Íslendingaþættir Tímans - 22.11.1980, Side 6

Íslendingaþættir Tímans - 22.11.1980, Side 6
Sigurður Jakobsson Fáein kveðjuorð. VoriB 1940 reib 10 ára drengstauli yfir Skjöld og Dalaskarö meö gömlum vini fööur sins, Siguröi bónda Jakobssyni á Dalabæ. Þeir höföu lagt af staö skömmu eftirnáttmálfrá Siglufiröi og meöan hest- arnir fetuöu tæpa sneiöinga bjart vor- kvöldiö spjölluöu þeir margt. Dökkt var yfir. Stálgráar, ómanneskjulegar her- sveitir Hitlers streymdu um Evrópu. Bretar stóöu einir gegn villimennskunni og fyrir nokkrum dögum höföu breskir hermenn biíiö um sig á Siglufiröi. Fyrst hneig oröræöa Siguröar einkum aö þess- um nýjustu viöburöum. Viö höföum á til- finningunni aö viö liföum atburöi sem þættu aölikindum tlöindi umalla framtíö. — En brátt kom þar að djúpur undir- straumursögunnar flæddi af vörum hans. Göturnar voru honum kunnar, fjöllin og leiöirnar yfir þau bernskuslóöir hans, Strengur, Seti, Gjár, auk leiöarinnar sem ein var sæmilega fær meö hesta og viö riöum nú. Og kynslóöirnar liöu mér fyrir hugskotssjónir, störf þeirra og strit, bar- átta viö haröleikin náttUruöfl nyrst á Tröllaskaga, „á ströndinni viö hiö ysta haf.” Um miönætti komum viö aö Dalabæ. Ljósbrúnt timburhús portbyggt meö myndarlegum gluggum, háu risi og skúr, sem lækkaöi til noröurs, hvildi viö fjalls- rætur. Bjart var til hafsins og sól myndi rlsa fyrir óttu aö likindum. Halla hús- freyja fagnaöi okkur vel., nýjum sumar- manni, lágum I lofti, ekki siöur en bónda sinum. Og innan tiöar hvildist hann á bekk undir hlýrri og hreinni sæng. Þessi fyrsta ferö mfn meö Siguröi Jakobssyni eöa Sigga á Dalabæ, eins og hann var oft kallaöur og kunni sjálfur vel, var aöeins forsmekkur þess sem koma skyldi. Og einhvern veginn finnst mér nú aösumurin sem ég dvaldist á Dalabæ hafi aö ýmu leyti oröiö mér drýgri til þroska en margir vetur á dskólabekk. Þar kynntist ég ekki aöeins þvi jafnvægi erfiöisverka og andlegra iökana, sem áttu drjúgan þátt i aö islensk menning var um aldir sameign þjóöarinnar en ekki spari- flik fámennrar yfirstéttar, heldur liföi ég einnig nitjándu öldina aö nokkru þó aö liönirværu fjórir tugir þeirrar tuttugustu. Siguröur Jakobsson var fæddur á Dala- bæ 24. júni 1901. Hann var sonur hjónanna Jakobs Þorkelssonar og ölafar Einars- dóttur sem áttu jöröina og bjuggu þar viö rausn um langan aldur. — Dalabær á Úlfsdölum var talin ein besta jöröin f 6 Dalabæ Hvanneyrarhreppi. A6 visu var hún ekki nema 20 hundruö aö dýrleika aö fornu mati en bændur þar stunduöu tiöum sjó af kappi enda ekki langróiö jafnan og efn uöust margir vel. — Siguröur tók viö búi af fööur sinum áriö 1930 ásamt unnustu sinni, Þórhöllu Hjálmarsdóttur, Kristj- ánssonar, og konu hans, Kristrúnar Snorradóttur, frá Húsabakka 1 Aöaldal. Þau giftust 19. febrúar 1931. Sambúö þeirra varöi þvi i hálfa öld. Börn eignuö- ust þau fimm: Jakobinu Ólöfu, Höllu Kristmundu, Steingrim Dalmann, Þórö Rafn og Sigurö Helga. Synirnir eru allir skipstjórar, þeir eldri tveir I Vestmanna- eyjum, sá yngsti á Siglufiröi. Jakobína Ólöf er húsfreyja i Eyjum en Halla á Akureyri. Tæpa hálfa öld átti Siguröur heima á Dalabæ. Hann gerþekkti jöröina og Úlfs- dalina alla, fólkiö sem þar bjó og haföi bú- iö. — NÍfcri viö Vogu, lendingu Dalabæjar- bænda, lágu stórir lifrarpottar I þúfunum, ryögaöar sóknir og digrar festar. Sögur af hákarlaveiöumDalamanna og Siglnes- inga uröu meira en þurr sagnfræöi á vör- um Siguröar. Ljóslifandi komu þeir á móti manni, gömlu hákarlamennirnir. Svalviöri og sólbjarta daga, stórhrföar- vikurog vorbjartar nætur bar fyrir augu. Þaö var fólkiö i þessu landi, annirþess og erfiöi, sem gæddi horfna tima lífi. Og viö vorum hlekkur i þessari sögu sem var bæöi gömul og ný: Viö bárum mykju á völl. Viöklufum taö. Viö tókum upp svörö, þurrkuöum, klufum, hreyktum. Viö slóg- um meö orfi og ljá, snerum meö hrifu, tókum saman, bundum. Viö gengum á reka. Og þegar óþurrkar voru. — Vél- tækni var fátækleg. Sem betur fer finnst mér nú. Viö sáum ekki bil og traktorar heyröu innsveitum og góö- sveitum til. En stundum greindum viö skipalestir Bandarikjamanna viö sjónbaug. Þær fluttu hergögn til Rúss- lands. — 1 miöri siöari heimsstyr- jöldinni unnum viö sams konar störf meö svipuöum verkfærum og Dalamenn um aldir, liklega frá dögum úlfs vikings en haugur hans blasti viö fyrir neöan Klifiö- Og viö fundum til sams konar starfaþrár og gengnar kynslóöir þegar viö vöknuBum i bjartri morgunsól sem lofaöi löngum, heiöumdegi, sams konar gleöi þegar viö fengum blöndukönnuna til okkar I flekk- inn og sams konar þreytu er viö ösluöum heim blautar mýrar meö orf um öxl. Eins og vonandi hefur komiö fram í þessum greinarstúf haföi Siguröur Jakobsson ánægju af samræöum. Hann var ejnn mestur snillingur skemmtilegra viöræöna og kátlegra frásagna sem ég hef kynnst. En hann var ekki einungis sagna- þulur. Hann var lika brot af lifsspekingi- Hann talaöi crft um þann vanda sem fylgir þvi aö vera manneskja og þaö geröi hann á þann hátt aö seint gleymist. Enn á ég bréf frá honum sem hann sendi mér fermingarvoriö mitt. Þar er hann lifandi kominn: Elskuleg blanda af glettni og al- vöru, litillæti og þeim sjálfsþótta sem aldrei getur umhverfst I hroka. Siguröur Jakobsson var afar vel kvænt- ur. Hann mat líka konu sína mikils og dró aldrei dul á þá viröingu sem hann bar fyrir henni. Þórhalla er ekki einungis vel greind, eins og hún á kyn til, heldur og góB kona og höföingi til geös og geröar. Hún átti sinn þátt, og hann ófúinn, i aö gera dvölina á Dalabæ minnilega. Hún sag&’ velfrá, engu siöur en maöur hennar, en d- lik voru þau þó. Hugblæ liöins tima gat hún töfraöfram meö einni stuttri setningn enda skáld gott eins og margir ættmenn hennar og sjór af vi'sum og kvæöum- Næmt skyn á þaö sem vel fór i máh> bundnu sem óbundnu, olli þvi aö hun kenndi án þess aö vita af þvi. Nú er Dalabær í eyöi. Halla og Siguröur brugöu búi 1950 og fluttust til Sigluf jaröar- Þau settu heimili sitt nyrst i kaupstaön- um, næst Úlfsdölum eftir aö bilum va tekið aö aka gegnum Stráka og feröir ý 1 Skjöld, Streng og Gjár lögöust af. Og nú er Siguröur, vinur minn, enn fluttur um set. ,,Ég finn til skarös vi ^ auöu ræöin allra sem áttu rúm á sanJjj aldarfari,” kvaö Stefán G. Ég finn . !slendingaþ®tí,r

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.