NT - 03.01.1985, Side 5
14
björgunarlaun
■ Sett hefur verið trygging að
upphæð 4 milljónir danskra
króna, fyrir greiðslu björgunar-
launa vegna björgunar græn-
lenska rækjutogarans seni Vest-
mannaey kom til bjargar í síð-
ustu viku.
Trvggingin var sett á laugar-
dag, eftir að togarinn hafði
verið hindraður í að yfirgefa
Vestmannaeyjar.
Áformað var að togarinn færi
í slipp í Vestmannaeyjum. og
fór útgerð Vestmannaeyjar því
e.kki fram á tryggingu við sjó-
prófin, erfóru franr á föstudag.
Síðar kont í Ijós að ekki var
unnt að taka togarann upp í
skipalyftunni í Vestmannaeyj-
um, og hugðist togarinn halda
til Færeyja til viðgerðar.
Áður en togarinn fór, fór
útgerð Vestmannaeyjar fram á
að liann yrði stöðvaður þar til
trygging hefði verð sett. Jón
Þorsteinsson sýslufulltrúi fór þá
um borð í togarann og var sett
trygging fyrir björgunarlaunum.
Við sjópróf kom fram að
bobbingakeðjur togarans höfðu
flækst í skrúfu hans, en
skemmdir voru ekki fullkannað-
Fimmtudagur 3. janúar 1985 5
Veðurguðirnir hliðhollir Skagfirðingum um hátíðirnar:
Rólegt gamlárs-
kvöld á Króknum
Frá fréttaritara NT í Skagafírði Ö.I».
■ Áramótadansleikir á
Bifröst, Miðgarði og Höfðaborg
voru fjölsóttir og fóru vel fram.
Að sögn lögreglu voru áramótin
mjög friðsæl á Sauðárkróki, og
engin ólæti eins og oft hafa
verið.
Stafalögn var á gamlárskvöld
og nýársdag. Á ganrlárskvöld
var glampandi tunglskin og 3-5
stiga frost, og komu margir að
áramótabrennunum tveim, senr
brunnu á Skagafirði um áramót-
Lækkun lestarfargjalda
á Norðurlöndunum:
Ungt fólk fær
afsláttarkort
Veður hefur verið gott í
Skagafirði yfir hátíðirnar. Allir
vegir hafa haldist opnir, nema
hvað Siglufjarðarleið lokaðist á
2. dag jóla en var opnuð daginn
eftir.
Að sögn lögreglumanna á
Sauðárkróki hefuryeriðfriðsælt
þar yfir hátíðirnar og ekki er
vitað um nein slys eða óhöpp í
héraðinu.
Mikið annríki var í póst- og
fólksflutningum fyrir jólin, en
fjölmargir Skagfirðingar sem
eru við nám eða vinnu í fjarlæg-
um landshlutum komu heim
fyrir jól.
Kirkjusókn var góð hjá þeim
5 prestum er þjóna Skagafjarð-
arsýslu, en Miklabæjarprestur-
inn er nú í ársleyfi.
■ Grænlenski togarinn
dreginn til Vestmannaeyja.
Á innfelldu inyndinni eru
skipst jórarnir Eyjólf'ur Pét-
ursson skipstjóri á Vest-
inannaey t.h. og skipstjóri
grænlenska togarns t.v.
NT-mvnd: Eyjólfur
■ Ákveðið hefur verið að
gefa út sérstök afsláttarkort
fyrir ungt fólk með járn-
brautum á Norðurlöndun-
um. Kortin eru hugsuð á
svipaðan hátt og hin svoköll-
uðu Inter rail kort, sem mik-
ið eru notuð af ungu fólki,
sem ferðast með lestum á
Evrópuleiðum. Pessi nýju
Norðurlandakort verða gef-
in út í fyrsta sinn á þessu ári,
sem er sérstakt æskulýðsár.
Það eru norrænu félögin
sem hafa barist fyrir þessu
máli og komið því á framfæri
við ríkisstjórnir landa sinna.
Lækkun ferðakostnaðar
heldur áfram að vera bar-
áttumál norrænu félaganna
og verður lögð mikil áhersla
á lækkun fargjalda ferja og
flugvéla.
Nýársgleði:
Ráðist á
dyravörð
■ Til ryskinga kom milli
dyravarðar og samkomu-
gests á áramótafagnaði í
Sigtúni. Var dyravörðurinn
fluttur á slysadeild vegna
meiðsla í höfði en gesturinn
í fangageymslur. Hann var
ölvaður.
Vinnuslys á nýársdag:
Klemmdist
á fingri
■ Vinnuslys varð á nýársdag þegar maður
klemmdist illa á fingri á bílaverkstæði
Töggurs á Bíldshöfða. Einn af starfsmönn-
unr fyrirtækisins var þar að gera við bifreið
sína þegar óhappið átti sér stað. Honum
tókst þó að hringja eftir sjúkrabíl og var
fluttur á slysadeild.
Enn eitt banaslys í umferðinni?
Kona lést eft-
ir 19daga
sjúkrahúslegu
■ Kona á sjötugsaldri sem varð fyrir
bifreið á Hringbraut þann 11. desember lést
síðastliðinn sunnudag. eftir 19 daga sjúkra-
húslegu. Einu sjáanlegu áverkar á konunni
eftir slysið voru fótbrot en krufning mun nú
leiða í ljós hvort dánarorsökina má rekja
beint til slyssins eða sjúkdóms sent hún
hefur fengið á spítalanum.
Konan var að ganga yfir götuna þegar
slysið varð. Að sögn lögreglu leit það þá
ekki út fyrir að vera ntjög alvarlegs eðlis.
]ÖN\ ^
Ætlið þið
á gömlu dansana
í vetur?
Athugið þá að dansnámskeið þjóðdansafélagsins byrja
mánudaginn 7. janúar í Gerðubergi.
Fyrir fullorðna eru bæði byrjenda og framhaldsflokkur ásamt
barnaflokkum og unglingaflokki.
Innritun í símum 43386 og 23609 kl. 14-19 virka daga.
Komið í dansinn með okkur
Þ.R.