NT - 27.11.1984, Blaðsíða 9

NT - 27.11.1984, Blaðsíða 9
 Þriðjudagur 27. nóvember 1984 8! z_j kki er hægt að fjalla um póstverslun án viðtals 02 álits þess manns sem er höfuð herdeildarinnar sem stendnr í víglínunni við dreifingu á þeim post- kröfum og sendingum sem berast hverju sinm. Þessi yfirmaður er enginn annar en póstmeistari sjálfur Björn Björnsson. ■ íslendingar kunna misvel á póstkerfíð. Það er kannski ekki furða, hér sjáum við hluta af hinum mörgu umsóknum sem fólk getur þurft að fvlla út. Litið inn hjá póstmeistara Við lögðum leið okkar til Björns og þáðum hjá honurn kappisopa, og á milli þess sem við sötruðum kaffið þá lögðum við fyrir hann nokkrar spurn- ingar. - Eru póstkröfur stór þáttur í jólagjafakaupum íslendinga? „Póstkröfur eru verslunarmáti sem á auknum vinsældunt að fagna hérlendis. Hingað til hef- ur verið ntikið um að kröfur bærust frá öðrum löndum, en í dag er þetta fyrirkomulag orð- ið mun viðurkenndara meðal almennings, og einnig býður þetta uppá öruggari og fljótari þjónustu fyrir fólk. Öryggið er fólgið í því að verslanir sem bjóða þessa þjónustu ganga undantekningarlaust mjög vel frá vörunni og merkja hana skilmerkilega Þessar stóru sendingar fá líka skjótari af- greiðslu en pakkar frá einstak- lingurn." - Hvenær er mesta vertíðin í póstkröfunum? „Hún er í kringum mánaða- mótin nóvember-desember. Þá eru einkaaðilar að panta jólagjafir frá þeim verslunum sem auglýsa þessa þjónustu. Skór eru sérstaklega vinsælir og koma oft heilu og hálfu sendiferðabílarnir til okkar með jólaskó fyrir fólk sem býr úti á landi. Matarsendingar eru líka mjög algengar og þá sérstaklega fyrir jólin.“ - Verður meira að gera í jólaösinni í ár en vanalega? „Það verður líklega mjög svipað og undanfarin ár. Fólk dregur oft fram á síðustu stundu að senda frá sér það sem á að fara í póst fyrir jólin og því skapast þessi mikla ös síðustu tíu daga fyrir jól. Við þessu er ekkert að gera, þetta hefur verið svona undanfarin ár, og ég á ekki von á að þetta breytist í bráð. Mig langar að koma því á framfæri að megin- þorri fólks .sem skilar af sér pökkum sem senda á til út- landa fer með pakkana niður í Tryggvagötu þarsem bögglap- óststofan er til liúsa. Suniir keyra jafnvel ofan úr Breið- holti til þess að skila pökkum sem fara eiga til útlanda. Þetta fólk gerir sér ekki grein fyrir því að þó svo að þessum um- ræddu pökkum sé skilað á hin pósthúsin í Reykjavík þá gengur afgreiðslan alveg jafn fljótt fyrir sig, því að við tæm- um þessi útibú þrisvar á dag og færum pakkana niður í Tryggva- götu. - Eru Islendingar illa að sér í póstmálum? „Það eru til tvær gerðir af fólki sem kemur á pósthúsin. Önnur gerðin er fólk sem versl- arviðokkuralltárið.og kann vel á kerfið. Hin gerðin er mun sjaldséðari, í þeim skilningi að þeir koma til okkar sjaldan og þá helst í kringum jólin þegar mest er að gera. Þetta fólk er lítið inn í öllum þeim pappír- um sem fylla þarf út með hinum ýmsu sendingum. Oft heyrum við afsakanir á borð við „Ég gleymdi gleraugunum heima, og sé bara ekki hvað stendur á eyðublaðinu. Getur þú ekki fyllt það út fyrir mig?“ Að sjálfsögðu hjálpum við öllum þeim sem til okkar leita. Samt tel ég það æskilegt og sjálfsagt að fólk kynni sér betur hinar ýmsu reglur sem gilda varðandi skaðabætur fyrir tap- aðar sendingar og bréf og ann- að sem máli skiptir. Það myndi spara mörgum óþarfa fyrirhöfn og snúninga og ekki síst okkur.“ Að gefnu tilefni bað Björn Björnsson okkur um að birta hér með þessari grein yfirlit yfir þann frest sem fólk hefur til þess að koma pökkum og bréfum til hinna ýmsu landa eigi þau örugglega að komast til viðtakanda fyrir jól. Jafn- framt skorar Björn á lands- menn að vera nú tímanlega á ferðinni með jólapakkana svo að öruggt sé að allt komist til skila í tæka tíð. Eftirfarandi dagsetningar segja til um þann frest sem fólk hefur til að koma bréfum og bögglum í póst svo að tryggt sé að þeir komist til viðtakanda fyrir jól. Norðurlönd 16. desember Evrópa og önnurlönd ll.desember Innanlands 17.desember ABU veiðivörur ‘TiívaGni' Ambassadeur veiðihjól Cardinal veiðihjól Sendum í póstkröfu V Hafnarstræti 5 sími 16760 J ■ Björn Björnsson póstmeistari. í baksýn má sjá póstfjallið sem er að hlaðast upp. Þriðjudagur 27. nóvember 1984 9 þjónusta - útlendingar panta mikið - jafnt að gera allt árið ■ Starfsfólk Kjötbúrsins ásamt eigandanum Pétri Pét- urssyni. A gólfínu má sjá hluta af þeim póstsendingum sem senda átti þennan daginn til útlanda. ■ Flest allt virðist vera hægt að fá póstsent gegnum verslanir í dag. Föt, gjafavörur og ýmiskonar þjónustu- vörur er hægt að fá sent með pósti gegnum verslanir sem hafa þessar vörur á sínum snærum. Pó er nokkuO öruggt að póstverslun með mat er fáþekkt fyrirbæri, og jafnvel enn sjaldgæfara að þær sendi mat eftir pöntun út um allan heim. Við íslendingar getum þó státað af nokkrum slík- um verslunum. Ein slík er staðsett í Reykjavík, nán- ar tiltekið á Laugavegi 2. Ábyggilegt er að flestir kannast við heimilisfangið þar sem kjötbúð Tómasar var um árabil. Nú eru nýir eigendur teknir við og heitir verslunin Kjötbúrið. Við litum inn í Kjötbúrinu og vildum fræðast nánar um þessa sérstæðu starf- semi. Við hittum að máli Pétur Pétursson eiganda Kjötbúrsins og lögðum fyrir hann nokkrar spurn- ingar. Jafnt og þétt allt árið „Það er alltaf nóg að gera í póstversluninni allt árið. Á sumrin til dæmis sendum við mikið út af vörum sem útlendingar panta hjá okkur, og þá helst reyktan lax, harðfisk og kavíar. Námsmenn búsettir erlendis og aðrir íslendingar sem dvelja langdvölum erlendis eru fastir kúnnar hjá okkur allt árið," sagði Pétur þeg- ar við spurðum hann um hvernig vertíðinni væri háttað hjá þeim. Hvenær er mest að gera hjá ykkur? „Það er í kringum jólin, þá sendurn við mikið út af rjúpu og hangikjöti, einn- ig hér innanlands er mikið um að fólk panti hjá okkur jólasteikina, og þá oft sama fólkið ár eftir ár,“ sagði Pétur og vildi ítreka það fyrir fólki að ef það ætlaði að senda til ættingja eða vina erlendis yrði það að vera tímanlega í því að panta. Yfirleitt þegar pantað er fáum við sent bréf, eða kunningi þess sem pantar kemur til okk- ar og lýsir óskum þess sem fær sendinguna. Símapant- anir eru neyðarúrræði að okkar mati. Síðan sendúm við reikning til viðkomandi og hann sendir okkur pen- inga og þá afgreiðum við pöntunina. Þjónustan gengur mjög hratt fyrir sig vegna þess að við fáum sendan til okkar sér bíl sem flytur pantanirnar niður á pósthús, og þaðan skila þeir vörunni til neyt- enda. Hvernig hefur fólk kunnað að meta þessa þjónustu? „Fólk er mjög ánægt sem gefur að skilja. í 99% tilvika kemst pöntunin til skila á réttum tíma, og þessi fáu skipti sem eitthv- að fer úrskeiðis er það yfirleitt erlendum póst- keðjum að kenna, og þá bera þeir ábyrgð á send- ingunni. Við eigum marga fasta kúnna bæði hér heima og erlendis og við sendurn þeim reglulega þá vöru sem þeir óska eftir hverju sinni. Til dæmis er listamaðurinn Erró mjög góður kúnni og höfum við sent honum pakka til Thailands og víðar,“ sagði Pétur og benti jafnframt á að kvartanir væru svo til óþekkt fyrirbæri hvað þessa þjónustu snertir. Osló - hákarlinn Pétur sagði að yfirleitt væri um fljótlega þjónustu á matarsendingum að ræða erlendis, og væri honum sérstaklega minn- istætt eitt atriði, þegar sendur var hákarl til við- skiptavinar í Osló. Pakk- inn hafði orðið fyrir ein- hverju hnjaski á leiðinni og þar af Ieiðandi hafði losnað um umbúðirnar. Norsku tollverðirnir þekktu ekki þessa lykt og var pakkinn drifinn út í bíl og hann keyrður heim til eigandans. Honum var fenginn pakkinn með miklum afsökunum yfir því að sendingin hefði „skemmst" á leiðinni. Að lokum vildi Pétur segja þeim sem hefðu hug á því að notfæra sér þessa þjónustu, aðsendingarsem eiga að fara erlendis annað en til Norðurianda yrðu að vera komnar til versl- unarinnar fyrir 25. þessa mánaðar til þess að öruggt væri að þær kæmust til skila. Mun styttri frestur er að sjálfsögðu fyrir innanlands sendingar og á Norðurlöndin. ....jgi ögSB[3Q QEj3G3EH3EJ oobbqs BiSII 121101301 nBBOB FX-3600P Fonitanteg, ún meó öfei. Þar á meðal fytgni og tegnm. Verð kr. 1990,- □ a □ □ □ □ □ □ □’□ □ □ iÍiSB mmmmm m m o m m illlÉ j * > • ; Dömuúr. Verð kr. 1390,- Dömuðr. Verð kr. 980. FX-180P skðbtöhm. öflug tölvt sem hagt er eð forriti. Fytgniog tagnm. Verð kr. 1790,- CAStO SL7S0 S 'íí-:."' 7 8 9 +% 4 5 6 X MR •T 1 2 3 - M- AC C 0 • = + M+ Mjðg þunn, snertitakkar. Vorð kr. 970,- CABH3 Úr nwð snart&ri vekjmi. Vakjari AJUAAtm, tvö- skeiðkkðdta. Varð kr. 3200,- fakka timL Vorð kr. 27S0, Vakjatakkáka. Varð kr. 790,- Veggklukka. Varðkr. 1300,- VI VII . .. .. T' *' “T T- sr t V CASIO "*pb“io6 Jjjjj CpCpCpCpEpCplIplI'IIIIpŒl Hác|:[Í!iá[!p[±iácps séaáápáá Siö Frðbart Mjðmbarð kenrár þér að sgla með aðstoð fðts. Vorð kr. 3970, «n3BNMBKÍMm ' '•aaaáJnMMBNaua Ki I I 1» 111 i i M Ödýr baaictöbm. Varð hr. 1990,- Híðmbarð mað anðbagS. Vari ks. 3*70,- ,|M, Af. ..Mpn-<n - m. • -- *aa - - . T » a. m t « .. .». •miniaiwrai 0| 1Q MBMrWMUMUMA. IVIMB qf!¥ mklMfMN- ur Mk hver) aam gayma forrit aða upgfýsingar I aða utan mi tðb^ arn. Varðkr. S2M,- Þegar gæðin eru á gjafvarðl Umboðið Bankastrsti,«. 27510.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.