NT - 24.01.1985, Blaðsíða 3
■ Það leynast margar hættur
á leiðinni í skólann og þó hafi
verið komið fyrir hraðahindrun-
um þarf samt oft að bíða til að
komast yfir götuna.
NT-raynd Róbert
Fimmtudagur 24. janúar 1984 3
Fréttir
SVR hættir að aka Vesturgötuna vegna hraðahindrana:
„Nauðvörn hjá
vagnstjórunum"
- segir Sveinn Björnsson forstjóri SVR og ætlar
að biðja borgarstjóra að taka málið upp í dag
■ „Stjórn SVR hefur ekki
fjallað um málið og það voru
vagnstjóramir sjálfir sem tóku
þetta upp hjá sér en við munum
hafa samband við borgarstjór-
ann og biðja hann um að taka
þetta mál til athugunar‘>; sagði
Sveinn Björnsson forstjóri SVR
er NT leitaði álits hans á þeirri
ákvörðun bflstjóra á leið 2 að
hætta að aka Vesturgötuna eftir
að hraðahrindrunum var komið
þar upp.
Telja bílstjórarnir að hraða-
hindranirnar þjóni ekki þeim
tilgangi sem þeim var ætlað í
upphafi, heldur skapi þær vissa
hættu í umferðinni. Benda þeir
á að það sé óþolandi að þurfa að
aka á öfugum vegarhelmingi að
gatnamótum og stafi af því mikil
hætta, auk þess sem það sé brot
á umferðarlögunum. Hafa allir
bílstjórarnir á leið 2, Grandi-
Vogar, undirritað mótmæla-
skjal sem sent hefur verið um-
ferðarnefnd Reykjavíkur, borg-
arstjóra og forstjóra SVR.
Umferðarnefnd hélt fund í
gær þar sem m.a. var fjallað um
þetta mál, en að sögn Guttorms
Þormar, framkvæmdastjóra,
munu nefndarmenn ætla að
skoða málið betur og verður
annar fundur haldinn að viku
liðinni. Sagði Guttormur að
þessar hindranir væru til komn-
ar eftir ítrekaðar óskir íbúa og
hverfissamtaka, sem lengi
höfðu hamrað á því að hraðinn
á Vesturgötunni væri allt of
mikill. Árið 1983 voru sett niður
skilti um 30 km hámarkshraða
en þau dugðu lítið. Sú leið var
valin að reyna vegaþrengingar,
í stað vegahækkana sem væru
mjög illa séðar af hálfu SVR, en
eins og nú væri komið í íjós
mæltist þetta ekki heldur vel
fyrir.
Guttormur sagði aðspurður
að ekki kæmi til þess að þessar
þrengingar yrðu fjarlægðar eða
þeim breytt að svo stöddu, það
yrði rætt á næsta fundi, nema þá
að borgarráð, sem er æðsta vald
í þessum málum, ákveði að
breyta þessu. Átti hann von á
að íbúar væru óánægðir með
leiðarbreytinguna hjá SVR.
Það kom og fram hjá Sveini
að mikil óánægja væri meðal
íbúa í Vesturbænum yfir þessari
breytingu og hefði töluvert ver-
ið hringt til þeirra til að kvarta.
Sagði hann það skiljanlegt en á
meðan verið væri að skoða þessi
mál myndu vagnarnir aka áfram
Mýrargötuna. Bætti hann því
við að ef þrengingarnar yrðu
hafðar á Vesturgötunni til fram-
búðar þyrfti að huga vandlega
að leiðum fyrir Granda-Voga í
framtíðinni.
Sagði Sveinn enn fremur að
það hefði komið hálfflatt upp á
sig þegar búið var að setja þetta
upp í síðustu viku og hefði hann
fulla samúð með aðgerðum
vagnstjóranna sem ekki teldu
sig geta ekið þarna áhættulaust.
Hann sagði að deila mætti um
hvernig standa ætti að svona
ákvörðun en e.t.v. mætti kalla
þetta sjálfsvörn hjá bíistjórun-
um. Kvaðst hann mundu fagna
því að geta rætt þessi mál við
borgarráð, því þetta væri þeim
til ama hjá SVR, en engin
ákvörðun lægi fyrir um það.
Kísiliðjan við Mývatn fær 15 ár:
Námaleyf ið gefið
út í næstu viku
Náttúruverndarráð kemur af fjöllum
skýrt var frá ákvörðun iðn-
aðarráðherra. Segir í at-
hugasemdinni, að frétt
þessi hafi komið náttúru-
verndarráði mjög á óvart,
þar sem yfir stóðu viðræð-
ur við iðnaðarráðuneytið
um ýmis atriði er varða
leyfisveitinguna.
Eftir því, sem NT kemst
næst, verður tekið tillit til
ýmissa ábendinga
Náttúruverndarráðs við
framlengingu námaleyfis-
ins. Þannig mun eiga að
veita ákveðnum tekju-
stofni til rannsókna á líf-
ríki svæðisins á næstu
þremur árum og ennfrem-
ur mun vera gert ráð fyrir
endurskoðunarákvæði í
leyfinu. Verður hægt að
endurskoða það hvenær,
sem er, ef þurfa þykir.
Óperutónleikar Sinfóníunnar í kvöld:
ítalskur tenórsöngvari
í stað Nicolai Gedda
■ Það er ungur ítalskur tenór- í haust.
söngvari, Pietro Ballo, sem hleyp- Pietro Ballo er í hópi þekktustu
ur í skarðið fyrir Nicolai Gedda á ungra söngvara ítalíu. Hann kom
óperutónleikum Sinfóníuhljóm- fyrst fram á óperusviði í Treviso
sveitar lslands í kvöld. Gedda skammt frá Feneyjum 1979 í aðal-
forfallaðist á síðustu stundu vegna hlutverkinu íDon Pasquale eftir
veikinda, en vonir standa til að Donnisetti.
hann gisti ísland síðar í vetur eða
■ Námaleyfi Kísiliðj-
unnar við Mývatn verður
framlengt um 15 ár, þegar
það rennur út á næsta ári,
og mun Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráð-
herra gefa það út í næstu
viku. Upphaflega stóð til
að tilkynning um það bær-
ist í gær, en ákveðið var að
fresta útgáfu leyfisins á
meðan hugað væri frekar
að einstökum atriðum
þess.
Náttúruverndarráð vildi
aðeins framlengja náma-
leyfið um 5 ár, þar sem
ekki væri lokið lágmarks-
rannsóknum á lífríki nýja
námasvæðisins. Ráðið
sendi í gær frá sér athuga-
semd við frétt sjónvarps-
ins á þriðjudag og Morg-
unblaðsins í gær, þar sem
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
□NS
KR.169.000
Viö höfum náö slíkum,,kjarasamningum”
um verö á Skoda aö síöasta gengisfelling
er hér meö afturkölluö. verðið hefur
aldrei veriö hagstæöara.
EF ÞETTA ERU EKKI
EFNAHAGSRAÐSTAFANIR.
..ÞA HVAÐ?