NT - 29.07.1984, Blaðsíða 17

NT - 29.07.1984, Blaðsíða 17
Sunnudagur 29. júlí 1984 17 lll' KROSSGATAN LAUSN A SIÐUSTU KROSSGATU G h fí N fl o ■R I i I e O V 1r s fl li h E G f\ R V f l Pi ■Ð E i N s P I G U R n 'O s fl l S T ■ ö .5? 'd V J |\J N T v i T? I K fl S K E O & ■ r ú ■ Lj U N P ,E I T -R t 1 te s fl 6 fí R D S 'f) t ■ ,ö fí N M s ■ É O L ■ Pi G\ 'n ■ $ t-/ u M L r 0 u F I R R t s T ■ 1? I L fí N A L B u N N fí ■ T fl u ■ N 4 •6 L U G G Pl K I s T U N N I h ■R T U 6 u V S T n G fí * V 'T e: R M l M Ck R V c. 5 Rýnt í tilveruna ■ Listahátið er gengin uni garð og lífið í borginni og fyrir utan hana er aftur fallið í venjulegar skorður. Plakötin af verndardýrlingi tónlistarinnar hafa veriö fjarlægð, sumum borgurum til mikils léttis og ánægju. Þeir, sem tengjast tónlistirini sterk- um böndum eru oft viðkvæmir og áttu þar af leiðandi erfitt með að horfa upp á heilaga Sesselju, næstum nakta, með lostafull brjóst og fjórar tær. blasa við sér ofan af veggjum og inni í skýlum. Eg er næstum viss um, að í hugskoti margra manna og kvenna eru dýrlingar tengdir sakleysi og innri fegurð sem geislar frá þeim. Enda hafa þeir komist í dýrlingatölu vegna góðverka og óeigin- gjarnrar þjónustu við mann- fólkið og drottin. Þar af leið- andi var eins og hið fræga „listaverk" af heilagri Sess- elju, sem um leið var merki Listahátíðarinnar, kæmi eins og skrattinn úr sauðarleggn- um. En ekki meira um það, við skuluni heldur ætla og vona, að sem flestir hafi að baki sér uppfyllingu á löngun sinni varðandi mcnningu og lyftingu hugans á æðra svið í sambandi við tónlist, söng, leik- og mál- aralist, að ógleymdri lát- bragðslistinni. A þessari stóru hátíð var boðið upp á fjöl- breytt efni og svo sannarlega við hæfi allra. Þó eru það víst nokkrir, (fyrir utan forráðamenn menningarhátíðarinnar) sem sitja eftir með sárt ennið. Það eru þeir, sem einhverra hluta vegna gátu, eða höfðu ekki tækifæri til að sækja þessa hátið. Ýmist vegna atvinnu sinnar, eða fjarveru úr borg- inni, sumir hverjir staddir á sólarströnd, vegna þess að sumarfríin hjá sumum hefjast þegar í maí. Einnig er sá hópur lands- manna, sem hafði hreinlega ekki efni á því að sækja þá menningarviðburði sem hátíð- in spannaði yfir og bauð upp á. Hinsvegar geta þeir, sem þyrstir eru í upplyftingu andans, en ganga um með lauflétt peningaveski, stundað menningu ef þeir líta vel í kringum sig, eins og t.d. sótt Þjóðminjasafnið heim og fl. ogfl. Þar fyrir utan er okkur nú, á þessu hlýja sumri, boðið upp á hinar ýmsu skemmtanir og uppákomur út um allt landið. Og fyrir þá, sem ætla sér stóra hluti varðandi tilbreytingu hérlendis og hafa efni á þeim, ætti það ekki að vera neitt vandamál að sletta úr klaufun- um. Okkur er boðið uppá slíka fjölbreytni að undrun sætir og það kemur fyrir að mann klæji í lófana þegar skemmtana- auglýsingarnar ná eyrum þeg- ar hlýtt er á útvarpið. Þar kennir sko margra grasa...og það hlýtur að vera mikil til- breyting fyrir borgarbúa að veita sér hvíld frá gleði borgar- lífsins og drífa sig út úr borg- inni til þess að gera sér daga- mun. Þar er boðið upp á sæluvik- ur, rokkhátíðir, stuðmanna- sprengjur og hryllilegt fjör...að ógleymdri sumar- gleðinni og ýmsum fjölskyldu- skemmtunum og hesta- mótum...og jafnvel Kántrý- hátið í íslenska villta vestrinu! Úrvals heyvinnutæki á góðu verði Stoll heyþyrla v.br. 4,10 m. Stoll heyþyrla v.br. 5,1 Óm. Stoll stjörnumúgav. v.br. 2,80 m. Pöttinger heyhleðsluvagn British Lely múgavéi 4ra hjóla British Lelyfjölnotavél kr. 37.900.- kr. 44.200.- kr. 32.500.- kr. 168.000.- kr. 17.900.- kr. 28.800 Afar hagstæð greiðslukjör (T.d. ekkert út-Hitt eftir minni) VÉIABCCG Bildshöfða 8 - Simar 68 66 55 og 68 66 80

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.