NT - 23.08.1984, Page 24
■ Svartan reyk leggur upp úr strompi malbikunarstöðvarinnar. Þegar vindátt er að vestan eða norð-vestan leggst reykurinn
yfír hverfíð í baksýn og gerir íbúum þar lífið leitt.
Malbikunarstöð angrar íbúa í Garðabæ:
Ólíft í hverfinu vegna
mengunar frá stöðinni
Bæjarráð fjallar um málið í dag
■ Bæjarráð Garðabæjar fjallar á fundi
sínum fyrir hádegið í dag um beiðni íbúa
Hnoðraholts um aðstoð við að losna við
mengun af völdum malbikunarstöðvar, sem
starfrækt er við hverfið. Þegar stöðin er í
gangi sendir hún frá sér svartan olíureyk og
leggst hann yfir hverfið, þegar vindáttin er
íbúunum óhagstæð.
„Það er ekki hægt að hafa
stöðina þarna. Reykurinn
kom yfir hverfið í morgun og
var hann alveg kolsvartur,"
sagði María Marteinsdóttir,
íbúi við Eskiholt, í samtali
við NT í gær. Hún hafði
ætlað í sólbað í gærmorgun,
en þá var reykurinn svo
svartur, að hann skyggði á
sólina.
í bréfi íbúa Hnorðaholts
til bæjaryfirvalda í Garðabæ
segir, að þegar vindur sé að
vestan og norð-vestan sé
illmögulegt að dvelja utan
dyra sem innan vegna olíu-
mettaðs reyks, sem leggi yfir
holtið. Það sé sérstaklega
slæmt, þar sem börn eigi í
hlut, þau kvarti yfir sviða
bæði í hálsi og augum.
„Það blandast engum hug-
ur um það, sem hefur séð
eða fundið hvað þarna er á
ferðinni, að þetta er algert
ófremdarástand. Það má
bóka það, að við gerum allt,
sem í okkar valdi stendur til
að losa íbúana við þenna
ófögnuð,"-sagði Jón Gauti
Jónsson bæjarstjóri Garða-
bæjar í samtali við NT. Sagði
hann, að heilbrigðisfulltrúa
bæjarins yrði sent mál þetta
eftir fundínn í dag.
Malbikunarstöðin, sem
rekin er af fyrirtækinu Mið-
felli, er í landi Kópavogs og
hefur starfsleyfi fram í des-
ember 1987. Kópavogskaup-
staður mun einnig hafa gefið
vilyrði um 10 ára framleng-
ingu, en hún væri þó háð
skipulagi. Garðabær er hins
vegar að reyna að fá lögsögu
yfir þessu svæði.
„Við höfum yfirleitt reynt
að haga starfseminni þannig
að íbúarnir yrðu fyrir sem
minnstum óþægindum af
henni. En þegar raki er jafn
mikill í steinefnunum og ver-
ið hefur undanfarið, fylgir
■ María Marteinsdóttir og dóttir hennar úti á svölum
heimilis þeirra í Hnoðraholtinu. Malbikunarstöðin sést í
baksýn. NT-m,ndir: Róbert
því alltaf meiri reykur. Þetta
hefur verið með alversta
móti. Þegar best er, er varla-
að það sjáist að stöðin er í
gangi,“ sagði Leifur Hannes-
son forstjóri Miðfells í sam-
tali við NT. Leifur sagði
ennfremur, að starfssemi
stöðvarinnar væri tímabund-
in og hann gerði ráð fyrir að
hún yrði starfrækt út septem-
ber.
» ‘ i i :1K| ll liSi' F 1 Ml II
B Blaft * kssRi1v m * ^ ’Wmírl '
■ fý' °8 Fjöldi manns leit við á útimarkaðinum á Silfurtorgi þrá ir rígninguna. Síðari dag markaðarins var hins vegar þun ágætis höndlunarveður. it 1
1 . ; ■■ --^i i> '1 'ffllirith i & ý . - j - V T "jE — ytá (llltl^ u...
■ „Nei, ert þetta þá. Gnð, hvað er langt síðan ég hef séð þig.“ NT-myndir: Hnnbogi Kristjánsson
ísafjörður:
Sölutjöldum
slegið upp á
Silfurtorgi
■ Sölutjöld og búöir má nú víða sjá á torgum úti í bæjum
landsins og setur þessi verslunarmáti ætíð skemmtilegan
svip á bæjarbraginn. A Isafirði voru í vetur haldnir
útimarkaðir annað slagið og að sjálfsögðu lagðist sá siður
ekki af þegar hlýna tók í veðri og sólin tók að hella geislum
sínum yfir mannfólkið.
Nú á miðjum heyönnum stóð
Ferðamálaráð Vestfjarða fyrir
útimarkaði og tókst hann með
ágætum. Sett voru upp sölutjöld
á Silfurtorgi og þótt mikið rigndi
fyrri dag markaðarins létu
bæjarbúar það ekki á sig fá og
fjölmenntu niður á torg. Fólk
dreif einnig að úr nágranna-
sveitum, bæði til að versla og þá
ekki síður til að sýna sig og sjá
aðra.
Leikhópurinn Svart og sykur-
laust kom til ísafjarðar og sýndi
og vakti sprell hans mikla lukku.
Meðal þeirra sem buðu varn-
ing sinn til sölu á Silfurtorgi var
áhugafólk um byggingu tónlista-
skólahúss á ísafirði, en búið er
að teikna það hús og mennta-
skólinn hefur boðist til að gefa
eftir hluta af sinni lóð undir
húsið. Tónelska fólkið bauð upp
á kaffi og lummur, sem bakaðar
voru á torginu, Iukkupakka,
gamlar bækur, heimabakað rúg-
brauð og kál og runnu vörur
þeirra út, enda lummurnar heit-
ar.
í Reykjavík hefur markaðs-
lífið ekki verið eins blómlegt
það sem af er ágústmánuði.
Sífelldar rigningar hafa dregið
úr allri verslun og nú er bara að
vona að úr rætist síðustu daga
mánaðarins.