Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Page 11

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Page 11
Halldór Þorsteinsson vélvirki Fæddur 23. júli 1912 Dáinn 11. deseinber 1983 Vinur minn og frændi. Halldór Þorstcinsson lést á Landspítalanum hinn 11. des. síðast liðinn. Foreldrar hans vorú hjónin Þorsteinn Þorsteins- son Mýrmann frá Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu og Guðríður Guttormsdóttir frá Stöð í Stöðvar- firði, föðursýstir mín. Halldór var fæddur að Óseyri í Stöðvarfirði hinn 23. júlí 1912 en þar bjuggu foreldrar hans. Halldór ólst upp við hin hefðbundnu sveitastörf þess tíma; en síðar, um tvítugsaldur, stundaði hann sjó á bát föður síns. H<inn stundaði nám við Alþýðuskólann á Hvítárbakka veturinn 1930-31 og Hcraðsskólann í Reykholti 1931-32. Næstu vetur var Halldór farkennari á ýmsum.stöðum á landinu en settist síðan að á Akranesi þar sem hann átti heinta í aldarfjórðung. Hann stundaði nám við Iðnskólann á Akranesi og hlaut meistara- réttindi ívélvirkjun 1946ogpípulagningum 1952. Halldór tók mikinn þátt í félagsmálum á Akrancsi, var meðal annars formaður Iðnráðs Akraness og í stjórn Sósíalistafélagsins þar. Einnig má nefna að hann skrifaði greinar í ýmis blöð. Árið 1935 kvæntist Halldór eftirlifandi konu sinni, Rut Guðmundsdóttur frá Helgavatni í Þverárhlíð, en kynni þeirra hófust er þau voru saman við nám í Héraðsskólanum í Reykholti. Rut er dóttir sæmdarhjónanna Guðmundar Sig- urössonar og Önnu Ásniundsdóttur. Halldór og Rut fluttu til Kópavogs árið 1962 og bjuggu þar til ársins 1980 er þau fluttu til Reykjavíkur. Þau eignuðust tvo syni, hina mestu efnismenn Sigurð Rafnar og Birgi Ellert. Eins og sjá má, af því sem þegar er sagt lagði Halldór gjörva hönd á fjölbreytileg störf á lífsleiðinni — og eru þau þó ekki öll talin. Ég tel slíkt gæfu hverjum manni. Þeim sem kvnnast fáum störfum og fáu fólki hættir til að verða einsýnir og þröngsýnir. Hinir öðlast víðsýni og skilning. Þeir verða umburðarlyndir við þá er þeir mæta á lífsleiðinni. jafnt samherja sem andstæð- íDeildartungu til dauðadags, en eftir 85 ára aldur dvaldi hún lengst af í Reykjavík lengi í séríbúð á Ránargötu 6. þar sem dætur hennar bjuggu í annarri íbuð. en síðustu árin bjó hún með Soffíu dóttur sinni og Sigurbjörgu dóttur hennar á Kaplaskjólsvegi 65. Sigurbjörg naut ánægjulegrar elli umvafin ást barna sinna og tengdabarna. Hún var aldrei kvellisjúk á langri ævi. cn síðustu mánuðina þurtti hún þó sjúkrahúsyist. Sigurbjörg Björnsdóttir lést af ellihrörnun 12. janúar 1984 sátt við allt og alla. Af henni geislaði gáfum og góðvild alla ævi. Blessuð sé minning hennar. Halldór Pálsson. inga, þeir skilja og fyrirgefa, Halldór var í hópi þeirra síðarnefndu. Þótt stutt væri á milli heimila okkar Hálldórs í æsku beggja urðum við aldrei leikfélagar, til þess var aldursmunur of mikill. En það æxlaðist svo til að er ég var ellefu ára gamall gerðist Halldór lærifaðir okkar þriggja frændsystkina einn vetur á heimili foreldra minna. Er ég hugsa til þessa vetrar á námsferli mínum dáist ég að því hve mjúkum höndum hann tók á ýmsum brellum okkar og uppátækjum - við skynjuðum smán okkar þeim mun betur eftir á. Hann hafði sannarlega hið rétta skaplyndi til að umgangast börn og unglinga. Árin liöu. Eg yar við nám í Reykjavík en Halldór og Rut áttu heiina á Akranesi. Á þeim árum þótti það mikið fyrirtæki að fara í jöla- eða páskaleyfi austur á land. Það fór því svo að ég eignaðist mitt annað heimili á Akranesi. Frá samverustundunum á hinu yndislega heimili Hall- dórs og Rutar á Sunnubraut 22 á égógleymanlegar endurminningar. Þá skipti aldursmunur ekki' lengur máli. Halldór átti mörg-áhugamál og var með aflirigð- um hagur maður. bæði til orðs og hfanda. Og svo var hann vandvirkur að allt sem hann lct frá sér fara var óaðfinnanlegt, Ég minnist þess sérstak- lega - það var að mig minnir 1962 - að hann flutti í útvarpinu frásöguþátt frá Hítardal. Þcssi þáttur mun hafa orðiö kveikja að nokkrum fleiri þáttum sem fluttir voru, sem framhald hans. undir heitinu Við Fjallavötnin. Ég undraðist tungutakið og myndvtsina. Sá meö augum og heyrði með eyrunt það sem hann sagði frá. Margur háskólaborgari hefði verið fullsæmdur af tungutaki Itans. Veikindi þau. er urðu Halldóri að aldurtila, áttu sér nokkurn aðdraganda. Það mun hafa veriðfyrir um það bil tveim mánuðum að við hjónin komum á heimili hans og Rutar að Stóragerði 34. Þá var hann í helgarleyfi frá Landspítalanum. Hann var máttfarinn en að öðru leyti hress. Þá lét hann eftirfarandi orð falla: „Ég hef svo mikið að gera að ég má ekki vera að því að vera veikur", og brosti við. Þessi orð lýstu honum vel, bjartsýni hansogathafnaþrá. Hannáttisvo margt ógert. En þó munu að baki þessara orða hafa búið beiskja, sárindi, biturleiki gagnvart óblíðum örlögum sem hann fékk ekki spornað gegn. Hann vissi áreiðan- lega hvert stefndi. Hann bar veikindi sín með stakri karlmennsku og fékk í þessari vonlausu baráttu styrk frá hinni hugrökku og ástríku eiginkonu sinni sem vék vart frá honum uns yfir lauk. Við hjónin vottum Rut, sonum þeirra og öðrum vandamönnum dýpstu samúð okkar. Þau hafa mikið misst. Flosi Sigurbjörnsson. t Við fráfall Halldórs Þorsteinssonar. vélvirkja frá Akranesi, vil ég flytja fram fáein þakklætis- og kveðjuorð. Kynni okkar Halldórs hófust um miðjan sjötta áratuginn og þróuðust í djúpstæða vináttu fljót- lega, sem hefur staðið alla tíð. Ég var beðinn um að fara í framboð fyrir Alþýðubandalagið í Borgarfjarðarsýslu 1956 og menn sögðu hér í Reykjavík: Farðu upp á Akranes og hittu Halldór Þorsteinsson. Það var veganestið. Litlu síðar knúði ég dyra á Sunnubrautinni og Rut tók á móti mér. Eftir miklar góðgerðir kallaði Halldór saman fund í stofu sinni og þegar var byrjað að skipuleggja baráttuaðferðirnar. Halldór afhenti mér lista yfir kjósendur, sem hann taldi vera í vafa. Þú átt að heimsækja þetta fólk, sagði Halldór, rabba við það.koma því á rétta braut og drekka hjá því kaffi. Siggi og Ársæll geta farið með þér. Þetta var upphafið að 12 ára þátttöku minni í félagsskap og pólitísku starfi meðal fólks á Akranesí og í Vesturlandskjördæmi. Þetta er eitt eftirminnilegasta tímabil ævi mintutr, og því hef ég orð á því nú, þegar Halldór Þorsteinsson er allur. að hann á einn stærstan hlutann í minningunum, sem koma upp í hugann frá þessu tímabili gleði, athafna og sigra. Ég lærði mikið og þroskaðist á þessu tímaliili undir handarjaðri Halldórs Þorsteinssonar. Það vil ég nú þakka á skilnaöarstundu. í réttarhöldunum út af 30. mars óeirðunum tókst ekki að sanna að þær hefðu verið skipulagðar af „þjóðinni" á Þórsgötu 1. Vegna þessa sönnunar- skorts varð Hæstiréttur að haga orðum í forsend- um sínunt á þann ógleymanlcga hátt að segja „að þar hefðu orðið samtök í verki á staðnum". Þessi 11 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.