Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 14

Íslendingaþættir Tímans - 08.02.1984, Side 14
Haraldur Kristjánsson bóndi, Sauðafelli í Dalasýslu Fæddur 22. júli 1905 Dáimi 29. des. 1983 Laugardaginn 7. janúar sl. fór fram að Sauða- felli jarðarför Haraldar Kristjánssonar bónda þar. Hann var fæddur að Hamri í Hörðudal þann 22. júlí 1905, sonur hjónanna Kristjáns Sveinssonar, bónda þar og konu hans, Málfríðar Porbjarnar- dóttur frá Spóamýri í Þverárhlíð í Mýrasýslu. Haraldur ólst að mestu upp hjá foreldrum sínum, en að nokkru hjá systur sinni Guðrúnu og manni hennar, Einari Jóhannessyni, bónda að Dunki í Hörðudal. Ungur vandist hann öllum sveitastörfum og hlaut almenna barnafræðslu. Hann var námfús og minnugur vel, las flest það er hann náði til á þeim árum. Honum tókst að læra og menntast, án skólagöngu, og búa sig þannig undir ævistarfið. Hann kynntist landi og þjóð, fyrst við lestur góðra bóka, eins og íslendinga- sagna og síðar með því að ferðast. Leiðir margra lágu líka heim að Sauðafelli og þar gafst honum einnig tækifæri á að kynnast fólki. Hann var ættfróður og gat rakið ættir flestra þeirra sem minnst var á við hann, enda mann- glöggur og minnugur. Árið 1936 verða þáttaskil í lífi Haraldar, er hann kvæntist Finndísi, dóttur Finnboga Finns- sonar frá Háafelli og Margrétar Pálmadóttur frá Svalbarða. Það sama ár byrja þau búskap að Sauðafelli. Fyrst í sambýli við Finnboga, föður Finndísar og síðustu árin bjuggu þau í sambýli við einkason sinn, Hörð og konu hans, Kristínu Ágústsdóttur frá Kirkjuskógi. Haraldur og Finndís sátu höfuðbólið mcð prýði því sem næst hálfa öld. Þau bættu jörðina og eignuðust með árum ágætt bú. Þau hófu búskap á þeim árum sem öll nútímatækni var óþekkt, en fylgdust vel með og tileinkuðu sér tæknina eftir efnum og ástæðum er árin liðu. Þau voru hjúasæl og rómuð fyrir greiðasemi og gestrisni. Hjá þeim var í áratugi póstafgreiðsla ogsímstöð og öll þjónusta þar að lútandi einkenndist af fórnfýsi og reglusemi. Fyrir nokkrum árum fluttu þau hjónin til Reykjavíkur og voru þar yfir vetrarmánuðina en dvöldu á sumrin heima á Sauðafelli. Sauðafell er frá fornu fari frægt höfuðból. Þar er útsýni fagurt og víðsýnt yfir sveitina og Hvammsfjörðinn með sínum óteljandi eyjum og gróðursælum sveitum beggja vegna. Jörðin Sauða- fell er talin mjög góð til búskapar og þar hafa löngum verið búmenn miklir og embættismenn. Þar var um skeið séra Björn Halldórsson, er síðar varð prestur og búnaðarfrömuður í Sauð- lauksdal. Um síðustu aldamót bjó þar Björn S. Bjarnason, sýslumaður og þingmaður Dala- manna. Hann var búhöldur góður og bjó á Sauðafelli til 1918 að hann flutti til Reykjavíkur. Af honum kaupir Finnbogi jörðina og bjó hann 14 þar til dauðadags 1953. Finnbogi var, eins og flestir í þeirri ætt, hagleiksmaður mikill og búhöldur góður. Sauðafell hefur lengi notið þess að þar hafa verið framsýnir framkvæmdamenn. Þar er nú búskapur allur tæknivæddur með myndarbrag, reisulegum byggingum og gróður- sælum túnum og tæktunarlönsuim. Haraldur var félagslyndur maður og tók mikinn þátt í félagsmálum. Hann var áratugi í hrepps- nefnd Miðdalahrepps, um skeið í sýsluhefnd, alllengi í stjórn Kaupfélags Hvammsfjarðar og í mörg ár sláturhússtjóri hjá kaupfélaginu. Hann átti létt með að stjórna. Hann var verkhygginn og hafði góð áhrif á menn, jafnan glaður og hress í viðmóti og það fylgdi honum hlýr andi vorsins. Hann var samvinnuþýður og tillögugóður. Hann sótti ekki eftir mannvirðingum, en var eigi að síður til margs tilkvaddur, vinmargur og naut mikils trausts allra þeirra er hann þekktu. Haraldur var gæfusamur maður og heilsuhraust- ur þar til á sl. ári að hann kenndi sér meins sem ekki var unnt að lækna. Hann lést á Landspítalan- um þann 29. desember 1983. Traustur og góður drengur en genginn. Þegar ég lít til baka yfir farinn veg og hugleiði kynni mín af Haraldi, þá er ntér efst í huga þakklæti fyrir farsæl störf og skemmtileg kynni. Finndísi, Herði og fjölskyldunni og öllum öðrum vinum og vandamönnum votta ég samúð. Blessuð sé minning Haraldar Kristjánssonar. Ásgeir Bjarnasnn Helga Vilhelmína Jónsdóttir F*dd 4. dcsember 1897 Dáin 6. janúar 1984 Pú guð rníns lifs, ég loka augum mínum í liknarmildum fððurörmum þínum, og hvíli sœtl. þótt hverfi sólin bjarta. Ég halla mér að þínu föðurhjarta. (M. Jochumsson) Helga í Grófargerði var kölluð burt úr þessum heimi 6. janúar sl. Hún fékk að lifavfir hátíðirnar, fjölskyldu sinni til styrktar og hamingju, eins og hún hafði verið allt sitt líf. Hún fæddist í Grófargerði á Völlum. Fljótsdals- héraði 4. desember 1897 og hét fullu nafni Helga Vilhelmína í höfuðið á móðursystur sinni. Helgu á Gunnlaugsstöðum og föðursystur sinni, Vil- helmínu. Foreldrar hennar voru Þórunn Bjarn- adóttir frá Freyshólum og Jón Guðmundsson, bóndi í Grófargerði. Hann átti eina systur, Vilhelmínu, sem flutti til Ameríku. Helga ólst upp í Grófargerði ásamt foreldrum sínum og systkinum og bjó þar alla stna ævi að frádregnum 15 árum (1911-1926). Systkinin í Grófargerði: Helga, Ásmundur. Gróa, Bjarni, sem var kennari og því mikið að heiman og Snjólaug, bjuggu í sátt og samlyndi í Grófargerði langa ævi. og svo sonur Helgu, Alfred. Þar var fagurt mannlíf og friður í hjörtunum. Heimilið í Grófargerði var fínt og fallegt og húsið skemmtilegt hér áður fyrr. þó að mjög hafi nú hallað á það hin seinni ár. - og brá þá mest við Ásmund, hinn sögufróða og skemmti- Framhald á bls. 13 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.