NT - 23.08.1984, Blaðsíða 1

NT - 23.08.1984, Blaðsíða 1
■ Áfram var haldið að leggja gervigras á vallarflötina í Laugardal í gær, enda stytti upp eftir mikla vætutíð, en gervigras hefur þá öndverðu náttúru við annað gras að það þolir ekki að láta leggja sig í rigningu. Um tíu daga vinna er enn eftir þar til völlurinn verður fulllagður þessu græna gervi og nú er bara að vona að hann hangi þurr, ella gæti verkið dregist fram á næsta vor. - Annars sjáum við ekki betur á meðfylgjandi mynd en að mennimir séu að rúlla upp gervigrasinu. Hvar hafa þeir fengið alla þessa Hafnflrð'nga í vinnu? NT-mynd: Róbert Sjávarútvegsráðherra um erfiðleika á fiskmörkuðum: Ekkert bendir til þess að úr rætist stöðuna, en það er mjög alvar- legt mál að lækka verðið og við vonumst til að það gerist alls ekki. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum með tiltölulega lítið magn um þessar mundir og okkar stefna hlýtur að vera sú að halda uppi sem næstu verði með þetta litla magn sem við höfum til að selja nú um stundarsakir og því má ekki gleyma að sennilega minnkar framleiðslan á næstunni vegna þess að margir eru búnir með kvótann sinn og það verður væntanlega til þess að það gangi á birgðir." Eldur í Súlunni ■ Eldur varð laus í netum í stafni Súlunnar EA 300 í gærdag þar sem skipið stendur í Slipp- stöð Akureyrar. Upptökin urðu þegar verið var að logskera í skipinu en ekki er talið að tjón sé mikið. Mikill reykur og hiti myndaðist og voru fjórir reykkafarar sendir ofan í lest. Slökkvistarf gekk greiðlega. ■ „Jafnvel þótt vísindaleg rök ntæltu með því að veiða meira af flski þá liggur það fyrir að markaðsieg rök eru ekki fyrir því“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í samtali við NT, en mjög þunglega horflr nú um sölu á flskafurðum okkar og sjávarútvegsráðherra sagðist ekki hafa undir höndum neinar upplýsingar sem bentu til þess að ástandið batni á næstu mán- uðum. Að sögn Halldórs eru veru- legir erfiðleikar á skreiðar- mörkuðum okkar. í Bandaríkj- unum er nú áframhaldandi birgðasöfnun á frystum fiski. Þetta stafar meðal annars af því að vegna sterkrar stöðu dollar- ans hafa keppinautar íslendinga aukið sókn á þennan markað. En einnig hér heima fyrir hafa menn fryst meira á kostnað saltfiskverkunar sem nú er rekin með tapi. Þá hefur ekki tekist að selja meiri karfa á Rússlands- markað þannig að við veiðum nú á lager, upp í samninga ársins 1985. „Salan í Bandaríkjunum er að sjálfsögðu spurning um verð. Menn gætu selt meira fyrir minna verð, en vilja ekki gera það“ sagði ráðherra. Aðspurður um það hvort hann teldi rétt að lækka verðið sagði Halldór: „Það er auðvitað sölusamtak- anna í Bandaríkjunum að meta RLR vildi ekkertmeð málið hafa ■ í gær hafnaði Rann- sóknarlögregla ríkisins að taka til meðferðar hand- töku mannsins sem ruddist inn í íbúð 'aldraðra hjóna um síðustu helgi. Eins og skýrt hefur verið frá liggur eiginmaðurinn nú þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir þá heimsókn. Skömmu eftir að maðurinn var lát- inn laus úr gæsluvarðhaldi var hann handtekinn á nýjan leik, er hann hugðist fara með gest og vínföng inn á heimili sitt. Lögregl- an stóð þá vörð um húsið og varnaði honum inn- göngu. Var málið sent Rannsóknarlögreglunni sem endursendi lögregl- unni það skýringalaust. Samkvæmt heimildum NT taldi RLR sig ekki geta tekið málið fyrir í síðara skiptið þar eð ekki lá fyrir neitt brot af hans hálfu. Var maðurinn því látinn laus. Mokveiði í Laxá íKjós: 430 laxar áádögum! ■ Alger mokyeiði hefur verið í Laxá í Kjós undan- farna daga og teknir 430 laxar á land á 9 dögum. Síðasta holl landaði 130 löxum á þrem dögum og var sá stærsti rúm 20 pund. Hollið á undan hafði þó gert enn betur því að á sex dögum var 300 löxum mokað upp úr ánni. Stend- ur heildarveiðin í Laxá í Kjós nú í 1520 löxum og er hún langfengsælasta laxveiðiá landsins þetta sumarið. Sjá Veiðihorn á bls. 5 Verður settur þrýstingur á I íf eyrissjóðina: 100 milljóna vanskil til Húsnæðisstofnunar Bókagerðarmenn: Allsherjaratkvæði um verkfallsheimild ■ Allsherjaratkvæða- greiðsla fer nú fram hjá 900 félögum í Félagi bókagerð- armanna um verkfallsheim- ild til stjórnar félagsins, en bókagerðarmenn hafa nýlega lagt fram kröfur stnar til Félags íslenska prentiðn- aðarins um 30% kauphækk- un hinn 1. september n.k. Innan Félags bókagerðar- bindarar, offsetprentarar og ófaglært fólk er vinnur í prentiðnaði. Bókagerðar- menn geta, eins og allir sem falla undir lög um stéttarfé- lög og vinnudeilur, boðað til verkfalls með sjö daga fyrir- vara. Félag þeirra er utan Alþýðusambands íslands. ■ Rösldega 100 milljónir vant- aði upp á að lífeyrissjóðirnir í landinu hefðu staðið skil á þeim 400 milljónum sem þeim bar að greiða til Húsnæðisstofnunar í formi skuldabréfakaupa fyrir júlOok. Til greina kemur að Húsnæðisstofnun greiði ekki vexti og afborganir af eldri lán- um meðan þetta ástand varir. „Það er ekki hægt að gefa neitt slíkt upp núna“ sagði Alex- ander Stefánsson félagsmála- ráðherra aðspurður um hvort slíkur þrýstingur yrði settur á sjóðina. Alls eiga lífeyrissjóð- irnir að standa húsnæðislána- kerfinu skil á 700 milljónum á árinu í formi skuldabréfakaupa. Þeir höfðu hins vegar aðeins keypt fyrir 38% af heildarupp- hæðinni fyrir júlílok, í stað 55%, og eru það röskar 100 milljónir sem upp á vantar. Alexander sagði að þessi mál skýrðust væntanlega á næsta fundi með lífeyrissjóðunum, en nauðsynlegt væri að ganga þannig frá málum að lánsfjár- áætlun þessa árs stæðist og eins yrðu málin skoðuð m.t.t. stefn- unnar á næsta ári. „Það verður að minnsta kosti reynt að fá betri tryggingu fyrir því að staðið verði við það sem samið verður um“ sagði ráð- herra þegar hann var spurður um það hvort reynt yrði að fá meira fjármagn frá lífeyrissjóð- unum til húsnæðiskerfisins næsta ár, en í þá átt hnigu m.a. tillögur ríkisstjórnarinnarfrá sl. sumri. Þau „fíluðu“ Reagan ■ Repúblikanar hafa fíla í miklum heiðri og einkennistákn þeirra er fíll. Þessi mynd var tekin á flokksþingi þeirra þar sem hægt var að kaupa ýmiss konar gerðir af fílstáknum. Eins og búast mátti við staðfesti þingið í gær einróma að Ronald Reagan verði frambjóðandi flokksins í komandi forseta- kosningum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.