Íslendingaþættir Tímans - 14.03.1981, Síða 4
Erlingur Thorlacius
Fæddur 15. aprll 1906
Dáinn 1.2. 1981
Kveðja að austan,
frá fjölskyldunni
i Rjóðri.
Að þií værir horfinn héðan
ég heyrði, en triiði vart,
mér fannst þú svo ungur alla tið
og umhverfis þig svo bjart.
En veruleik verður að trúa
þótt vegirnir skilji um sinn
þú verður hjá okkur vinir kær
þann veruleik glöggt ég finn.
Þvi minningar mildar vaka
og munu ei hverfa frá
um allt það er áttum við saman
og aldregi gleyma má.
Og lundin þin ljúfa og hlýja
var ljómi frá þinni sál
sem sérhverjum vildi vinna gott
sem vermandi kærleiks bál.
Og hlýtt var við heimilisarin
þvi hér átti gleðin völd
og ljúft var að sitja saman
við samræður margt eitt kvöld.
En eitt var efst i huga
og öllum sem heilagt mál
að rifja upp allt sem að austur frá
var ástfólgnast hverri sál.
Hve hlýtt var við Hamarsfjörðinn
og hamrarnir glæstir þar
og bergmálið fagurt og blærinn hlýr
i barnanna huga var.
En umhverfis Búlandsnes bæinn
var bjargfast og traustast vé
þar þróaðist fegurðar frjósemd
við föður og móður kne'.
En Alfar i vergi blessa
hvert barn sem að dvelur þar
og gefur þvi besta gjafa val
gullið sem dýrmætast var.
ÞU eignaðist auðinn þinn besta
i átthagafaðmi þar.
Heilladi's hamingju þinnar
sem hjartfólgnust jafnan var.
Og víst er, að saman þar völdust
tvær verur und hlýrri sól
sem stráðu á veginn til vina og barna
þeim varma sem aldrei kól.
Þar rikti sú hjarta hlýja
sem hændi að margan gest
og þar var hjálpsemi hverjum veitt
með hönd sem að reyndist best.
4
A siðustu samfundum okkar
var sólskin um alla jörð,
er komst þU siðast i átthaga austur
við ástfólginn Hamarsfjörð.
Þá vissi ég ekki vinur
það væri i hinsta sinn
er sæirðu lognværan Berufjörð blika
og BUlandstind fagra þinn.
NU erum við komin að kveðja,
kveðja og þakka um leið
alla þá hlýju og órofatryggð
sem yljaði björt og heið.
Og allir ástvinir þinir
óskirnar bestu fá
og yfir þá breiðist blessun Hans
sem börnunum vakir hjá.
Jón I Rjóðri.
+
Móðir: Ragnhildur. F. i Akureyjum 31-
10. 1879. D. 14-6. 1963 i Rvik.
Foreldrar: Pétur Eggerz kaupmaður á
Borðeyri. F. 1832 —d. 1892, og kona hans
Sigriður Guðmundsdóttir Einarssonar frá
Kollsá I Hrútarfirði.
Foreidrar: Friðrik E. Prestur. F. 1802-
d.1892. K ona Arndis Pétursdóttir.
Foreldrar: Eggert Jónsson f. 1775 - d.
1846prestur Ballará. Kona Guðrún Magn-
úsdóttir Ketilssonar sýslumanns.
Foreldrar: Jón Eggerz prestur Holti
önundarfirði. Kona Gunnhildur Hákonar-
dóttir.
Foreldrar: Eggert Bjarnason bóndi
Skarði f.1705 - d.1782. Kona Ragnheiður
Þórðardóttir.
Foreldrar: Bjarni Pétursson riki á
Skarði f.1681 - d.1768. Kona Elin Þor-
steinsdóttir á Skarði.
Faðir: ÖlafurThorlacius læknir f. Saur-
bæ Eyjafirði 11.3. 1869. D 28.2. 1953.
Foreldrar: Jón Thorlacius, f.1816 -
d.1872, prestur. Kona Kristin Rannveig
Tómasdóttir f. 1834 - d.1921.
Foreldrar: Einar Thorlacius, f.1790 -
d.1870. Kona Margrét Jónsdóttir prest-
lærða.
Foreldrar: Hallgrimur Thorlacius,
kona Ólöf Hallgrimsdóttir prests.
Foreldrar: Einar Jónsson f.1696 -
d.1729, prestur. Kona Elin Hallgrlmsdótt-
ir sýslumanns Jóns Thorlacius.
Foreldrar: Jón Ketilsson prestur Brim-
nesi við Seyðisfjörð. Kona Þóra Skúla-
dóttir.
Erlingur var fæddur að Búlandsnesi við
Hamarsfjörð.
Þeirri fögru sveit sem fóstraði um
aldamótin marga okkar mætustu menn,
sem hafa borið orðsir okkar fámennu
þjóðar út um heimsbyggðina. Það er á-
reiðanlega leitun á þvi að jafn fámennt
byggðarlag hafi gefið þjóðinni jafn marga
afburðamenn.
Ekki er mér grunlaust um að ibúar
álfaklettanna sem . umlykja þennan
sérkennilega stað hafi heillað unga fólkið
inn i Hamarinnog að endingu afhent þvl
viskustein sem gaf þeim trú á menn-
ingu og framtið Islands. Yfir æskuheimil'
Erlings á Búlandsnesi var mikil reisn.
Heimilið var mannmargt og börnin
urðu alls sjö. Kristinar tvær sem dóu
ungar. Ragnhildur sem dó uppkomin á
Vlfilsstaðahæli árið 1936. Og Sigurður
sem var skólastjóri Austurbæjar-
barnaskólans en lést 1945. Þeir sem eftir
lifa eru Birgir ráðuneytisstjóri f.28.7-
1913. Og Kristján f.17.11. 1917. Formaður
BSRB.
Ragnhildur móðir hans var aðeins l8
ára gömul þegar hún settist i hús-
freyjusætið á Búlandsnesi. En þau höfðu
gengið i hjónaband 2.9.1898. sama haustið
og hann tók við læknishéraðinu. Þó ao
meira og minna af vinnufólki væri alltaf á
heimilinu var i mörgu að snúast fýr11"
ungu konuna þar sem " mjög gestkvæm
var hjá lækninum en hann annaðist einnig
alla lyfjasölu.
islendingaþÆttir1