NT - 23.08.1984, Blaðsíða 3

NT - 23.08.1984, Blaðsíða 3
Gefur Mikligarður út eigin greiðslukort? „Sú leið er opin“ segir Snævar Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastjóri ■ „Það var töluvert hugleitt þegar við opnuðum að gefa út eigið greiðslukort, þannig að við vitum hvað í því felst, en það hefur engin ákvörðun ver- ið tekin núna um hvort það verður gert,“ sagði Snævar Guðmundsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Miklagarðs, í samtali við NT í gær. Nær fullvíst er talið að yfir 50 matvöruverslanir á höfuð- borgarsvæðinu hætti afgreiðslu fyrir Visa og Eurocard nú um mánaðamótin: Snævar sagði of stuttan tíma vera til stefnu til að útgáfa nýs korts smylii saman við afgreiðslustoppið á stóru kortunum. „En þessi leið er opin," bætti hann við. Gísli Blöndal hjá Hagkaupi og Stefán Friðfinnsson í Vöru- markaðinum kváðu sín fyrir- tæki ekki hafa áhuga á að gefa út eigin kort. Fimmtudagur 23. ágúst 1984 Póstbíllinn fuðraði upp Bíll brann til kaldra kola þegar verið var að draga hann í gang í Hró- arstungum í gær. Bíllinn, sem notaður er til póst- flutninga, hafði drepið á sér af einhverjum ástæð- um og var gripið til þess ráðs að kippa í hann eins og sagt er. Varð ökumað- ur þess þá var, að bjarma brá fyrir undir bílnum. Þegar hann athugaði mál- ið nánar, sleiktu logarnir hliðar bílsins. Brá öku- maðurinn skjótt við og stökk út úr bílnum með póstpokana, í fórum sínum. Manninn sakaði ekki og pósturinn reyndist heill þegar að var gáð, hinsvegar mun bíllinn gjörónýtur að undan- skyldu öðru afturdekkinu. Að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum þá er það enn hlulin ráðgáta hvernig gat kviknað í bílnum við þess- ar aðstæður. Mokveiði í Laxá í Kjós Alger mokveiði hefur verið í Laxá í Kjós og hafa verið teknir 430 laxar á land á síðustu 9 dögum. Síðasta hollið var þrjá daga í ánni með 10 stangir og mokuðu á land 130 löxum. Var sá stærsti rúm 20 pund og yfirleitt var fiskurinn mjög vænn, milli 10 og 15 pund. Hollið á undan var í sex daga í ánni og fékk 300 laxa og var sá stærsti 23 pund. Að sögn Ólafs H. Ólafssonar veiði- varðar voru komnir 1.520 laxar á land á hádegi í gær og er Láxá í Kjós lang fengsælsta laxveiðiá landsins í sumar. Til marks um hvað takan var góð í sex daga hollinu, sagði Ólafur að maður sem hefði verið á fremsta svæðinu, svokölluðum Þrengslum, og sett í stór- an lax en hann hefði slitið. Því miður var hann ekki með fleiri sökkur þannig að veiðinni var lokið þann daginn. En morguninn eftir fóru menn í sama hylinn og fyrsti laxinn sem veiddist var sá hinn sami og maðurinn hafði misst daginn áður, því hann var enn með krókinn í kokinu. Stærsti lax sumarsins í Laxá í Kjós var 23 pund og veiddist hann 12. ágúst sl. á svartan „streamer“ sem Jón Pálsson í veiðihúsinu hannaði og kallar hann gripinn „Eary Jolly“ nr. 8. Hinn fengsæli fiskimaður var Þór- unn Hafstein og tók það hana klukku- tíma og fimmtán mínútur að landa boltanum og var það mikil barátta. Hefur ekki veiðst eins stór lax í Laxá í Kjós síðan 1970. Nú eru 18 dagar eftir af veiðitíma- bilinu og getur áin hæglega farið í 1.800 til 2.000 laxa. Þannig að útlitið er gott þar. Laxá í Leirársveit Það er búin að vera sæmilegasta veiði í Laxá í Leirársveit undanfarið og eru komnir á land hátt í 600 laxar og er megnið af honum veitt á flugu. Þetta er betri veiði en á sama tíma í fyrra enda er töluverður lax í ánni og að öllu jöfnu vænn fiskur. Stærsti laxinn er 18 pund og einnig eru komnir tveir 17 punda á land. Eliiðaárnar standa fyrir sínu Alveg skínandi veiði er búin að vera í Elliðaánum að undanförnu og 1.114 laxar höfðu veiðst þar 21. ágúst s.l. Má því segja að litla áin í höfuðborginni standi sig vel og komu 17 laxar á land þann 20. s.l., mest smálax. Anrnrs flohfts íanéafqöt er fyrsta floftks imtar' Lambakjöti er skipt í flokka eftir þyngd. í öðrum flokki eru dilkar 9 til 11 kg. Annars flokks kjötið er jafn bragðgott og yfirleitt fituminna en kjöt úr þyngri flokkum. Og svo er það ódýrara! Framleiðendur AUGLÝSINGAPJÓNUSTAN

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.