NT - 27.11.1984, Síða 1

NT - 27.11.1984, Síða 1
1. tölublad l.árgangur Þridjudagur 27. nóv. 1984 Umsjón: Magnús S. Krist- insson og Eggert Skúlason. Póstkröfuhandbók árviss atburður ■ Póstkröfur og öll póstkröfuverslun er verslunarmáti sem hefur átt auknum vinsældum að fagna síðustu ár og er það skiljanlegt, þar sem að þetta fyrirkomulag sparar mörgum manninum sporin og tíma og er það eitt af því sem lítið er til í nútíma þjóðfélagi. Fólk úti á landi kann sérstaklega vel að meta þessa þjónustu, og það er víst að flest er hægt að kaupa í gegnum póstkröfur í dag. Nokkur nöfn hafa þó rutt sér meir til rúms en önnur á þessu sviði og eru sumir þeirra teknir tali í þessu blaði sem er helgað póstkröfunum. Þó er einn aðili sem ekkert er minnst á í þessu blaði, og er það af eðlilegum ástæðum, þar sem allir eru kunnugir starfsemi þess fyrirtækis. Pað er nefnilega ÁTVR. Það er öruggt að þessi aðili er einna stærstur í sendingum hér innanlands og eru ófáir lítrarnir sem þeir senda um landið þvert og endilangt. Líklega er mest um póstkröfur og póstverslun á þessum tíma sem nú fer í hönd ’ þegar jólin nálgast. Margar verslanir eru einnig farnar að stíla upp á þennan verslunarmáta í auglýsingum sínum. Það hefuf verið árviss viðburður að dagblöðin gefa út sínar póstkröfuhandbækur tímanlega fyrir jólin oger þetta ein slík. Vafalítið er að margir bíða þessa blaðs með óþreyju, þar sem rnikill hluti undirbúnings jólanna felst í því að velja og ákveða hvað eigi að gefa öllum ættingjunum, og er þetta blað því vel þegin hjálp ef að líkum lætur. Orbylgjuofnar varanleg gjöf sem skapar gleði og ánægju og kemur öllum í fjölskyldunni að notum Allar gerðir THOSIBA örbylgjuofnanna (þó ekki ER562) eru búnir DELTAWAVE örbylgjudreif- ingu, sem er alger bylting í dreifingu og nýtni örbylgjanna. Allir TOSHIBA örbylgjuofnarnir nema ER562 eru búnir snúningsdisk til að tryggja bestu matreiðslu. Kostir: Kynntu þér stórkostlega kosti T oshiba örbylgjuofn- anna, sem hafa skipað þeim í fremstu röð á heimsmarkaðnum um árabil - enda koma nýjung- arnar frá Toshiba stærsta framleiðanda heims á örbylgjuofnabúnaði. Þú getur bakað, matreitt kjöt, fisk og grænmeti með besta árangri svo leikandi létt. Þjónusta: Þú færð stóra litprentaða matreiðslubók með öllum ofnum (Þó ekki ER562) og nákvæmar leiðbeiningar og tímatöflur á íslensku. Dröfn Farestveit hússtjórnarkennari sérfræðingur okkar í matreiðslu í örbylgjuofnum býður þér slðan á matreiðslunámskeið án endurgjalds, þar sem þú færð fullkomna kennslu og uppskrifta og námskeiðagögn á íslensku. Góðir greiösluskilmálar. -mmm ER 694 Töivustýrður ofn með klukku, kjöthitamæli og stillan- legu kerfi fram í tímann. Verð kr. 24.900.- 33 ER 684 Tölvustýrður ofn með klukku stillanlegri í 2 sekúntur, orkustillir með níu stillingum. Verð kr. 21.300.- ER 674 Heimilisofninn, ofninn, sem fullnægjir þörfum allra ER 562 án snúningsdisks kr. 11.900.- venjulegra heimila. 9 skiptur orkurofi, klukkustilling í 5 ER 644 með snúningsdisk kr. 15.900.- sekúntur. Verð kr. 18.900.- Ofnar fyrir einfaldari matreiðslu. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. BERGSTAÐASTRÆTI I0A - S I M I 16995 TQSHIBA stærstir í örbylgjuofnum.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.