Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 9

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 9
Sigurbjörg Björnsdóttir húsfreyja frá Deildartungu Hinn 12. janúar lést Sigurbjörg Bjórnsdóttir, húsfrcyja frá Deildartungu á Sjúkrahúsinu á Akranesi 97 ára. Með henni er gengin ein af merkiskonum þessarar þjóðar, sem skilur að baki sér mikið starf og hugljúfar minningar hjá öllum, sem áttu því láni að fagna að þekkja hana. Sigurbjörg fæddist hinn 18. nóvember 1886 á Löngumýri í Seyluhreppi í Skagafirði. Móðir hennar var ógift vinnukona, Soffía Guðbjörg Björnsdóttir bónda á Keldum í Fcllshreppi og víðar Gíslasonar, en faðirinn Björn Bjarnason, þá bóndi á Löngumýri en lengst að Brekku í Seyluhreppi, þá ekkjumaður. en átti son með fyrri konu sinni, Margréti Andrésdóttur frá Stokk- hólma, Andrés Björnsson, skáld. Ekki tókst ráðahagur með foreldrum Sigurbjargar, en barnið fylgdi ntóðui sinni. Vorið 1888 hóf Soffía Guð- björg búskap að Tyrfingsstöðum í Akrahrcppi þá með dóttur sína á öðru ári. Hún réði þá til sín ráðsmann Stefán Pétur Magnússon og giftist honum 16. desember það ár. Næsta vor fluttist fjölskyldan búferlum að Sólheimagerði í sömu sveit og bjó þar til 1906. Þau hjón eignuðust 4 börn á árunum 1889 til 1897: Svcin Jósef. Karólínu, Guðbjörgu og Arnberg. Með þessum hálfsystkina- hópi ólst Sigurbjörg upp, en var þó tíma og tíma hjá föður sínum og kynntist þar hálfsystkinum sínunt af tveimur hjónaböndum hans. Auk And- résar skálds, sem áður getur, sem var aðeins þremur árum eldri en Sigurbjörg, voru 7 börn Björns og síðari konu hans Ingibjargar Stefaníu Ólafsdóttur, 6 systur og 1 bróðir. eítir aldursröð þessi: Margrét. Sigurlína. Kristín. Anna. Jórunn. Sigurlaug og Andrés yngri. nú útvarpsstjóri. Sigurbjörg vandist frá blautu barnsbeini hvers- konar vinnu bæði utanhúss og innan. Hún var bráðgjör, strax flugnæm og fróðleiksfús og naut þess þrátt fyrir takmarkaðan veraldarauð að alast upp í menningarhéraði. þar sem lífsgleði og ást á sýslunnar af miklum dugnaði og rausnarskap og Halldór nú reist þar annað íbúðarhús. Ekki cr annað að sjá en það starf sem hafið var af þeim Guðmundi og Soffíu fvrir tæpum fjörutíu árum verði fram haldið af afkomendum þeirra uin ókomna tíð. Með tryggd til máls og muwnt á mátt liins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi í œðri stjórnar Itendi. er þad sem eitt í hug þú barst. En.B. Þegár góðir búhöldar og sæmdarmenn hverfa á braut, verður skarð fyrir skildi og söknuður. en ÍSLENDINGAÞÆTTIR Ijóðum og bókmenntum sat í öndvegi ekki aðeins hjá þeim sem meira máttu sín heldur einnig hjá öllurn fjöldanum. Á bernskuárum Sigurbjargar var engin skólaskylda barna hér á landi. Heimilin sáu um uppfræðsluna undir umsjón sóknarprests- ins. Víða réðu betur mcgandi bændur heimilis- kennara handa börnum sínum og granna sinna. Slíkrar kennslu naut Sigurbjörg og gat sér strax álit kennarans fyrir frábærar gáfur. Séra Björn Jónsson á Miklabæ bjó Sigurbjörgu undir ferm- ingu og fermdi hana. Næstu scx árin líða við venjuleg störf á heimaslóðum og lestur þeirra bóka, sem völ var á. Neyðarvorið 1906 urðu þær eftir verður nrinningin. Ég þakka samfylgdina á liðnumárum. Fjölskyldunnivottaégsamúðmína. Ingvar Þorleifsson. breytingar á högunt fjölskyldunnar í Sólheima- gcrði að hjónin Stefán stjúpi Sigurbjargar og móðir hennar neyðast til að bregða búi og fara í húsmennsku með yngstu börnin. en hin eldri til vinnu hvar sem hana var að fá. Ekki dró þetta áfall kjark úr Sigurbjörgu Björnsdóttur. Hún mun hafa frá bernskuárum ætlað sér að afla sér meiri menntunar en þeirrar sem hún fékk fyrir fermingu og haldið vcl saman þcim fáu krónum, sem hún vann sér inn með hörðum höndum. Haustið 1906 innritaðist hún í hinn velmetna lýðskóla á Hvítárbakka í Borgarfirði. Þar stundar hún nám í tvo vetur mcö ágætum árangri og brautskráðist þaðan vorið 1908. Næstu fjóra vetur sjundar Sigurbjörg barnakennslu í Skagafirði, sem far- kennari í Lýtingsstaðahreppi 1908-'09 og í Seylu- hrcppi 1911-' 12. cn hina veturna sem heimilis- kennari meðal annars hjá föður sínum og síðari konu hans í Brekku. Kenndi hún þar systrum sínum, sem aldur höfðu til þess. Næsta ár verður brevting á högum Sigurbjargar Björnsdóttur. Hinn 10. maí 1913 gengur hún í hjónaband nteð mikilhæfum Borgfirðingi, Jóni Hanncssyni í Dcildartungu og tckur það vor við húsfreyjustarfinu á því sögufræga höfuðbóli, þar sem mannsaldri áður tóku við búsforráðum ung hjón af einhverjum sterkustu ættum Borgarfjarð- ar, þau Vigdís Jónsdóttir af Deildartunguætt og Hannes Magnússon af Vilmundarstaðaætt. Þau Vigdís og Hanncs héldu ckki aðeins uppi hróðri Deildartungu heldur juku hann stórum ekki mirinst eftir að börn þeirra er upp komust, náðu þroska, 2 synir Magnús elstur f. 1875 og Jón yngstur fæddur 15. desember 1885 og 5 systur Ástríður f. 1876. Helga f. 1878. Guðrún f. 1881, Vigdís f. 1882 og Hallfríður f. 1884. Þessi systkinahópur stóð að gjörfileika og mannkostum í hópi leiöandi ungmenna aldamótakynslóðarinn- ar í Borgarfjarðarhéraði. Létu þau mjög að sér kveða í félagsmálum þeirra tíma svo sent í Ungmennafélögunum. samvinnuhreyfingunni. skólamálum og hverskonar framfaramálum varð- andi búskap og menningu yfirleitt. Tvö elstu systkinin létust ung, Magnús 1893 og Ástrfður 1905., en hin Itéldu hátt hróðri ættar sinnar og héraðs í meirihluta aldar. Hannes Magnússon, bóndi í Dcildartungu lést 28. septcmber 1903. langt um aldur fram. Vetur- inn áður hafði Jón Hannesson. stundað nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri meö góðum ár- angri. Við fráfall föður síns fannst honum hann \erða að taka við bústjórn hjá móður sinni og hvarf þá frá námi um árabil. Aðcins 18 ára tekur Jón við bústjórn á stórhýlinu en hann stóð ekki einn. Móðir hans Vigdís var annáluð búkona í senn hagsýn, duglcg og drenglunduð og systur hans hver annarri duglegri. enda búnaðist vel og stöðugt var unnið að umbótum. scm að vísu miðaði hægt ntiðað við nútíma hraða, cnda allt unnið með þátíma vinnuaðfcrðum. Jón vissi að 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.