NT - 21.11.1984, Síða 1
Alsammngurinn
samþykktur 11-4
■ Álsamningurinn var sam-
þykktur í efri deild alþingis í
gærkvöld ineð 11 atkvæöum
gegn 4 en 5 þinginenn voru
fjarverandi.
Samningurinn veröur því
næst sendur neðri deild til af-
greiðslu en afgreiðsla þar ætti
ekki að þurfa að taka langan
tíma þar sem iðnaðarnefnd
deildarinnar hefur þegar fjallað
um samninginn.
Samkomulag náðist um
skjóta afgreiðslu samningsins í
efri deild, þar sem, eins og
greint hefur verið frá áður, hver
dagur sem líður án þess að
samningurinn er staðfestur,
kostar að sögn iðnaðarráðherra
400.()()() krónur í lægra orku-
verði en samningurinn kveður
á um.
Þannig voru í gær tvær um-
ræður í efri deild um samning-
inn en leita þarf afbrigða um
þingsköp til að slíkt geti átt sér
stað. Urðu nokkrar umræður á
fundi deildarinnar í gær, en um
sjöleytið var samningurinn sam-
þykktur. fundi slitið og síðan
annar fundur settur tafarlaust
og samningurinn afgreiddur á
nýjan leik og þar með frá efri
deild.
Meiri hluti iðnaðarnefndar
mælti með samningunum og
mælti Davíð Aðalsteinsson fyrir
áljti meirihlutans. Þrjú sérálit
bárust frá minnihluta nefndar-
innar. Eitt frá Stefáni Bene-
diktssyni, þarsem mælt var með
samningnum en sagði ekki á-
stæðu til að fagna samningnum.
Magnús Magnússon, varamað-
ur Karls Steinars, skilaði séráliti
þar sem hann segir samninginn
engan veginn nógu hagkvæm-
ann Íslendingum og Skúli Alex-
andersson skilaði séráliti þar
sem hann gagnrýnir flest atriði
samningsins. I áliti Skúla er
aðdragandi samningsins rakinn
og gagnrýnd málsmeðferð ráð-
herra.
'OL í skák:
Sigur á Honduras
■ íslensku skákmennirnir á 01-
ympíumótinu i Saluniki fengu
fjóra vinninga úr þeim fimm
skákum sem tókst aö Ijúka í gær
en fjórar skákir fóru tvívegis í bið.
Sovétmenn eru efstir á mótinu
með fullt hús stiga eftir tvær
umferðir.
Margeir Pétursson gcrði í gær-
morgun jafntclfli í biðskák sinni
úr fyrstu umfcrðinni cn skák Helga
Ólafssonar for í bið í briðja
skiptið. í annarri umferð mótsins í
gær tefldi karlaliðið við Honduras
c)g skákirnar fóru allar í bið. Helgi
Olafsson vann síðan biðskák sína
við Singh í gærkvöldi og Margeir
Pétursson einnig sína skák við
Zaldivar. Skákir Jóhanns Hjartar-
sonar og Haces og Jóns L. Árna-
sonar og Yuja fóru aftur í bið.
Kvennaliðið tefidi við Dóminik-
anska lýðveldið. Sigurlaug Frið-
þjófsdóttir vann sína skák á þriðja
borði en skákir Guðlaugar Þor-
steinsdóttur og Ólafar Þráinsdótt-
ur fóru tvisvar í bið.
Skák Helga við Túnismanninn
Bouaziz fór síðan í bið í fjórða
skiptið í gærkvöldi. Helgi hefur
lirók og biskup á móti hrók og er
staðan fræðilegt jafntefli en Helgi
hefur enn ekki getið upp alla von.
Dýr skemmtiferð fyrir fangana:
Geta átt von á 3 ára
fangelsi fyrir strok
„Ekkert fangelsi er mannhelt“ segir Jón Thors
■ Fangarnir fjórir sem skelltu
sér í bæinn, frá Kvíabryggju í
fyrradag, eru allir komnir til
skila. Einn þeirra gaf sig fram
en þrír voru handteknir í húsi í
Kópavogi í fyrrinótt.
Þessi reisa getur þó orðið
föngunum dýrkeypt, því viður-
lög við að bindast samtökum
urn strok eru allt að þriggja ára
fangelsisdóntur.
Að sögn Jóns Thors, deiidar-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu,
er það yfirveguð stefna fangels-
isyfiryalda að hafa Kvíabryggju
opið fangelsi. Engir rirnlar eru
þar fyrir gluggutn og raunar
engar tálmanir fyrir þá sent vilja
strjúka þaðan. Hinsvegar er
Litla-Hraún, hálfopið fangelsi
og hefur komið til tals að endur-
skoða öryggismál þar. Fangelsið
er lokað á nteðan fangar eru
inni. en úti við eru engar tálm-
anir sem hindra fanga í að
strjúka, á meðan þeir eru við
vinnu sína.
Það er mjög erfitt að skil-
greina hugtakið „mannhelt
fangelsi", sagði Jón Thors. í
rauninni er ekkert fangelsi
mannhelt. Fangar hafa komist
út úr rammbyggðustu fangels-
um erlendis svo það er alltaf
spurning hversu miklu það
breytir að herða fangelsisvarn-
ir sagði hann.
Aðspurður hvort íangastrok
væru tíð á Islandi sagði Jón að
miðað við hversu auðvelt væri
að strjúka úr íslenskum fangels-
um væru strok fátíð.
Danska hafmeyjan á móti hvaldrápi
■ Aumingja litla hafmeyjan í Kaupmannahófn hefur þurft að þola margt um dagana. Tvisvar hefur
hófuðið verið sagað af henni, oft hefur málningu verið skvett á hana og í gær var hún þrædd upp á
hvalstkutul af félögum Greenpeacesamtakanna og prýdd bandaríska og japanska fánanum. Á spjaldinu
fyrir neðan styttuna stendur á ensku og dönsku: Hún reyndi einnig að bjarga hvölunum. Poifoto-sim«mynd
Er starfsumhverfi vélstjóra varasamt?
Tvöfalt meiri líkur á að
þeir deyi úr krabbameini
■ Vélstjórar á íslandi virðast
vera í tvöfalt meiri hættu á að
deyja úr lungnakrabbameini
en íslenskir karlmenn vfirleitt.
Fleiri véistjórar deyja einnig
úr þvagblöðrukrabbameini og
heiiablóðfalli en búast mátti
við miðað við viðmiðunarhóp.
Þetta er niðurstaða rann-
sóknar sem gerð var nýlega á
vegum Vinnueftirlits ríkisins
og beindist að því að finna
dánarmein og tíðni krabba-
meins meðal íslenskra vél-
stjóra og mótorvélstjóra.
Niðurstöður þessarar rann-
sóknar eru birtar í nýútkomnu
fréttabréfi um vinnuvernd,
sefn Vinnueftirlitið gefur út.
Hópurinn sem rannsakaður
var, lauk prófi frá Vélskóla
íslands eða meiraprófi frá
Fiskifélagi íslands á árunum
1936-1955. Athuguð voru af-
drif allra þessara manna miðað
við árslok 1982, alls 477 manna.
hverjir hefðu fengið krabba-
mein og dánarmein þeirra sem
látnir voru, þar á meðal ef þeir
höfðu látist úr krabbameini.
Geröur var samanburður á
þessum hóp og viðmiðunar-
hóp, þ.e. úrtaki scm í voru
jafnmargir, jafngamlir ein-
staklingar úr hópi íslenskra
karlmanna, og kom í Ijós að
fjöldi þeirra sem dó úr lungna-
krabbameini í vélstjórahópn-
um var það miklu mciri en í
viðmiðunarhópnum að niður-
staðan telst tölfræðilega
marktæk. Svokallað staðlað
dánartöluhlutfall var 2,05 sem
þýðir að vélstjórar virðast vera
í u.þ.b. tvöfalt meiri hættu á
að deyja úr lungnakrabba-
meini en íslenskir karlmenn
yfirleitt. Fleiri vélstjórar dóu
einnig úr þvagblöðrukrabba-
meini og heilablóðfalli en bú-
ísafjörður:
4 hestar
handteknir
■ Starfsmenn ísafjarðar-
kaupstaðar lentu í óvenju-
lcgu verkefni um síðustu
helgi að því er segir í frétt
Vcstfirska fréttablaðsins.
Þeir gerðu leiðangur í
svokallað Holtahverfi að
áeggjan yfirmanna sinna
og lögreglunnar, og hand-
tóku þar 5 hesta scm höfðu
gcrst sekir uin átroðnine
og stuld á gróðri í görðum
Fjarðarbúa.
Hestunum var „stungið
inn" og fengu þeir að dúsa
inni uns eigendur þeirra
sóttu þá eftir helgina, en
áður höfðu þeir þurft að
greiða handtökukostnað,
kr. 11)00 á hest.
Með þessum aðgerðum
var verið að framfylgja
reglugerð um búfjárhald í
Isafjarðarkaupstað. Þar
segir m.a. að búfé skuli
ávallt vera í öruggri vörslu
búfjáreigenda, en ef það
bregöist skuli þeir bera
fulla ábyrgð á tjóni sem
búfé þeirra kann að valda.
Auk þess er þeim gert að
I greiða kostnað við
handsömun og geymslu
búfjárins.
Mætti þessi framtak-
semi ísfirðinga veröa
öðrum bæjarfélögum
hvatning til að framfyigja
settum reglugerðum um
þessa hluti á heimaslóö.
Hæstiréttur dæmir:
Félagsdómur
skal úrskurða
um kæru BSRB
■ llæstiréttur hefur staðfesl
þann úrskurð Félagsdóms að
frávísunarkröfu lögmanns
Reykjavíkurborgar, á kæru
BSRB vegna þess að ríkis- og
borgarstarfsmönnum voru ekki
greidd laun í verkfallinu, skuli
hafnað.
BSRB kærði þetta mál til
Félagsdóms en áður en dómur-
inn gæti tekiö málið til cfnis-
meðferöar krafðist Rcykjavík-
urborg þcss að málinu yrði vísað
frá dómnum. Félagsdómur
hafnaði kröfunni en sá úr-
skuröur var kærður-til Hæsta-
réttar skömmu fyrir síðustu
mánaðamót.
Samkvæmt þessu ntun félags--
dóntur taka kæru BSRB til cfn-
ismeðfcrðar á næstunni.
ast mátti við miðað við viðmið-
unarhópinn en sú niðurstaða
var þó ekki tölfræðilega
marktæk.
í skýrslu um rannsóknina er
bent á hve vélstjórar virðast
vera í sérstakri hættu miðað
við aðra varðandi þvagblöðru-
krabbamein, heilablóðfall og
þá einkum lungnakrabbamein,
nauðsynlegt sé að hefta þá
ntengun í starfsumhverfi vél-
stjóra sem gæti valdið þessu.
Er sérstaklega bent á asbest og
meðferð þess við viðhald og
viðgerðir, og einnig snertingu
við lífræn leysiefni, olíu, sót og
skyld efni.