Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 1

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 1
ISLENDINGAÞJETTIR Miövikudagur 8. febrúar 1984 — 6. tbl. TIMANS Egill Egilsson Króki, Biskupstungum Fæddur 14. júlí 1898 Dáinn 9. jan. 1984 Egill á Króki var fæddur að Þverá á Síðu í Vestur Skaftafellssýslu, þar á Síðunni bjuggu foreldrar' hans ásamt foreldrum sínum og bræðrum. Þar sem fjölskyldan var stór en land- þrengsli niikil og erfitt að afla heyja, var leitað til Sigurðar Ólafssonar sýslumanns frá Hjálmholti, en hann hafði verið sýslumaður Skaftfellinga og kynnst fólkinu í Hörgslandskoti og Þverá, sem meðal annars varð til þess, að Jóhanna föðursystir Egils, fór í vist til Sigurðar sýslumanns í Kaldað- arnesi. En Jóhanna varð síðar landskunn af framgangi sfnum í verkalýðsmálum. Sigurður í Kaldaðanesi leitaði til séra Magnúsar Helgasonar á Torfastöðum um jarðnæði í Biskupstungunt fyrir fólkið í Hörgslandskoti og kusu þeir feðgar að taka jörðina Galtalæk í.Bræðratunguhverfi, en henni fylgdu afbragðs slægjulönd í Pollengi. , 26. júní 1899 lagði síðan fjölskyldan af stað austan af Síðu, bræður þrír, Egill, Guðmundur og Dagbjartur, allir nýlega kvæntir, ásamt eiginkon- um, öldruðum foreldrum og fjórum börnum þeirra bræðra, 3 börn Guðntundar og Egill eins árs gamall, fyrsta barn Egils Egilssonar og Stein- unnar Guðlaugsdóttur. Reiddi móðir hans hann fyrir framan sig. Tók þessi ferð 11 sólarhringa, þar af voru þau fjóra sólarhringa í tjaldi við Kúðafljót á meðan sjatnaði í ánni eftir rigningar. Það má því segja að snemma fengi Egill að takast á við fljótin. Á Galtalæk byrjaði svo þessi samhenta fjöl- skylda nýtt líf með bjartar vonir og þar fæddust foreldrum Egils 7 börn í viðbót. Þeir Guðmundur og Dagbjartur föðurbræður Égils fengu sér síðan aðrar jarðir, fór Guðmundur'að Borgarholti en Dagbjartur að Auðsholti. Þó þröngt væri í búi á Galtalæk fyrstu árin rættist ótrúlega fljótt úr nteð efnahaginn og um það bil sem Egill flytur úr foreldrahúsum og hefur sjálfstæðan búskap er heimilið á Galtalæk talið með efnuðustu heimilum hér í sveit. Egill hóf búskap á Krók 1923 og árið 1925 kvænist hann Þórdísi Ivarsdóttúr frá Norðurkoti í Grímsnesi. Jörðin er næsta jörð til norðurs frá Galtalæk. Lengst af búskap Egils vpru þær með óskipt beitiland en jörðum Bræðratunguhvcrfis var skipt 1958. 1 Bændur i Tunguhverfi höfðu mikil og náin samskifti lengst af búskap Egils þar sem búfénaður þeirra gekk saman, annað kom líka til, jarðirnar voru ekki í neinu vegasambandi og þó Tungufljót væri brúað 1929 var enginn vegur fram í Tungu- hverfi fyrr en upp úr 1950. Allir aðdrættir stórir og smáir þurftu að fara yfir Tungufljót á ferjunni hjá Krók en þar var lengst af lögferja og þar er mér fyrst Egill minnistæður er ég ungur drengur fór um með mjólkurbíl á leiðinni í barnaskólann. Egill var jajrian, ef eitthvað erfitt var, sjálfur við ferjuna, angdofa horfði ég á er hann berhöfðaður í éljaútsynningi hratt bátnum út í kófið og lagðist á árar, báturinn drekkhlaðinn af mjólkurbrúsum og öllu öðru sem búin þurftu við. Ferjumanninum fötuðust ekki handtökin hvorki í það sinn er ég fyrst horfði á hánn á Fljótinu, né seinna, þp oft kæmist hann í hann krappan og stundum farið yfir meira af keppi en forsjá. • Þau Egill og Þórdfs eignuðust 5 börn: Þuríði, gift í Kópavogi. Steinunni er lést 19 ára. Egill, giftur á Selfossi. ívar Grétar, giftur í Kópavogi. Jóna Kristín, gift og býr á Ósbakka á Skeiðum. Hjá þeim hjónum ólst upp að mcstu dóttursonur þeirra Unnsteinn Egill giftur í Garði og Magnús Heimir frændi Egils er kom að Króki tvcggja ára, nú giftur Margréti Baldursdóttur frá Kirkjuferju í Ölfusi og hafa þau búið á Krók frá 1977. Einnig hafa tvær dætur Jónu alist þar upp að miklu leyti og ásamt dætrum Heimis og Margrétar verið augasteinar afa síns í ellinni, en Egill var mikill barnavinur. Þó jörðin Krókur sé ekki stór er hún grasgefin og engjalönd voru góð á bökkum Tungufljóts. Á Krók búnaðist þeim hjónum vel, byggt var stórt og myndarlegt íbúðarhús 1962 og kom sér þá að fjölskyldan var samhent og þó bömin væru farin að heiman komu þau, er hjálpar þurfti við, eins voru útihús byggð og ræktað mest allt það land sem hægt var að rækta. Egill var góður bórjdi, meðal gripa sinna naut hann sín best. Hann fóðraði allar skepnur af kostgæfni og var einna fyrstur manna hér í sveit ,til að fóðra ær sínar til hámarksafurða. Þeim fækkar nú óðum bændum hér sem fæddir voru á öldinni sem leið. Þeirsöfnuðu kannskiekki fé í erlenda banka en' þeir settu gull sitt í uppbyggingu jarðanna og sveitanna. Þeir máttu muna tímana tvenna frá því að standa illa búnir við slátt út á blautum mýrum, til þess að aka 1 velbúpum dráttarvélum eftir uppþurrkuðum rækt- uðum löndum. Egill var einn þessara bænda sem sá jörðina sem hann tók við, lítið kotbýli, breytast í góðbýli í sambýli við frænda sinn oguppeldisson, þar átti hann gott æfikvöld. Tómas Guðmundsson segir svo í Fljótinu helga, á einum stað. Og ég er einn, og.elfarniðinn ber að Eyrum mér jafn róll sem fyrsta sinni. Með skynjun tveggja heima í hjarta mér ég hverf á brott úr rökkurveröld minni. Og seinna þegar ntildur morgun skín á mannheim, þar sem sálir stríð sitt heyja, mig skelfa engin sköp, sem bíða mín: Þá skil ég líka að það er gott að deyja. Egill var lagður til hvílu í Bræðratungukirkju- garði 14. janúar síðastliðinn og þó veður væri nokkuð svalt fylgdu honum síðasta spölinn stór hópur vina og vandamanna. Ég bið ástvinum hans öllum blessunar. Björn Sigurðsson

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.