Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Síða 2

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Síða 2
t Elsku afi minn. Ég vil þakka þér fyrir alla þá handleiðslu og þolinmæði sem þú sýndir mér, litlu barni, þegar ég var í sveitinni hjá ykkur ömmu. Pú varst alltaf boðinn og búinn til að hafa mig með þér, þegar þú fórst til kinda og annað og óþreytandi að svara mínum spurningum um lífið og tilveruna scm oft voru erfiðar og barnalegar. Ég á ógleymanlegar minningar um sveitaveru mína hjá ykkur ömmu. Ég var sex ára þegar ég kom til að vera heilt sumar. Svo vel líkaði mér hjá ykkur að ég kom næstu sex sumur að Króki og hafði mikið gagn af. Elsku afi minn ég þakka þér fyrir allt gott og man vel vísuna sem þú sendir mér á fermingardaginn minn. Trúðu á tvennt í heimi tign sem xðsta ber. Guð í alheims geimi Guð í sjálfum þér. Elsku afi minn, Guð geymi þig og veri okkur ættingjum og vinum hjálpsamur. Þín dótturdóttir Unna. t Laugardaginn 14. janúar var til moldar borinn í Bræðratungukirkjugarði elskulegur faðir minn Egill Egilsson fyrrum bóndi á Króki, en þar hafði hann lifað og starfað öll sín manndómsár, eða frá 1923 er hann gerðist þar bústjóri eða ráðsmaður fyrir föður sinn Egil bónda á Galtalæk er hafði fengið Krókinn til ábúðar auk sinnar eigin jarðar. Þar munu þrjú elstu börn afa míns á Galtalæk hafa stundað fjárgæslu og búskap til 1925 að faðir minn festir ráð sitt og gengur að eiga eftirlifandi konu sína Þórdísi ívarsdóttur sem hafði alist upp í Norðurkoti í Grímsnesi. Þá fær hann Krókinn í ábuð og þar búa foreldrar mínir í rúm fimmtíu ár eða til ársins 1977 að fóstursonur þeirra Magnús Heimir Jóhannesson tekur við búskapnum. Enn áfram eru gömlu hjónin sjálfra sín á neðri hæð íbúðarhússins á Króki, og njóta þess í ellinni að sjá nýja kynslóð vaxa úr grasi. Pabbi minn var með fádæmum barngóður maður, og það er ýkjulaust þó eg segi að öll Iftil börn bæði vandalaus og skyld hafi hænst að honum. Það var sár söknuður barnabarnanna hans sem sáu á bak elskulegum afa, og mín börn, sem öll eru uppkomin vilja þakka honum afa fyrir allt sem hann var þeim og gerði fyrir þau. Þegar ég lít yftr farinn veg, er margs að mínnast, ég man föður minn sem ferjumanninnn er alltaf var til reiðu með litla bátinn sinn þegar einhver þurfti að komast yfir Tungufljót, en á Króki var lögferja um áraraðir, mér er ekki kunnugt hvenær það hófst en það var mestan búskap föður míns og löngu áður. Þetta hefur nú verið nokkur kvöð á þeim bónda er á Króki bjó, það var sama hvernig á sfoð. þessu kalli varð að sinna sumar og vetur. Já vetur, mér er hann minnistæður í frosti og jakaskriði dragandi bátinn fullan af mjólkurbrús- um og öðrum flutningi, því oft voru sandeyrar á þeirri leið sem fara þurfti yfir, þá óð hann oft í mitti. Maður getur hugsað sér þann skelfilega kulda og þá miklu þrekraun sem þetta hefur verið. Sem barn og unglingur horfði ég á þetta með skelfingu. Nú þekkist þetta ekki lengur við Tungufljótið mitt fagra, sem líður oft í lygnum straumi milli grænna bakka sem eru svo gjöfulir á gott kindafóður með vallendi og smávíði. Þetta kunni faðir minn að meta, því sauðféð var hans yndi, ogþví var gaman að gefa ilmandi baggahey. Þar man ég pabba minn síðast við slátt með orf og Ijá, það heyvinnutæki er nú eitt af því sem heyrir fortíðinni til, nú er ekkert slegið nema með vélum. Við fjárskiptin sem urðu, þegar öllu fé var slátrað, vegna mæðiveiki, var hann svo lánsamur að fá lömb úr Bárðardal, frá Sigurðarstöðum mestmegnis. Þetta voru mannelskar og gullfalleg- ar gimbrar, sem urðu í miklu afhaldi hjá bóndan- um Agli. Bárðdælingarnir, sem hann kallaði svo, reyndust afurðasælar í hans meðferð, voru nær alltaf með tvö lömb, enda sagði hann oft eitt lamb aðeins borga kostnað við ána, tvö gefa nokkurn arð. Pabbi minn var fjárglöggur og lagði mikið upp úr að forðast skyldleikaræktun, sagði galla í ætt gjarnasta og valdi líflömb af kostgæfni. Enda held ég, að hann hafi fengið alla sína alúð og natni við ærnar margborgaðar. Fjallaferðir á afrétt vor og haust var það sem árvíst var í lífi einyrkjabóndans, þeirra naut faðir minn í ríkum mæli. Þessum þó oft svaðilförum, í glímu við óbrúaðar stór ár og oft, illviðri á reginfjöllum. Til þessara ferða hlakkaði hann takmarkalaust í hópi góðra vina og nágranna. Þcir voru fjármargir sumir bændur í Tunguhverfi og það var fallegur hópur sem fór til fjalls og kom aftur að hausti. Yndi bóndans í blíðu og striðu. Mér var vel kunnugt um ást hans á Tungna- mannaafrétti, fegurð fjalla og hrikaleik, sand- auðna með geldingahnapp og holurt, grasgeira og melöldur. Allt þetta vakti honum yndi og öðrum fremur var hann kunnugur öllum örnefnum þar innfrá. Hann fór mjög ungur fyrst til fjalls með sér miklu eldri mönnum sem gjörþekktu alla staðhætti og örnefni. Pabbi var stálminnugur og eftirtektar- samur, og mér er kunnugt um að fræðimenn um örnefni hafa haft samband við hann hin síðari ár. Nokkru áður en hann veiktist, dreymdi hann draum, þótti honum sem hann væri á leið til fjalls ríðandi hesti, bleikum að lit. Fór sá á kostum sem vakti furðu föður míns, því vel þekkti hann hestinn og vissi hver átti, en að hann væri gæðingur kom honum mjög á óvart. allt í einu þykist hann kominn í Fremstaver, er þar allt baðað í lita- og geisladýrð svo undur fallegu að ekki verður lýst með orðum, enga sá hann sól, aðeins þessa dásamlegu fegurð. Æðrulaus vissi hann að hverju dró, og tii hinstu stundar hélt hann sinni sálarró. tók á móti öllum sem komu til hans á sjúkrahúsið með glaðværð og spaugsyrðum. Fæsta gat órað fyrir að hann væri svona sjúkur sem raun bar vitni. Þeim fer ört fækkandi gömlu bændunum í Biskupstungum, þrír eru farnir nú með skömmu millibili, allir nágrannar og ferðafélagar í gegnum áratugi. Nú síðast besti vinur og nágranni föður míns, Jóhannes Jónsson í Ásakoti. Það munu vera 17 dagar milli dauða þeirra. Svona er lífsins gangur, tveir aldurhnignir menn sem lifað hafa mestu breytingartíma í sögu íslensku þjóðarinnar. Barist við fátækt og allsleysi kreppuáranna í byrjun síns búskapar, til velmegunar og allsnægta hins nægjusama manns, sem metur gróður jarðar mest af öllu. Aldrei mun ég gleyma fögrum sumardegi í sveitinni minni kæru fyrir nokkrum árum, þegar ég var í heimsókn hjá foreldrum mínum og pabbi sagðist ætla að sýna mér sína paradís. Við gengum yfir margar nýræktir að stóru óræktuðu stykki milli skurða. Við ræddum margt saman eins og æfinlega, um trúmál í þetta sinn og andleg efni sem við gerðum oft, sagðist hann verða alsæll ef hann fyndi svo yndislegan blett í eilífðinni. Ég beið í ofvæni að sjá þetta, og þvílík undur. Blagresi, mjaðjurt, fjalldalafífill og þúsundir alls- konar blóma og grasa, ilmandi reyrgras og hvönn, allt í fegurð og þroska, eins og það getur aðeins verið, þar sem engin húsdýr ná til að granda því. Þvílík paradís. Svona er tilfinning bóndans til jarðarinnar sem hann yrkir og ann. Nú er þessi blómareitur orðinn að ræktuðu túni, allt er ræktað til nytja sem hægt er, á því byggist Iíf hins íslenska bónda. Ósk mín er sú að frændi minn og uppeldisbróðir, sem tekið hefur við búi föður míns og annast af miklum dugnaði, fái notið þess sem best og lengst. Ég veit að foreldrum mínum var mikil gleði að sjá það dafna og blómgast í ungum höndum. Mér er efst í huga á þessari stundu, þakklæti til skapara míns fyrir þá gæfu, að hafa svo lengi notið samvista við minn elskulega föður. Nú er hann aftur kominn heim í sveitina sína, sem hann unni svo mjög, og til hinstu hvíldar við hlið dóttur sinnar sem burt.var kölluð í blóma lífsins. Ég trúi því að hún hafi tekið á móti honum á ódáinslandi, það veit ég að hann vonaði svo einlæglega, og trúin megnar allt. Megi alfaðir vernda þig og blessa elsku pabbi minn og leiða þig um eilífðar lönd. Hafðu hjartans þökk fyrir allt. Þuríður Egilsdóttir. Þeir sem skrifa minningar- eða afmœlisgreinar í íslendingaþœ t ti, eru vinsamlegast beðnir um að skila vélrituðum handritum 2 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.