NT - 20.08.1984, Page 11
■ Húsbyggjandinn, árleg
handbók húsbyggjenda, er
kominn út í þriðja sinn. Sem
fyrr er ritið mikið að vöxtum,
rösklega 200 síður að þessu
sinni, og hefur að geyma marg-
víslegt efni fyrir húsbyggjend-
ur. Til dæmis er vikið að ýmsu
því sem lækkað gæti bygginga
kostnað hér á landi, auk þess
sem margvíslegum nýjungum
eru gerð skil. Tugir greina eru
í blaðinu, sem auk þess er
ríkulega myndskreytt. Pá er
þar einnig að finna ítarlegan
handhægan lista yfir sérgrein-
ar í þjónustu og verslun í
byggingariðnaði, sem sparað
getur húsbyggjendum mikinn
tíma.
Húsbyggjandinnn ’84 er gef-
inn út í 10 þúsund eintökum og
er dreift ókeypis til húsbyggj-
enda. Þetta er í þriðja sinn,
sem ritið kemur út og móttök-
urnar hafa verið svo góðar, að
fyrri árangar eru nú með öllu
ófáanlegir.
Peir, sem áhuga hafa á
ritinu, ogekki eru í hópi þeirra
sem fá það sent heim, geta haft
samband við skrifstofu Hús-
byggjandans í síma 91-
68 70 85. Ritið verður þá sent
um hæl. í þessu sambandi skal
tekið fram, að allir þeir sem
fengið hafa úthlutað bygging-
arlóð undanfarin þrjú ár, fá
ritið sent heim og á það að vera
komið í hendur þeirra nú.
Einnig má fá ritið á skrifstofu
útgáfunnar, Bolholti 6 í
Reykjavík, og það liggur jafn-
framt frammi í helstu
byggingavöruverslunum.
Utgefandi er Húsbyggjand-
inn sf., ritstjóri og ábyrgðarm-
aður er Gísli G. Gunnarsson,
en umsjón með efni hafði
Kynningarþjónustan sf., Hafn-
arstræti 19 í Reykjavík.
Stóri bró
gætir þín
■ Fólk lætur ginnast þegar
verið er að tala um öll gæðin
sem gerfihnettir bera í skauti
sér. Það er eins og enginn vilji
viðurkenna þá staðreynd að
meir en helmingur gerfihnatt-
anna sem sveima um jörðina
eru á vegum stríðsrekstrar að-
ila. í virtum tímaritum birtast
myndir af nýjum gerfihnöttum
sem taka myndir af landslagi
og veðurbrigðum, bæta fjar-
skipti og gera öruggara að
ferðast um úthöfin. Og því er
ekki að neita að gerfihnettir
geta verið okkur ómetanleg
hjálp bæði í samskiptum og
öryggismálum. Einnig má
nefna sem dæmi að sum stærri
olíufélaganna notast við upp-
lýsingar frá gerfihnöttum til
könnunar á væntanlegum olíu-
lindum. Sem betur fer er upp-
lýsingaflæðið svo mikið að
nota þarf tölvur til að vinna úr
því. Það er ekki slík notkun
sem er svo uggvænleg heldur
sú framþróun sem á sér stað í
greiningu einstakra atburða á
jörðu niðri og notkun tölva til
að velja úr ákveðin viðfangs-
efni. Fyrir einungis þrem árum
síðan þá var það almennt vitað
að hægt var að greina á milli
hinna ýmsu bílagerða, nú í dag
er hægt að þekkja flestar teg-
undir í sundur. Og þegar
gervihnettir á sveimi um-
hverfis jörðina geta tekið
slíkar myndir þá er stutt í að
hægt verði að þekkja menn í
sundur á slíkum myndum. Og
þá verða góð ráð dýr.
Byrjun verður án vafa sú að
gerfihnettir verða notaðir til
að fylgjast með atferli ákveð-
inna aðila sem eru grunaðir
um eitthvað ólöglegt. Hnett-
irnir munu fylgja þeim eftir og
það verður lítil vörn gegn eftir-
litinu að bíða myrkurs, mynda-
vélar njósnahnatta þeirra sem
notaðir eru til eftirlits eru
nefnilega þeim eiginleikum
búnir að sjá bæði í myrkri og
skýjuðu veðri. Síðan mun án
vafa einhver löghlýðinn borg-
ari taka sig til og byggja upp
vinnslukerfi sem gerir „yfir-
völdum“ kleift að fylgjast með
samkomum manna og ferðum
einstaklinga um skuggahverfi
til að koma í veg fyrir uppþot
og líkamsárásir eða aðra glæpi.
Sem sagt fyrirbyggjandi að-
gerðir og allar ætlaðar til
verndar hinum almenna borg-
ara. Slíkt verður auðvitað ein-
ungis til góðs, þ.e.a.s. eins
lengi og hægt verður að fylgjast
með slíku eftirliti og koma í
veg fyrir eftirlit sem brýtur í
bága við friðhelgi heimilisins.
Það verður bara einfaldlega
ekki hægt því Ku Feng Lu í
Kína gæti verið undir eftirliti
hjá yfirvöldum í Perú. George
Orwell spáði frekar dökkri spá
en hann miðaði við þá þekk-
ingu sem hann hafði völ á, í
dag höfum við margfalt meiri
vitneskju og einnig djöfullegri
tækjabúnað. Það hefur verið
framleiðslukostnaður slíkra
eftirlitskerfa sem hefur komið
í veg fyrir þau, ekki hinn frjálsi
heimur (hvað svo sem það nú
er).
Það er því enginn vafi að
stóri bróðir kemur fram á
sjónarsviðið á næstu árum.
Spurningin er einungis um
hvernig náungi hann stóri
bróðir verður. Hann verður án
vafa nokkuð líkur þeim sem
geta komið flestum gerfitungl-
um upp og tölvuvætt upplýs-
ingaflæðið frá þeim.
Hvolfþök
Blómaskálar, garðstof-
ur, sumarbústaðir,
íbúðarhús og stærri hús
tii hvers konar nota.
Gerum tilboð.
Hringið og fáið sendar
upplýsingar: 91-28033
virka daga 17.00-19.00.
^SPACE
FLOWER
Tilraunastofa Burðarforma
P.O. Box 62 121 Reykjavík
Utanríkismál
Breta 1760-1815
Ian R. Christie: Wars and Revoluti-
ons. Britain 1760-1815.
Edward Arnold 1982.
359 bls.
■ Um þessar mundir er hið þekkta
enska útgáfufyrirtæki Edward Arnold
að gefa út nýja ritröð um sögu Eng-
lands og eru aðalritstjórar hennar
þeir A. G. Dickens og Norman Gash.
Þetta bindi er hið sjöunda í röðinni.
Það fjallar um sögu Englands á
merkilegu tímabili, 1760-1815.
í kennslubókum í sögu gefur að
lesa, að á 19. öld hafi breska heims-
veldið verið mesta stórveldi heims og
stóð svo a.m.k. fram til loka fyrri
heimsstyrjaidar.
Þegar best lét hældu Bretar sér
stundum af því, að lönd þeirra væru
svo víðfeðm, að sólin gengi þar aldrei
til viðar, og inn á milli skopuðust þeir
að því á sinn sérstaka hátt, að
England væri svo lítið, að það sæist
tæpast á kortum yfir Bretaveldi.
Hvort tveggja, hólið og gamansem-
in, geymdi sannleikskorn. En Bretar
voru ekki stórveldi frá örófi alda og
þótt nýlenduveldi þeirra væri orðið
Wars and
Revolutions
■ Bókarkápa.
ærið víðfeðmt þegar á síðari hluta 18.
aldar fór því fjarri að það stæði þá á
jafn traustum fótum og á 19. öld.
Tímabilið, sem fjallað er um í
þessari bók var tímabil skins og skúra
í enskri sögu og nær samfellt ófriðar-
tímabil, ef litið er til utanríkismála.
Undir lok 18. aldar sögðu nýlendur
Breta í Ameríku þeim upp trú og
hollustu og stofnuðu sjálfstætt ríki,
Bandaríki Norður-Ameríku. Bretar
höfðu varla náð sér eftir það áfall er
þeir urðu að snúast gegn geigvæn-
legum áhrifum stjórnarbyltingarinnar
miklu í Frakklandi og síðan fylgdu
Napóleonsstyrjaldirnar í kjölfarið,
þar sem ekki var útséð um úrslitin fyrr
en árið 1814. Þá fyrst stóð Bretaveldi
traustum fótum og hélt áfram að
eflast í nærfellt heila öld.
Ian R. Christie er einn af þekktustu
sagnfræðingum í Bretlandi og hefur
verið prófessor við Lundúnaháskóla
frá 1966. Hann rekur sögu Englands
á timabilinu 1760-1815 á skemmtileg-
an hátt í þessari bók. í upphafi greinir
hann frá þeim undirstöðum, sem
breska ríkið hvíldi á, þjóðarauðnum
á þriðja fjórðungi 18. aldar, þá frá
sambandi ríkis og kirkju og tekur
síðan til við stjórnmála- og utanrík-
ismálasöguna, sem hann segir í tíma-
röð, en þó með mismunandi áhersl-
um. Hann fjallar ýtarlega um upp-
reisn nýlendnanna í Ameríku, en þó
enn nákvæmar urn Napólconsstyrj-
aldirnar og sigra Breta á Frökkum á
lolcaskeiði Napóleonstímans. í bókar-
lok er nákvæm heimildaskrá og kort,
sem tvímælalaust verða lesandanum
til frekari glöggvunar.
Þetta er ekki fræðirit í strangasta
skilningi og byggir að mestu leyti á
prentuðum heimildum. Bókin er ætl-
uð stúdentum í fyrri hluta náms
virðist mér sem íslenskir stúdentar
geti haft af henni gott gagn ekki síður
en enskir. Jafnframt ætti bókin að
geta nýst sögukennurum vel sem
handbók.
Fyrir mörgum hafa
tiyggmgamál
verið sem erfið krossgáta
Við h(jfum hinsvegarleyst hana meðeinuorði
Með því að sameina í eina vátryggingu ýmsa áhættu-
þætti í iðnaði, sem áður hafa verið sértryggðir, er hægt
að auka vátryggingarvernd verulega.
Tryggingaráðgjafar okkar aðstoða þig við áhættumat,
svo verðmæti þín séu örugglega tryggð á raunvirði.
Samningur þinn og félagsins um Iðnaðartryggingu
byggist á vátryggingaþörf þinni, raunréttu áhættumati
og hagstæðum iðgjöldum.
Samsett trygging er hagstæð trygging
Iðnaðar
trygging
IfBRunnBáT
(§8gr -AFÖRYGGtSÁSTÆDUM
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
Laugavegur 103 105 Reykjavlk Slmi 26055
Jón Þ. Þór.