NT - 03.01.1985, Side 14
líl'
Fimmtudagur 3. janúar 1985 14
Utvarp kl. 22.35:
Fimmtudagsumræðan:
1984gert upp
■ í fyrstu fimmtudagsum-
ræðu ársins 1985, sem hefst í
útvarpi kl. 22.35 í kvöld,
verður umræðuefniö nokkurs
konar uppgjör við árið 1984
að sögn stjórnanda þáttarins
Páls Heiðars Jónssonar, og
fær hann til liðs við sig ýmsa
sem sitthvað hafa til málanna
að leggja þar um.
„Hugmyndin er að reyna
að slá striki undir árið 1984,
leggja saman debct og kredit
og sjá hvernig okkur hefur
vegnað. Ég reikna með að
það verði fyrst og fremst
fjallað um hvernig okkur hef-
ur vegnað á efnahagslega
sviðinu, en þaö er hugsanlegt
að við rcynum að fara eitt-
hvað víðar og spyrjum um
uppskcru ársins á flciri svið-
um en bara í fiskinum og
ketinu," segir Páll Heiðar.
Ekki kvað Páll þaö ætlun
sína að fara út í stjórn-
málabaráttuna á liðnu ári eða
kalla til stjórnmálamenn,
enda hafi þeir nógan vettvang
til að láta í ljós álit sitt á. „Ég
hef hugsaö mér frekar að
lcita til manna, sem lást við
þessar mælingar, hagfræð-
inga og manna sem standa
framarlega í atvinnumála-
samtökum og verkalýðs-
hreyfingunni,“ segir hann.
■ Viðmælendur Páls Heið-
ars í iimmtudugsumræðunni
verða m.a. hagfræðingarnir
Utvarp kl. 21:40:
Beethoven, Ravel
og Chopin í túlkun
Stephanie Brown
Björn Björnsson hjá ASÍ,
Björn Arnórsson hjá BSRB og
Vilhjálmur Egilsson hjá VSÍ.
■ Stephanie Brown hélt
hljómleika hér á landi með
Islensku hljómsveitinni í nó-
vember.
■ í nóvember síðastliðnum
kom hingað til lands ung
bandarísk stúlka, Stephanie
Brown, og lék á píanó á
tónleikum með íslensku
hljómsveitinni. Tónleikarnir
Rás2kl. 10.
Morgunþáttur með
gamla sniðinu
- en breytingar fyrirhugaðar
Þeir Sigurður Sverrisson
■ í morgunþætti Rásar 2 í
dag halda þeir um stjórnvölinn
Sigurður Sverrisson og
Kristján Sigurjónsson.
Að sögn Sigurðar veröur
þátturinn með gamla góða
sniöinu í dag, þ.e. hefst með
leik á íslenskri tónlist, síðan
verður kynntur tónlistarmaður
cða hljómsveit, sem um hádeg-
isbil í gær var óljóst hver yrði,
o.s.frv.
En nú eru einhverjar breyt-
ingar í bígerð varðandi morg-
unþættina, sem Sigurður vildi
hafa sem fæst orð um. Pær
koma þó ekki til framkvæmda
á morgun, og verður þátturinn
í dag því eins og fyrr segir með
gamla góða sniðinu.
og Kristján Sigurjónsson hafa
veg og vanda af morgunþætti
Rásar 2 í dag.
urðu tvennir, aðrir á Selfossi
en hinir í Reykjavík.
Stephanie Brown er ekki
nema 29 ára gömul, en vakti
óhemju athygli og aðdáun
fyrir fágaða túlkun sína á
verkum m.a. eftir Chopin og
Mozart. Hún er fædd í Color-
ado, en fluttist til New York
með foreldrum sínum
14 ára gömul. Þar hóf
hún nám við Juillard tónlist-
arháskólann, lauk þaðan BA
prófi 19 ára gömul og
meistaraprófi þrem árurn
síðar. Pá þegar var hún orðin
þekktur píanóleikari og síðan
hafa streymt til hennar tilboð-
in víðs vegar að úr heiminum
að leika með heimsþekktum
hljómsveitum undir stjórn
enn þekktari stjórnenda.
í kvöld gefst útvarpshlust-
endum kostur á að hlýða á
leik þessarar listakonu kl.
21:40. Þar leikur hún verk
eftir Ludwig van Beethoven.
Maurice Ravel og Frédéric
Chopiti.
Utvarp kl. 20.30:
Sumarið ’37
til heiðurs
Þorsteini Ö.
■ Þorsteinn Ö. Stephensen leikur aöalhlutverkiö
Jökuls Jakobssonar Smnariö ’37.
leikriti
■ í kvöld kl. 20.30 verður
endúrflutt í útvarpi lcikrit Jök-
uls Jakobssonar Sumarið '37.
Leikritið er að þessu sinni flutt
í tilefni af 80 ára afmæli Por-
steins Ö. Stephensen þann 21.
des. sl. Það var frumsýnt hjá
Leikfélagi Rcykjavíkur árið
1968 og fvrst flutt í útvarp árið
1969. "
Leikurinn fer fram á heimili
Davíðs, efnaðs útgerðarmanns
senr leikinn er af Þorsteini Ö.
Stephensen. Eiginkona
Davíðs, sem lengi hefur verið
geðveik, er nýlátin og börn
þeirra hjóna eru stödd á
heimilinu ásamt mökum sínum
að jarðarförinni lokinni.
Leikurinn lýsir samskiptum og
sambandsleysi þessa fólks;
fortíðinni sem reist hefur ó-
sýnilega og ókleifa múra milli
þess.
Með sumrinu '37 urðu at-
hyglisverð þáttaskil á höf-
undarferli Jökuls Jakobssonar
en leikritið á rnun meira skylt
við síðari verk hans eins og
Dómarinn og Vandarhögg en
fyrstu leikrit hans.
Leikendur eru auk Þorsteins
Helga Bachmann, Edda Þórar-
insdóttir, Helgi Skúlason og
Þorsteinn Gunnarsson. Leik-
stjóri er Helgi Skúlason.
Fimmtudagur
3. janúar
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn Á
virkum degl. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. þáttur Sigurö-
ar G. Tómassonar frá kvöldinu
áöur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veður-
fregnir. Morgunorö - Sigurjón
Heiðarsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Umsjón: Sigrún Siguröardóttir
(RÚVAK)
9.25 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Sagt hefur það verið“ Hjálm-
ar Arnason og Magnus Gislason
sjá um þátt af Suðurnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman.
13.30 Tónleikar.
14.00„Þættir af kristniboðum um
víða veröld" eftir Ciarence Hall.
„Skipstjórinn á Morgunstjörnunni"
Eleanor Wilson á Kyrrahafseyjum.
Ástráður Sigursteindórsson les
þýðingu sína.
14.30 Á frivaktinni Þóra Marteins-
dóttir kynir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Siðdegistónleikar a. Sónata i
Es-dúr op. 120 nr. 2 eftir Johannes
Brahms. Pinchas Zukerman og
Daniel Barenboim leika á víólu og
píanó. b. Pianókvartett nr. 4 i
Es-dúr op. 16 eftir ludwig van
Beethoven. Flæmski píanókvarf-
ettinn leikur.
17.10 Síðdegisútvarp. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Endurtekið leikrit: „Sumarið
’37. Höfundur: Jökull Jakobsson.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephens-
en, Helga Bachmann, Þorsteinn
Gunnarsson, Edda Þórarinsdóttir
og Helgi Skúlason. (Áður flutt
1969).
21.40 Gestur í útvarpssal Stephanie
Brown frá Bandaríkjunum
leikur á pianó. a. Sónata nr. 10 op
14 nr. 2 eftir Ludwig van Beetho-
ven. b. Prelúdia úr „Le Tombeau
de Couperin" eftir Maurice Ravel
c. „Berceuse" eftir Frédéric
Chopin.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Fimmtudagsumræðan Árið
1984 - Dróg aö uppgjöri. Umsjón;
Páll Heiðar Jónsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur
3. janúar
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Kristján Sigurjónsson og
Sigurður Sverrisson.
14.00-15.00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leópold
Sveinsson.
15.00-16.00 Ótroðnar slóðir Kristi-
leg popptónlist. Stjómendur: Andri
Már Ingólfsson og Halldór Lárus-
son.
16.00-17.00 Jazzþáttur Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
17.00-18.00 Gullöldin Lög frá 7.
áratugnum. Stjórnandi: Þorgeir
Ástvaldsson.
Hlé
20.00-24.00 Kvöldútvarp
Föstudagur
4. janúar 1984.
19.15 Á döfinni. Umsjónarmaöur
Karl Sigtryggsson. Kynnir Birna
Hrólfsdottir.
19.25 Krakkarnir i hverfinu. 3.
Inga flytur í hverfið. Kanadískur
myndaflokkur i þrettán þáttum, um
atvik i lífi nokkurra borgarbarna.
Þýðandi Kristrún Þórðardóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós Þáttur um innlend
málefni.
21.10 Skonrokk Umsjónarmenn:
Anna Hinriksdóttir og Anna Kristin
Hjartardóttir.
21.55 Hláturinn lengir lifið Breskur
myndaflokkur i þrettán þáttum um
gamansemi og gamanleikara í fjöl-
miðlum fyrr og síðar. Þýðandi:
Guðni Kolbeinsson.
22.55 Fanný og Alexander. Siðasti
hluti. Sænsk framhaldsmynd í fjór-
um hlutum eftir Ingmar Bergman.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
23.50 Frettir i dagskralok.