Íslendingaþættir Tímans - 24.03.1982, Side 1
ISLENDINGAÞJETTIR
Miðvikudagur 24. mars 1982 — 12. tbl. TÍMANS
Guðmundur Björnsson
kennari, Akranesi, áttræður
Guðmundur Björnsson er fæddur aö
Ntipdalstungu i Miöfirði V.-Hún. þann 24.
mars 1902. Foreldrar hans voru Björn
Jónsson bóndi þar og kona hans Asgerður
^jarnadóttir. Þeir föðurfeður Guðmundar
hafa i langa tíð setið þetta höfuðból, Núp-
dalstunguna. t föðurgarði hefur G.B. lært
hin hefðbundnu sveitastörf að umgangast
°g hirða búféö, afla heyja.fengið að sjá og
rayna starf bóndans. Ég er viss um að allt
hefur þetta lifræna sveitalif heillað G.B.
Þvi alla tið er Guðmundur unnandi sveit-
anna og þess fólks sem þar býr. Það hefur
hann sannað mér og reyndar miklu fleir-
Um- Guðmundur er náttúrunnar barn sem
gengur með brjóstiö fullt af fyrirheitum,
^skum og fyrirbænum, islenskri sveit til
handa. En G.B. er fjölhæfur hæfileika og
gáfumaður, ræöumaður góður og ritfær i
bestalagi hann hefur vakandi áhuga fyrir
framförum á öllum sviðum þjóðlifsins.
Hann á frjóan leitandi hug, framfara-
vilja og drengskap tilgóðra dáöa. Hann er
i orösins fyllstu merkingu sannur Is-
lendingur. Guðmundur hefði vel sómt sér
sem stórbóndi I Húnaþingi. Ekki heföi
vantað áhugann, reglusemina og um-
hirðuna á hans bæ.
Hann er árvakur ákafamaöur, einstakt
snyrtimenni og reglusamur með alla
hluti. Hann er höfðingi heim að sækja,
gestrisinn greiðamaður. Hress og glaður I
viðmóti,trúr og tryggur vinur, sem aldrei
bregst.
En það átti ekki fyrir G.B. að liggja að
verða gildur sveitabóndi. Hann gekk
menntaveginn,útskrifaðist úr Kennara-
skólanum. Kenndi fyrst f sinni heima-
sveit, þar naut kona mln hans góðu
fræðslu, reyndar þeirra hjóna beggja,
siðan má segja að vináttan hafi haldist
með þessu fólki, siík er tryggöin, þaö seg-
ir meira en mörg orð.
Guðmundur Björnsson hefur hlotiö
viðurkenndan heiður fyrir sitt fræðslu-
starf hér á Akranesi svo nýveriö sæmdur
Riddarakrossi af forseta tslands. A Akra-
nesi kenndi hann samfellt í 38 ár. Þeir eru
þvl margir hér I bæ sem eiga honum gott
að gjalda.
Hér á Akranesi vann G.B. einnig aö
opinberum félagsmálum við góðan orð-
stlr. Það má segja með sanni aö þessi
höföinglegi maður hafi sett svip á bæinn
um langt árabil. Hann á mörg spor á
göngustlgum Akraness. Alltaf mætum við
þessum heiöursmanni glöðum I hjarta
broshýrum, orðhögum og viömótshlýjum.
Hér þekkja allir Guðmund Björnsson
kennara og það af góöu einu. Hann hefur
góða regluá þvl að taka sér morgungöngu
og mæta f Sundlaugina á morgnana,
fækka klæðum, sóla sig, ef þá ekki velta
sér uppúr snjónum. Þeir yngri leika þetta
ekki eftir. Reyndar er gamli maðurinn
hraustmenni til likama og sálar. Þaö
kemur fólki svo sannarlega á óvart að
hann skuli eiga 80 ár að baki.
Gúbmundur Björnsson á gott og fallegt
heimili,góða elskulega eiginkonu. Vel
gefna mannkostakonu sem lætur ekki
mikið yfir sér. En kynningin við hana
sannar okkur hæfileika hennar og mann-
kosti. Þetta eru svo sannarlega samvalin
sæmdarhjón sem gaman er aö heimsækja
I þeirra fallega hús að Jaðarsbraut 9.
Þeirra sambúö hefur gefið þeim og þjóð-
inni okkar 5 mannvænleg börn. Þau eiga
miklu barnaláni að fagna. Börnin eru vel
menntaö.þekkt mannkostafólk, þar sann-
ast að sjaldan fellur epliö lángt frá eik-
inni.
Börnin eru Ormar Þór arkitekt, hans
kona þýskættuö. Geröa Bima fegrunar-
sérfræöingur maður Danlel Guðnason
læknir. Björn Þ. lögmaður kona Þórunn
Bragadóttir. Asgeir fulltrúi bæjarfógeta
hljómsveitarstjóri með fleiru kona Frfða
Ragnarsdóttir og Atli Freyr hagfræöingur
hans kona er af pólskum ættum,jarö-
fræðingur aö mennt.
Tveir synir Geröu og Danlels voru hjá
Kveðja frá Tímanum
Guðmundur Björnsson á Akra-
nesi hefur um áratuga skeið verið
einn ötulasti velgerðarmaður Tirn-
ans. Hann hefur verið umboðsmað-
ur blaðsins i sinu byggðarlagi og
jafnframt fréttaritari þess.
Að þessum störfum hefur hann
unnið af alkunnum dugnaði og
áhuga enda ekki I eðli mannsins að
taka neinum vettlingatökum það,
sem hann á annað borð tekur sér
fyrir hendur. Eins og góðum um-
boðsmanni og fréttaritara sæmir,
ber hann jafnt fyrir brjósti hag
blaðsins og kaupenda þess og hefur
aldrei legið á liði sínu við að leggja
sitt af mörkum til blaðsins né við að
koma þvi samviskusamlega til
kaupenda.
A áttræðisafmæli Guömundar
Björnssonar sendir Timinn honum
árnaðaróskir og starfsmenn blaðs-
ins þakka honum langt og ánægju-
legt samstarf.
ÁRNAÐ HEILLA