NT - 19.06.1984, Blaðsíða 5
Undi rskriftal istar
öflugt lýðræðis-
tæki eða útrás
eiginhagsmunaseggja?
■ Á Borgarráðsfundi í fyrra-
dag voru lagðir fram allmargir
undirskriftarlistar frá fólki sem
er óánægt með sitthvað í um-
hverfi sínu. Pannig hafa íbúar
við Elliðavog safnað undir
skriftum þar sem þeir kvarta
undan mengun og ónæði sem
stafar frá voginum. Undirskrift-
um þeirra var vísað til borgar-
verkfræðings. Þá hafa íbúar við
Samtún með undirskriftum lýst
vanþóknun sinni á því að ekki
skuli gengið frá opnum svæðum
í nágrenni þeirra. Þeirra undir-
skriftum var vísað til garðyrkju-
stjóra. Þá voru lagðar fram í
Borgarráði undirskriftir frá
íbúum í nágrenni unglinga-
skemmtistaðarins Traffic, en
hann er þar sem Matstofa Aust-
urbæjar var áður. íbúarnir
kvarta undan ónæði og yfirgangi
drukkinna unglinga um helgar.
Mótmæli þeirra voru send eig-
anda Traffic og lögreglustjóra.
Þá hafa íbúar við Akraland
tekið sig saman um það að
heimta malbik á götuna, en
nokkur vafi þykir leika á skyldu
borgarinnar til að leggja það.
Þá má rifja það upp að íbúar
við Laugalæk hafa mótmælt
fyrirhuguðum byggingafram-
kvæmdum Kjötmiðstöðvarinn-
ar í nágrenni sínu, íbúar í
Vesturbæ mótmælt því að Öldu-
götuskóli yrði lagður niður og
höfðu árangur sem erfiði og
þannig mætti eflaust lengi telja.
35 ára stúdentar á Bessastöðum rifja upp skólaárin
■ í augum margra eru
menntaskólaárin bestu ár
ævinnar. Þá er fólki farið að
finnast aðeins að það sé að
verða fullorðið og er að kanna
ókunna stigu í þeim aldurs-
flokki. Þó er ábyrgð og alvara
lífsins ekki tekin við og lífið að
mestu leyti glens og gaman.
Þá eru hnýtt þau vináttubönd,
sem aldrei rofna, þó að stund-
um kunni að bregða skugga á,
og skólafélagarnir verða sem
ungir á ný, hvenær sem þeir
hittast.
Stúdentaárgangar hafa þann
sið að hittast a.m.k. á 5 ára
fresti til að halda upp á merkis-
afmæli sitt. Sl. laugardag hittist
einmitt hópur samstúdenta
Vigdjsar Finnbogadóttur, for-
seta íslands, á Bessastöðum í
boði hennar, en þann dag, 16.
júní, voru einmitt liðin 35 ár
síðan þau höfðu sett upp hvítu
kollana í menntaskólanum í
Reykjavík. Og þeim fannst
eins og það hefði verið í gær!
Á myndinni eru nokkrir úr
hópnum að spóka sig á tröpp-
um forsetabústaðarins í góða
veðrinu, sem lét ekki sitt eftir
liggja til að létta mönnum
lundina.
(NT-mynd Ari)
„Ranglætiaðbinda
gamlan mann yfir
gamalli lasburða
konu“
-19. júní kominn út-
■ Sjálfsagt þykir að senda
gamlan mann heim af sjúkra-
stofnun til gamallar konu, en
ranglæti þykir að binda gamlan
mann yfir gamalli lasburða
konu, segir m.a. í 19. júní,
ársriti Kvenréttindafélags
íslands, sem er nýkomið út. Þar
er fjallað um j afnréttisbaráttuna
og áhrif hennar á samskipti
kynjanna. Þá er fjallað um
tölvuna. Felur hún í sér ógn eða
opnast með henni nýir mögu-
leikar? Fjallað er um tölvur og
konur og tölvufræðslu í skólum
og hættuna sem ófrískum kon-
um kann að stafa af tölvum.
I blaðinu er rætt við konur í
ábyrgðarstöðum, listakonur og
m.a. má nefna grein um fóstur-
eyðingar í ljósi nýrrar löggjafar.
Blaðið er 88 síður, vandað að
allri gerð. Ritstjóri er Fríða
Björnsdóttir.
Skaftfellingafélagið
í Reykjavík:
Jónsmessuferð
■ Skaftfellingafélagið í
Reykjavík efnir til Jónsmessu-
ferðar um Snæfellsnes og
Breiðafjarðareyjar um næstu
helgi ef næg þátttaka fæst.
Farið verður frá BSÍ á föstu-
dagskvöldi og komið til baka
sunnudagskvöld. Reyndir far-
arstjórar verða með og gist
verður í Stykkishólmi báðar
næturnar. Þátttaka tilkynnist til
Ólafar s. 86993, Guðrúnar s.
31307, Steinunnars. 18892, Vig-
fúsar s. 71983 eða Einars í s.
76685.
Fréttabréf
Fríkirkjusafnaðarins
■ Út er komið biaðið „Frí-
kirkjan“, fréttabréf Fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík, 1. tölu-
blað 6. árgangs og er festur við
blaðið gíróseðill sem þeir geta
notað sem styrkja vilja orgelvið-
gerðina sem stendur fyrir dyrum
á vegum safnaðarins.
Blaðinu er dreift til allra safn-
aðarmanna, þeim að kostnaðar-
lausu, en fæst einnig afhent hjá
safnaðarpresti í kirkjunni.
Ábyrgðarmaður er séra Gunnar
Björnsson.
Ættarmót
■ Ættarmót afkomenda hjón-
anna frá Flróbjargastöðum,
Benjamíns Jónssonar og Katrín-
ar Markúsdóttur verður haldið
laugardaginn 23. júní nk. á
hótelinu í Borgarnesi og hefst
stundvíslega kl. 15.00.
Loksins:
■ „Kvíðum ekki samvinnu við aðra iðnaðarmenn“, sagði Sigríður Eysteinsdóttir, annar eigandi
Saloon Ritz. Á minni myndinni er Linda Sigurðardóttir að andlitsbaða kúnna,siíkt kostar 455 krónur.
^ NT-mynd Ari
Snyrtifræði verður iðn
■ Snyrtifræði heyrir nú
undir lög og reglugerðir um
iðnfræðslu. Búast má við að í
Lögbirtingablaðinu, nú bráð-
lega verði getið um breytingu
á reglugerð um iðnfræðslu þar
sem snyrtifræði verður viður-
kennd fullgild iðngrein.
Síðasta iðnþing samþykkti að
mæla með viðurkenningu á
snyrtifræði, og í framhaldi af
því hefur verið unnið að reglu-
gerðarbreytingunni.
Þeir snyrtifræðingar sem NT
talaði við fögnuðu mjög þessari
breytingu á högum þeirra.
Sögðu þeir að þetta væri viður-
kenning sem þeir hefðu beðið
eftir.
Eftir að reglugerðarbreyting-
in verður gerð opinber, verða
starfandi snyrtifræðingar að
sækja um meistarabréf. Sú um-
sókn kemur síðan til kasta „rétt-
indaveitinganefndar" sem
skipuð verður. I nefndinni
munu eiga sæti einn fulltrúi
snyrtistofueiganda, einn fulltrúi
launþega í snyrtifræðingastétt
og Sigurður Kristinsson, forseti
Landssambands iðnaðar-
manna.
Nám í snyrtifræðum hefur
hingað til tekið tvö ár. Fyrra
árið starfar nemandi kauplaust
en seinna árið tekur hann laun
samkvæmt taxta hárgreiðslu-
nema á 3. ári. Þetta eru reglur
sem meðlimir Félags snyrtifræð-
inga hafa unnið eftir. Á fyrra
árinu fer bóklegt nám fram, en
það nám hefur verið í
Fjölbrautaskólanum í Breið-
holti, og mun miðað við aö
bóklegt nám fari fram þar eftir-
leiðis. Þó verður sú breyting á,
að nú verður námstími þrjú ár,
þar af fjórar annir í bóklegu
námi.
Happdrætti Hamrahlíðarkórsins:
Japansferðir dregnar út
Dregiö hefur verið í happdrætti Hamrahiíðarkórsins 1984.
Vinningsnúmer voru útdregin hjá embætti Borgarfógeta, mánudaginn 18. júní
s.l. Vinningar komu á eftirtalin númer:
nr. 8359 Fargjald f. tvo til Japans 16. júlí '84
og til baka 30. júlí '84. Að verðmæti kr. 174.000
nr. 3017 Fargjald f. einn til Japans 16/7 '84
og til baka 30/7 '84 kr. 87.000
nr. 8620 Fargjald f. einntil Húsavíkur kr. 3.400
nr. 5439 Vöruúttekt að eiginvali kr. 2.000
nr. 250 Vöruúttekt að eigin vali kr. 1.800
nr. 5525 Vöruúttekt aðeiginvali kr. 1.500
nr. 4136 Vöruúttektað eiginvali kr. 1.300
nr. 3728 Vöruúttekt að eigin vali kr. 1.200
nr. 8595 Vöruúttektað eiginvali kr. 1.100
nr. 5485 Vöruúttekt að eigin vali kr. 1.000
Hamrahlíðarkórinn þakkar þeim fjölmörgu sem lagt hafa japansverkefni kórsins
lið með því að kaupa happdrættismiða