Íslendingaþættir Tímans - 24.03.1982, Page 2

Íslendingaþættir Tímans - 24.03.1982, Page 2
Baldur Kristinsson Fæddur 22. desember 1932 Dáinn 4. mars 1982 Baldur var Vestfirðingur að uppruna og sleit barnsskónum i Haukadal i Dýrafirði. Foreldrar voru Daðina Guðjónsdóttir og Kristinn Eliasson trésmiður. Baldur var næst yngstur fimm systkina, en faðir þeirra lést árið 1945 og fluttist þá fjölskyldan ti) Reykjavikur. Baldur hóf nám i vélvirkjun hér i Reykjavik og lauk sveinsprófi 1955. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Viktoriu Hólm Gunnarsd. 9. júni 1957 og eru börn þeirra 6. Gunnar fæddur 1957 kvæntur Ingigerði Gunnarsdóttur, Iris fædd 1958 gift Erni Hafsteinssyni, Erna fædd 1960 gift Smára Baldurssyni, Birna fædd 1961 og tvibura- systurnar Rut og Eva fæddar 1964, en þrjár yngstu dæturnar eru enn á heimili foreldra. Fyrstu kynni okkar Baldurs eru tengd okkar unga iþróttafélagi hér i hverfinu. Það var i svartasta skammdeginu nokkr- um dögum fyrir jól að Fylkir var með jólatréssölu hér i hverfinu en söluað- staðan var ekki glæsileg, óupphitaður skúrgarmur og ljós af skornum skammti, en úti nepjukaldi og frost. Synir okkar Baldurs þá báðir innan við fermingu önnuðust söluna, og að sjálfsögðu voru þeir ekki sáttir við þessa vinnuaðstöðu og settu fram kvörtun við formann félagsins. Ég varð að sjálfsögðu að bregðast við þessum sanngjörnu kröfum á jákvæðan hátt, en hver var lausnin. Mitt í þessum raunum birtist maður og býður aðs*oð sina, sem vel var þegin, og innan stundar var jólatrésskógurinn orðinn uppljóm- aður og nú dreif kaupendur að úr öllum áttum. Þetta atvik hefur oft komið upp I hug- ann er við Baldur höfum orðið að vinna saman á félagssviðinu, og raunar finnst mér það dæmigert um viðbrögð og starfs- hætti Baldurs. Hann gekk að hverju verki með þeim ásetningi að ljúka þvi hafandi að leiðarljósi, að erfiðleikar og mótlæti væri eðlilegur fylgifiskur, sem þyrfti að sigrast á, en ekki að mikla fyrir sér. Það okkur hjónum sumardrengir i sveitinni, góöir drengir af öllum vinsælir tryggðar- vinir. Það mátti segja að vera þeirra hafi orðið til að auka kynnin við þetta ágæta fólk sem reynst hefur okkur með af- brigðum vel. Þau Daniel og Gerða hafa svo sannarlega margsinnis séð við okkur greiðann ef greiða skyldi kalla. Þau gömlu hjónin kunnu einnig vel að meta það að kona min varð .við bón gamla mannsins og lofaði þessum prúðu piltum aö koma til okkar. Sjálfir voru þeir ungu mennirnir fullir af áhuga fyrir þessu nýja umhverfi, sem alltiðaöi af lifi og fjörihvert sem litið var. Það var sannarlega gaman að hafa slikt fólk i návist sinni. Við þetta tækifæri færum við hjónin og fjölskylda okkar öllum þessum vinum okkar bestu þakkir fyrir okkur sýndan vinahug, greiövikni og ómetanlega tryggö og vináttu. Afmælisbarninu, konu hans og fjöi- skyldu færum viö hjartansóskir með merk timamót i lifi okkar kæra vinar Guðmundar Björnssonar. Megi hjarta- góðar heilladisir visa áttræðum heiðurs- manni veginn hér eftir sem hingað til. Valgarftur L. Jónsson f.v. bóndi á Eystra-Miftfelli Opift bréf meft afmæliskveftjum. Sæll og blessaður, Guðmundur minn. Það má nú varla minna vera en við hjónin sendum þér bestu kveðjur okkar i tilefni dagsins. Við vildum nú kannske öll, að við vær- um þess umkomin aö geta dregið ögn úr 2 hraða timans, en enginn gengur eins hljóðlega um garða og hann, og við verð- um þess ekki vör, fyrr en löngu eftir, að hann er farinn hjá. Það eru þvi miðúr ekki allir, eins og þú, sem geta fagnað þvi láni, að verða áttræð- ir, án þess að þeim blási nös. A llfsferli þinum hefir þú, Guðmundur, reynst liðtækur félagi i hinum ýmsu fé- lagasamtökum, þar sem þú hefur komið við sögu. Má þar til nefna Kennarasam- tökin, Húnvetningafélagið, Norræna fé- lagið og ekki sist i félagssamtökum Framsóknarflokksins, þar sem ég held, að þér hafi aldrei verið brugðið um vinstri villu. 1 öllum þessum félögum hefur þú hlotið viðurkenningu fyrir störf þin, enda ert þú málafylgjumaður góður og ræðumaður mikill, talar og skrifar tilgerðarlaust og hreint islenskt mál og nú nýverið hlotið þjóðar viðurkenningu fyrir störf þin að fé- lagsmálum. Ættrækni og ræktarsemi við þér tengda og frændalið er þér i blóð borin og annt bernskustöðvum þinum norður i Miðfirði af heilum hug, en bernskuheimili þitt var Núpsdalstunga, þar i sveit, en þangað hvarflar hugur þinn löngum og oft veit ég til, að þú hefir lagt land undir fót um sveitina þina. Slik er ræktarsemi þin við þinar bernskustöövar og fólkið, sem þú ólst upp með i æsku. Þá er ég löngum minnugur þeirrar um- hyggju og velvildar, sem þú sýndir jafnan tengdamóður þinni, en móður minni, alla tið, enda mathún þig mikils. Af þessu öllu má lika að nokkru þekkja manninn. Þú hefur verið mikill lánsmaður i öllu þinu lifi og starfi, virtur og vel metinn borgari, sem tekiðhefir þáttí að móta samtið þina, slikir sem þú, setja jafnan svip á sitt um- hverfi. Eftirminnanlegastur ætla ég þó, að þú verðir afkomendum þinum, sem hinn si- vökuli ættarhöfðingi yfir velferð og ham- ingju sinna nánustu. Það kæmi mér ekki á óvart, þegar þú nú, mágur minn, stendur á áttræðu og lit- ur til baka yfir farinn veg, að þér muni verða efst i huga, þökk til lifsins fyrir alla þá hamingju, sem disirnar færðu þér i vöggugjöf. En þú átt þér fleiri hamingjudisir, en þær sem þú hlaust i vöggugjöf. Eiginkonu þinni, Pálinu Þorsteinsdóttur, mátt þú ekki siður þakka, þinn hamingjuferil, þannig hefir lif ykkar fallið i einn og sama farveg. Ég er ekki í nokkrum vafa um, að enn bíða þin ótaldir hamingjudagar. Þér hefur lærst að njóta lifsins og gleymir þá jafnan aldri og árum og finnur þig ekki eldri en þú vilt vera. Við hjón höfum mikla ánægju af að senda þér okkar bestu og innilegustu heillaóskir á merkisdegi þessum, svo dáð- ur, sem þú hefur jafnan verið af konu minni allt frá fyrstu kynnum, en meina- laust i millum okkar mága. Þessari kveðju fylgir ekki upptalning ættfeðraeða afkomenda, þvi að maðurinn er fyrst og fremst það, sem hann er af sjálfum sér. 24. mars 1982 i Stóragerfti Halldór Þorsteinsson Guðmundur tekur á móti gestum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar að Sævar- landi 8, Reykjavik, milli kl. 4-7 i dag. íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.