Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Blaðsíða 6

Íslendingaþættir Tímans - 09.06.1982, Blaðsíða 6
Bjarni F. 24. apríl 1914 D. 21. maí 1982 Um nónbil föstudaginn 21. maí daginn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, hringdi Hlíf Bjarnadóttir heim til okkar og tilkynnti lát manns síns, Bjarna Þórðarsonar, ritstjóra og fyrrum bæjarstjóra í Neskaupstað. Bjarni hafði átt við mikil og erfið veikindi að stríða að undanförnu, svo að þessi fregn kom kannski ekki með öllu á óvart, en þó höfðu verið gefnar vonir um bata. Glöggt finn ég vanmátt minn við að minnast Bjarna Þórðarsonar sem verðugt væri, en þó vil ég í fáum orðum leiða hugann til þessa góða og trygglynda manns með virðingu og þökk fyrir samstarf og vináttu. Bjarni Steindór Þórðarson var fæddur á Kálfafelli í Suðursveit 24. apríl 1914. Foreldrar hans voru hjónin Matthildur Bjarnadóttir og Þórður Bergsveinsson. Bjarni var elstur fimm systkina. Er Bjarni var í frumbernsku fluttu foreldrar hans að Krossi á Berufjarðarströnd, og þar ólst Bjarni upp til 15 ára aldurs. Á Krossi var stundaður búskapur til lands og sjávar, og vann Bjarni öll störf, sem aldur og kraftar leyfðu. En skyndilega varð fjölskyldan fyrir miklu áfalli. Þórður, faðir Bjarna drukknaði ásamt fleiri mönnum af bát sínum skammt frá lendingunni á Krossi. Ekkja með fimm börn bjó ekki við nein sældarkjör á þéim tímum, engar trygging- abætur var um að ræða, og aðstæður allar erfiðar á landlitlum jarðarhluta. En Matthild- ur hóf hetjulega baráttu með hjálp eldri drengjanna og þá sérstaklega Bjarna, við að framfleyta fjölskyldunni. Með harðfylgi og þrautseigju tókst þeim að forða því, að fjölskyldunni yrði sundrað og hún Ienti á sveit. En það var ekki fátæktin ein, sem berjast þurfti við, heldur einnig langvarandi veikindi og sjúkrahússvist sumra systkin- anna. Ekki er ótrúlegt, að á þessum harðdrægu æskuárum á Krossi hafi vaknað með Bjarna sú samfélagslega kennd, er vill, að allir búi við öryggi og jafna aðstöðu í þjóðfélaginu, en berst gegn hverskonar óréttlæti og mismunun. Árið 1929 flutti fjölskyldan til Neskaupstaðar, sem einmitt þá var að fá kaupstaðarréttindi. Kannski eru þessir atburðir táknrænir fyrir það órofa samhengi, sem nær alla tíð siðan rikti milli sögu Neskaupstaðar og sögu Bjarna Þórðarsonar. Þá sögu verður að skrá. í Neskaupstað tók Bjarni fljótt þátt í starfsemi Verkalýðsfélags Norðfirðinga og starfi Kommúnistaflokksins, og varð einn helsti forustumaður þess flokks í Neskaup- stað og sfðar Sósíalistaflokksins og Alþýð- ubandalagsins. Bjarni varhugsjónakommún- 6 NG Þórðarson isti, sem átti þá list til að bera að geta samræmt hugsjónina veruleika liðandi stundar. Hann var maður framkvæmda og framfara. Hann var fjarri því að vera hvítflibbakommi, stóð ætíð með báða fætur á jörðu niðri - í raunveruleika samfélagsins - en missti þó aldrei sjónar á hugsjóninni og hafði hana að leiðarljósi i öliu starfi sínu og lífi. Bjarni átti sæti i bæjarstjórn Neskaupstað- ar um 40 ára skeið og sat fleiri bæjarstjórnar- og bæjarráðsfundi en nokkur annar hefir gert til þessa i Neskaupstað. Hann var bæjarstjóri í Neskaupstað í nær 24 ár, fyrst um tíma 1946 og svo óslitið frá 1950 til miðs árs 1973. Hann hafði afgerandi áhrif á mótun bæjarmálefna í Neskaupstað allan þennan tíma eða í fjóra áratugi, og verka hans til framfara og heilla fyrir bæjarfélagið sér víða stað. Um þennan þátt i lífi og starfi Bjarna Þórðarsonar munu aðrir fjalla betur en ég, og hefi ég því ekki fleiri orð þar um nú. Ekki naut Bjarni langrar skó'.agöngu, langskólanám hefði þó reynst honum auðvelt viðfangs, en aðstæðurnar leyfðu ekki slíkt. Barnafræðslu hlaut hann á Berufjarðar- strönd, og í Neskaupstað var hann í unglingaskóla. En sjálfsnám Bjarna var mikið og víðtækt. Hann var sérlega vel að sér í íslenskri tungu og bókmenntum, einnig í lögfræði og sögu, og þekking hans á sveitarstjórnarmálum og stjórnsýslu var mikil og aðdáunarverð. Hann átti mörg áhugamál og þá sérstaklega ættfræði, sögu og fornleifafræði, kynnti sér þessi málefni af gaumgæfni og skrifaði mikið um þau. Bjarni var sérlega vel máli farinn og ritfær. Hann var áheyrilegur og snjall ræðumaður og ritaði hvassan og meitlaðan stfl. Skriftir og blaðaútgáfa voru snar þáttur í lífi Bjarna Þórðarsonar, og þó að þau störf væru nær alla tið unnin i tómstundum, bera þau vitni um handbragð atvinnumannsins, hvernig sem á er litið. í þágu sósíaliskrar hreyfingar gaf hann út og ritstýrði fjölritúðu blöðunum Uppreisn, Lýð og Árbliki og svo Austurlandi, sem fljótlega kom út sem prentað blað, er Bjarni hafði komið á fót prentsmiðju í Neskaup- stað. Vikublaðið Austurland hefir komið út óslitið síðan 1951 og var Bjarni ritstjóri þess alla tíð að undanskildum árunum 1979 og 1980, en þá var ráðinn launaður ritstjóri við blaðið. Bjarni var þá bankagjaldkeri > Neskaupstað og hafði gegnt því starfi frá 1974 að mig minnir. Útgáfa Austurlands hvíldi alla tíð á Bjarna fyrst og fremst og lengi framan af á honum einum bæði hvað vinnu snerti og eins að kosta útgáfuna, því að lengst af var halli á henni. Slíkt hugsjónastarf er sjaldgæft, en er einkennandi fyrir Bjarna og lýsir honum mjög vel. Bjarni Þórðarson var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Anna J. Eiríksdóttir, en hún lést 1975. Þau áttu tvo syni, Eirík sem var kvæntur og bjó á Eskifirði og átti tvö börn, en fórst með bát sinum ásamt fleiri mönnum í m; ókv Skriftir og blaðaútgáfa voru snar þáttur i lifi Bjarna Þórðarsonar, og þó að þau störf væru nær alla tið unnin i tómstundum, bera þau vitni um handbragð atvinnumannsins, hvernig sem á er litið. í þágu sósíaliskrar hreyfingar gaf hann út og ritstýrði fjölrituðu blöðunum Uppreisn, Lýð og Árbliki og svo Austurlandi, sem fljótlega kom út sem prentað blað, er Bjarm hafði komið á fót prentsmiðju i Neskaup- stað. Vikublaðið Austurland hefir komið út óslitið síðan 1951 og var Bjarni ritstjóri þess alla tíð að undanskildum árunum 1979 og 1980, en þá var ráðinn launaður ritstjóri við blaðið. Bjarni var þá bankagjaldkeri J Neskaupstað og hafði gegnt því starfi frá 1974 að mig minnir. Útgáfa Austurlands hvíldi alla tíð á Bjarna fyrst og fremst og lengi framan af á honum einum bæði hvað vinnu snerti og eins að kosta útgáfuna, því að lengst af var halli á henni. Slfkt hugsjónastarf er sjaldgæft, en er íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.