Íslendingaþættir Tímans - 29.03.1980, Síða 4

Íslendingaþættir Tímans - 29.03.1980, Síða 4
Efemía Gísladóttir frá Halldórsstöðum Vaktu minn Jesú, vaktu I mér, vaka láttu mig eins i þér, sálin vaki, þá sofnar lif sé hún ætíö i þinni hlff. Þessi orö skagfirzka skáldsins, sem hvarf af jaröneskum heimi fyrir meir en 300 árum, koma oss i hug, þegar Efemla Gisladóttir er öll. Séra Hallgrfmur sat tíö um á eintali sálarinnar. Hinn ósýnilegi viðmælandi hans um llfsvandann og dauöans óvissa tfma, léöi skáldgáfu hans snilli spámannsins, og guðdómlegum straumi var veitt á alfaraleiö lifsins. Yfirskyggöur þjónn Guðs og mannanna kom I sigildu ljóöi af fundi andans. Drottinn Kristur vakti f sálu hans neist- ann, sem aldrei er slökkur meö Islend- ingum, en vakir I þjóöarvitundinni eins og eilffur vitnisburöur um lifiö f sköpun Guösá jöröu og himni . Visuoröin: sálin vaki, þá sofnar lif, er oss heilagt mál viö dáins beö. Og viö hinztu kveöju helgiletur hjartans þessi bæn: sé hún ætið I þinni hlif. Það veröur bjart um manninn, hvar sem hann fer, þegar þessi orö lýsa hug- ann. Og hann ris til andlegrar skynjunar á þvi, aö Guö er allur heimur, eins I lágu og háu, og'aö jaröarbarniö á þar hlut- deild, variö af vöku andans I br jósti sér, á leiö sinni I dauölegum heimi til hins óræöa og eilifa. Orö postulans um anda Guös I sálu mannsins eru hinn ófölnandi blómsveigur trúarvissunnar um lffiö eftir þetta lif, um ódauöleika-veruna, sem vér vöknum til, þá sofnum vér burt úr heimi. Þau eru skilningssvar skálds- ins viö þeirri tilfinning, aö Kristshelgun- in vakir I huga hans, eins og þau opin- bera oss dýröina Drottins i leyndar dómi hinnar eilifu skynjunar: þú átt, þú átt aö lifa. Þannig höldum ve’r ekki aöeins vöku vorri I trú, en völdum þvi aö vita, aö lif mannlegt endar skjótt, og hugsunin um dauðans óvissa tima er oss lifandi veru leiki um eilifö bak viö árin. Kriststrúin I sönnun upprisu sálarinnar I afturelding hins nýja dags, er oss þvi vakandi lifs- hamingja, þroskandi þáltur I uppistööu vefsins marglita og fjölþætta. Timinn slær hann ár og siö. En, þegar hann hættir og silfurþráöurinn, sem bindur likama og sál er slitinn, sjáum vér I skin- andi heiöiö yfir vöku hins eilffa fram- halds. Hér eru áfangaskil og skeiöi hinnar jarönesku byrjunar á eilifö Efemíu Glsladóttur lokiö. Skulum vér þvi horfa 4 aftur um stund og skoöa fagurgerðan lifsvef hinnar mikilhæfu og gæfusömu konu. Hún var fædd á Stóru-Seylu I Glaum- bæjarsókn hinn 4. mars 1902, annað barn hjónanna Gisla Benediktssonar og Ingi- bjargar Björnsdóttur, er síöar bjuggu lengi á Halldórsstöðum á Langholti. Stóöu aö þeim merkir ættstuölar sem hér er vart tóm aö rekja nema aöeins I litlu einu, og þar vikiö að séra Magnúsi I Glaumbæ. Hann kom noröur i Skagfjörö fyrir réttum tveimur öldum. 24 ára Skál- holtsstúdent, sveinn Jóns biskups Teits- sonar. Herra biskup var hinn skammlif- asti á Hólastóli, er hann lést rúmu ári eftir komuna noröur, en Magnús stúdent átti hins vegar langa framtfö fyrir hönd- um nyröra. Hann var við ýmis störf og búskap, uns hann vígðist aö Hvammi I Láxárdal 1786. Var hann þar prestur siöan i 28 ár, en frá 1814 I Glaumbæ til dauöadags 1840. Viöburðarlk saga þessa Sunnlendings, sem átti nær 60 æviár I Skagafirði I gleöi og sorgum, erfiðleikum og sigrum, skal ekki rifjuö upp aö sinni, en hins getiö, aö hann átti 13 börn, og er þaöan kominn fjöldi fólks. Þó aö dætur hans af siöara hjónabandi flytti raunar ailar úr héraöinu og ófáir niöjar hans færi vestur um haf, en aörir dreiföist um heimalandiö smám saman, er mikill ætt- bogi af honum kominn f Skagafiröi og þar marga aö telja, karla og konur, mikil- hæfa og merka og kunna af framkvæmd I búnaöi og forgöngu í menningu. — Eitt barna séra Magnúsar, og siöari konu hans, Sigriöar Halldórsdóttur Vldalins á Reynistaö, var Einar bóndi á Húsabakka og Krossanesi. Hann kvæntist Efemfu Gisladóttur, systur Konráös prófessors I Kaupmannahöfn, og voru þau börn Gísla Konráðssonar sagnaritara og skálds. Meöal barna þeirra hjóna voru Indriöi stjórnfræöingur og skáld og Ingibjörg húsfreyja á Syöra-Skörðugili á Lang- holti, kona Benedikts Kristjánssonar bónda þar. GIsli á Halldórsstööum var sonur þeirra. Honum er svo lýst, aö hann væri snarmenni og harðfylginn sér allt um fremur tæpa heilsu, og fram- kvæmdir hans aö byggingum á Halldórs- stööum svo miklar og vel að staöiö, aö athygli vakti, en orö gert á ’þrifnaöi ’í búnaöi. Ingibjörg kona hans var neiaur eigi heilsusterk, kona tíguleg ásýndum og mikilvirk. Þau létu jörð og bú á Hall- dérsstööum I hendur barna sinna 1936, þrotin aö kroftum, og lést Ingibjörg aðeins ári siðar, en Gisli 1941. Efemfa var farin frá Halldórsstööum, þegar foreldrar hennar hættu búskap. Hún giftist Felix Jósafatssyni frá Stóru-Gröf hinn 21. júli 1929, og bjuggu þau fyrstu árin f sambyli á Halldórsstöö- um, en tóku Húsey f Vallhólmi á leigu frá fardögum 1932. Þar bjuggu þau I 23 ár viö batnandi hag og barnalán, uns þau fluttu i nýreist hús sitt austan I Reykjarhóln- um, er þau nefndu Sunnuhliö, stórt og vandaö. Búskapur þeirra I Húsey var ótrúlega gagnsamur, þegar haft er I huga, aö jaröarafgjaldiö, einkum fyrstu árin var svimandi hátt. Uröu þau þó I Húsey til frambúöar og við þann staö voru þau löngum kennd og börn þeirra. Heimiliö var friösetur gæfusamrar fjöl- skyldu, sem orö fór af fyrir mannrækt og prúöa háttu á alla grein. Attu þau hjónin þar jafnan hlut aö I viröing hvors annars og kærleiksrikri sambúð. I nær 45 ára hjúskap talaöi Felix aldrei höstugt orö til konu sinnar, en kæmi þaö fyrir, aö áhugakrafturinn bæri Efemlu hiö minnsta af vegi hins sameiginlega hóg- væröaranda dagllfsins, stóöu þau enn fastar saman og brostu af innileik og ástúö. Meö sllkum hjónum var hollt aö vera. Þau voru ein sál og einn maöur, fágæt aö fyrirdæmi. Var þaö enn meir um vert, aö barnmargt var íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.