 7
Helgi Hallgrímsson f. 14. aprll 1891 —d. 23. mal 1979 1 dag fer fram frá Dómkirkjunni útför Helga Hallgrimssonar. Hann fæddist á Grlmsstööum á Mýrum 14. april 1891 og lést s.l. miBvikudag 23. mai 1979. Hann var sonur Hallgrims Nlelssonar, bónda á Grimsstöðum á Mýrum og Sigrlðar Helgadóttur frá Vogi á Mýrum, konu hans. Séra Haraldur Nlelsson, prófessor, var föðurbróðir hans og margt dugnaöar- fólk er I ættinni. Helgi var kennari að mennt, en var lengst af fulltrúi á skrifstofu Reykja- víkurhafnar. Tók hann mikinn þátt I fé- lagsmálum og var um langt árabil þing- forseti Bandalags starfsmanna rlkis og bæja. Fóru honum þau störf vel úr hendi, enda röggsamur I forsetastóli og mælsku- maður mikill.. Hann hugsaði mikiö um þjóðfélagsmál og hélt oft erindi um þau I útvarpiö. Hann var mikill tækifærisræöu- maður og hafði yndi af aö flytja kvæði, einkum kvæði Einars Benediktssonar, sem hann kunni flest utanbókar. Aðal áhugamál Helga var tónlistin. Hann hafði góða söngrödd og lék vel á píanó og orgel, m.a. við messur Haraldar Nielssonar I Frikirkjunni. Hvergi kunni hann betur við sig en þar sem tónlistin var I heiðri höfö og var þá hrókur alls fagnaðar. Helgi fékkst viö innflutning á píanóum alla ævi allt fram til hins siöasta og þar undi hann sér vel. Vildi hann leggja sinn skerf til, að tónlistin væri iðkuð á flestum heimilum. Einkum var honum annt um, að unglingar heföu tækifæri til að öðlast staðfasta grundvallarþekkingu I tónlist. Eiginkona Helga, Ólöf Sigurjónsdótt- ir, lést fyrir nokkrum árum. Börn þeirra eru Hallgrlmur tónskáld, Siguröur forstjóri Flugleiða, Gunnar lögfræöingur Flugleiða, Halldór forstjóri Ocean Har- vest I Boston og Astríöum sendiherrafrú I Washington. Vinir Helga Hallgrimssonar munum minnast hans sem alvörumanns og gleði- manns og umfram allt sem góðs vinar. Ég naut vináttu Helga um 30 ára skeið. Þótt aldursmunur væri mikill, fannst mér alltaf, aö við værum jafnaldrar. Svo ungur var hann I anda og jákvæður I öll- um sinum lifsviðhorfum. Haföu þökk fyrir samveruna, kæri tengdafaðir. Hans G. Andersen Frá fyrstu starfsárum minum viö Tlm- ann minnist ég margra utanbæjarmanna, sem komu á skrifstofu blaösins, til að ræða við ritstjóra og blaöamenn um áhugamál, sem þeir báru fyrir brjósti. Af þessum mönnum eru mér fáir eða enginn minnisstæðari en Hallgrimur Nielsson á Grimsstöðum á Mýrum. I málflutningi hans fóru saman svo mikil orðsnilld og eldmóður, ásamt skörpum skilningi, að erfitt var að andmæla honum, ef skoðanir fóru ekki saman. Mér fannst ég jafnan vera eitthvað rlkari eftir aö hafa rætt viö Hallgrim. Það var gagnlegtungum manni að fá leiðbeiningar og fræðslu, áminningu og viöurkenningu frá manni eins og Hall- grlmi Nielssyni. Ég kynntist Helga syni hans ekki fyrr en mörgum áratugum slðar, þegar hann var orðinn nær hálfáttræöur. Aldurinn sá þá ekki á honum. Hann var beinn I baki og bar sig vel, manna höfðinglegastur I sjón. Þó var meira um vert, aö arfurinn frá Hallgrimi föður hans, andlegt fjör og þróttur, málsnilld og skarpleikur, hafði ekki látið á sjá. Það gat vel átt viö hann, sem Helgi Hjörvar kvað um frænda hans, Bjarna Ásgeirsson. Glöggt hefur Mýramanna kyn markað sér hinn væna hlyn. Tvennan áttu ættargrip, Egilsmál og Þorsteinssvip. Helgi Hallgrímsson veröur ógleyman- legur þeim mönnum, sem áttu þess kost á að kynnast honum náiö. Andleg reisn hans naut sin vel á gleöistundum, þegar hann var hrókur alls fagnaðar og flutti orð- snjallar ræöur eöa stjórnaði söng af lifi og sál. En hann naut sin ekki slöur, þegar alvaran kvaddi dyra. Þannig mun þaö hafa verið á siöastliönum vetri, þegar mikill harmur var kveðinn aö fjölskyldu hans. Þá mun það hafa verið hinn nlræði öldungur, sem var mest til hughreyst- ingar. Helgi Hallgrlmsson átti þvl láni að fagna, að eignast fimm mannvænleg börn, sem borið hafa hróöur lslands vltt um lönd á sviði lista, viðskipta og dipló- matiskra samskipta, þvi að það reynir oft ekki minna á konu sendiherrans en sendi- herrann sjálfan. Arfurinn frá Grlmsstöö- um hefur reynzt endingargóður. Helgi Hallgrlmsson hélt andlegri reisn sinni til hinztu stundar. Við Ragnheiður þökkum vináttu hans og drengskap um leið og við vottum vandamönnum hans samúð okkar við fráfall hans. Gott er aö eiga minningu um slíkan mann. Þ.Þ. 0 Jón Sigurgeirsson veriö leikföng hans: Til að veiða, synda, vaða og sigla. Sem smástrákur byrjaöi hann að tipla yfir mjóu göngutrén á Hellu- vaösánni og fara I handsmeygum kláf- ferjunnar yfir Laxá. Seinna iökaði hann sömu listir við ströngustu vatnsföll lands- ins, Jökulsá á Fjöllum og Kreppu, og veit ég aö ýmsum var þaö eitt ærin raun að horfa á það atferli. Um langt skeið átti hann gúmmlbát og ferjaöi menn og skepnur yfir þessar ár eftir þörfum. J6n er stór vexti og karlmenni til orðs og æðis. Hann þekkir ekki víl eða ótta, er^ áræöinn, ihugull og rasar ekki um ráö fram. Þessir kostir ásamt hinni miklu við- skiptagleði við náttúruna eru höfuðkostir hins snjaila feröamanns Jóns Sigurgeirs- sonar. En þeir hafa kaUaö hann tU fleiri starfa ogdáða. 1 marga áratugi, eða fram undir síöustu ár, hefur hann verið sjálf- kjörinn liösmaður við að bjarga mönnum og skepnum úr háska, meiri eða minni, ýmist gangandi, akandi eða á gúmmlbát slnum og lagði þar við eigið lif á stundum. Dæmin eru mýmörg og sjálfsagt flest óskráö. Þekktastur er björgunar- leiðangurinn á Vatnajökul eftir Geysis- slysið. — Eitt er víst: Þegar menn fréttu að Jón Sigurgeirsson væri lagður af stað til þess aö bjarga þeim eða þvl, sem bjarga þurfti, vörpuöu þeir öndinni léttar og vissu að nú væri málinu borgið. Jón var I mörg ár meðal forystumanna I dýraverndunarfélagi Akureyrar og sér- stakur verndari óskila — og Utigangs- dýra, raunar bæöi i lifi þeirra og dauða. Ég býst ekki við að mér hafi tekist aö tiunda öll áhugasvið og viöfangsefni þúsundþjalasmiösins frá Helluvaði þessi liðnusjötiu ár, enég læt hér staðar numið. Ég er þess fullviss, aö margir mundu vilja minnast þessara tfmamóta við Jón Sigurgeirsson. Fyrir mfna hönd og þeirra þakka ég honum fyrir trausta og góða samfylgd á fjöllum og förnum vegi daglegs Hfs og bið hann heilan og lengi lifa. 8. j lilf 1979 Asgeröur J ónsdóttir íslendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.