NT - 03.01.1985, Blaðsíða 10
líl’
Fimmtudagur 3. janúar 1985 10
á Hótel Sögu
mmm
§mm
teðámaa
■ „Glæsilegasti fatnaður í heimi kemur frá Frakklandi, en það er ekki auðvelt að ræða um
franska tísku, sérstaklega þá grein sem hefur verið kölluð „Haute-Couture“, vegna þess að
saga þessarar næmu listgreinar, sem er á mörkum listsköpunar og lífsmáta, er svo
samtvinnuð sögu Parísarborgar. Fataframleiðsla er þróttmikil atvinnugrein í stöðugri sókn,
en franskur fatnaður er of sjaldséður á íslandi."
Þannig kemst Gina Letang, verslunarfulltrúi Frakklands, að orði um franska tísku og víst
var sjon sögu ríkari á Hótel Sögu í desember sl. þar sem Módelsamtökin 79 sýndul
nýjustu tískuvörurnar frá París fyrir dömur, herra og börn. Glæsilegur varningur gerður af
frægustu fatahönnuðum heims og fór sýningin hið besta fram undir stjórn heimsþekkts
kóreograjs, Micky Engel, sem kom sérstaklega til íslands til að sjá um hana.
Varningurinn sem sýndur var var frá fyrirtækjum eins og Anastasia, Cacharel, Pierre
Cardin, Kenzo, Sonia Rykiel, Yves Saint Laurent og Givenchy, ásamt Christian Dior, svo
eitthvað sé nefnt. Verslanir sem sýndu fatnað voru m.a. Eva, Gullfoss, Hjá Báru, Christine,
Pelsinn, Herragarðurinn, Englabörnin, Pakkhúsið og Endur og hendur. En sjón er sögu
ríkari eins og áður sagði og þvi verður þetta ekki haft lengra en við látum myndirnar hans
Sverris Vilhelmssonar Ijósmyndara NT tala. Gjörið þið svo vel.
/.