NT - 24.01.1985, Page 20
Útlönd
Fimmtudagur 24. janúar 1984
20
Svíþjóð:
Stutt í að þeir framleiði kjarnavopn?
Bændur hreinsa Haf nargötur
■ Eftir mikla kulda lyrr í þessum mánudi hefur slabb og snjóbleyta plagad frændur okkar
Dani. Nú á þriðjudag kölluðu þeir út her snjómokstursmanna til að hreinsa Kaupmannahafnar-
götur. Til þess að verkið gengi sem allra fljótast fyrir sig fengu þeir bændur frá Sjálandi til að
hjálpa til.
Símamynd-POLFOTO
útbreiðsiu kjarnorkuvopna,
sem varð til þess að Bandraíkja-
menn neituðu að aðstoða þá við
uppbyggingu kjarnorkuiðnað-
arins af ótta við að Brasilíumenn
myndu koma sér upp kjarn-
orkuvopnum. Pessvegna gerðu
Brasilíumenn samninga við
Vestur-Þjóðverja um byggingu
átta 1.245 megawatta kjarn:
orkurafstöðva fyrir árið 1990. í
þessu samkomulagi skuldbindur
þýska fyrirtækið Kraftwerk Un-
ion sig meðal annars til að veita
Brasilíumönnum fulla aðstoð
við öflun nauðsynlegrar tækni-
þekkingar til að þeir geti endur-
unnið úraníum sem eldsneyti.
Þannig eiga Brasiiíumenn að
geta sjálfir framleitt eidsneyti
fyrir kjarnaofnana úr úraníum
sem finnst í Brasilíu og endur-
unnið það síðan á þann hátt að
það verði hægt að nota það í
kjarnorkusprengjur.
Sem stendur er samt ekki víst
hvað verður úr þessum kjarn-
orkuvæðingaráformum Brasi-
líumanna þar sem ný borgaraleg
ríkisstjórn hefur sterkar efa-
semdir um ágæti kjarnorkunn-
ar.
Brasilíumenn eign-
ast kjarnorkuver
Brasilía-Reuler
■ Brasiiíumenn tóku fyrsta1
kjarnorkuver sitt í notkun nú í
þessum mánuði eftir sjö ára
tafir vegna ýmissa tækniörðug-
leika.
Þegar vinna hófst við kjarn-
orkuverið fyrir 13 árum lýstu
stjórnvöid því sem hagkvæmu
fyrirtæki sem myndi spara
Brasiiíumönnum 22.000 tunn-
ur af olíu á dag, eða sem
svaraði um 220 milljón dollur-
um á ári. En andstæðingar vers-
ins liafa bent á að bygging
kjarnorkuversins hefur kostað
1,8 milljarða dollara, þar af
40% í erlendum lánum. Þeir
segja að sambærileg virkjun á
vatnsafli hefði aðeins kostað
þriðjung á viö kjarnorkuverið.
Nýkjörinn forseti Brasilíu,
Tancredo Neves, segir kjarn-
orkuverið eitt af mörgum dæm-
um um óhagkvæma fjárfestingu
sem leitt hafi til þess að Brasi-
líumenn skulda nú um hundrað
milljarða dollara erlendis. Þrátt
fyrir þetta segir forsetinn að
samningum Brasilíumanna við
Vestur-Þjóðverja um byggingu
fleiri kjarnorkuvera verði ekki
■ Hinn nýkjörni forseti í
Brasilíu. Tancredo Neves. læt-
ur sér fátt uni finnast um
kjarnorkuvæðingu iandsins.
rift þótt það verði að endur-
skoða þá.
Herstjórnin í Brasilíu neitaði
á sínum tíma að skrifa undir
alþjóðasamning um bann við
ísraelsher gjaldþrota
Jerúsalem-Keuter
■ Embættismaður í varn-
armálaráðuneyti ísraels segir
að herinn sé gjaldþrota og
ekki séu lengur til peningar til
að greiða reikninga fyrir elds-
■ Myndin sýnir líkan að her-
þotum sem Israelsmenn hafa
byrjað framleiðslu á. Fram-
leiðsla þeirra er umdeild enda
talið af mörgum að framleiðsla
þotanna kosti efnahagslífið of
mikið. 3000 manns vinna við
framleiðslu hennar.
neyti, síma, matvæli og jafnvel
vopn og skotfæri.
Sparnaðarráðstafanir
stjórnarinnar í ísrael hafa bitn-
að mjög á hernum sem skuldar
til dæmis sjö milljón dollara í
símakostnað. í þessari viku
fyrirskipaði samgönguráðherra
Israels símafyrirtæki ríkisins
að loka símum hersins vegna
vangoldinna skulda. Einungis
þær línur, sem eru taldar mjög
nauðsynlegar, eru hafðar
opnar.
Talsmaður heilbrigðisráðu-
neytisins segir að í sumum
sjúkrahúsum sé hætt að láta
bæklaða hermenn fá lyf vegna
skulda varnarmálaráðuneytis-
ins við sjúkrahúsin. Sam-
kvæmt frétt í írsraelska út-
varpinu skuldar ráðuneytið
líka um 57 milljónir dollara til
olíufélaga.
Ymis fyritæki, sem selja
hernum matvæli, kvarta einnig
sáran yfir skuldunum.
Á síðasta ári eyddu ísraels-
menn meira en fjórum mill-
jörðum dollara til hermála sem
er meira en tvöfalt hærri upp-
hæð en öll útgjöld til heil-
brigðis- og menntamála.
Varnarmálaráðherra ísra-
els, Yitzhak Rabin, hefur farið
fram á sérstaka fjárveitingu til
þess að kosta flutninga fsraels-
hers frá Suður-Líbanon.
■ í gær voru unnin skemmdarverk á fjölda trukka í nikkeinámu í Nýju-Kaledóníu. Ekki er
talið að Kanakar, frumbyggjar eyjanna sem berjast fyrir sjálfstæði, beri ábyrgð á skemmdarverk-
unum. Eyjarnar hafa verið undir stjórn Frakka síðan 1853. Alls skemmdust 4 jarðýtur og 21
trukkur í gær.
Símaimnd POLFOTO
Holland:
Mótmæli til stuðnings
breskum kolanámamönnum
100 hertóku hollenska Verkamannasambandið
Frá Reyni Þór Finnbogasyni frétlaritara NT í
Hollandi:
■ Nú í vikunni hertóku rúm-
lega 100 verkamenn aðalstöðvar
Verkamannasambandsins hol-
lenska (FNV) í Amsterdam.
Frakkland:
Leiðtogi
Kanaka
rekinn úr
þinginu
Paris-Reuter
■ Jean-Marie Tjibaou,
leiðtogi sjálfstæðishreyf-
ingar Kanaka á Nýju-Kal-
edóníu var neyddur til að
yfirgefa þingfund í franska
þinginu í gær. Hægrimenn
mótmæltu nærveru hans
en á dagskrá fundarins
voru tillögur um að áfrant
yrði lýst yfir neyðarástandi
á eyjunum.
Tjibaou sagðist ekki
hafa gert sér grein fyrir að
hann væri svona valda-
mikill.
Mennirnir mótmæltu því að
Verkamannasambadið hefur
ekki stutt verkfall kolanáma-
manna á Bretlandi með því að
stöðva kolaútflutning til
Bretlands.
Mennirnir sögðust ekki yfir-
gefa bygginguna fyrr en Verka-
mannasambandið hefði lofað að
bæta ráð sitt og grípa til harðra
aðgerða og stöðva kolaútflutn-
inginn til Bretlands.
Forsvarsmenn Verkamanna-
sambandsins sögðust ekki geta
fallist á þessar kröfur og kölluðu
lögregluna á staðinn og rýmdi
hún bygginguna.
Mótmælaaðgerðirnar fóru
friðsamlega fram og engin átök
urðu þegar lögreglan rýmdi
húsið.
Verkamannasambandið hol:
lenska hefur lengi haft áætlun á
prjónununt um aðgerðir til
stuðnings bresku kolanáma-
mönnunum og hefur t.d. aö-
stoðað þá með fjárframlögum
sem nema urn 16 milljónum
króna. Verkamannasambandið
hefur ekki talið sér fært að
stöðva útflutning á kolum þar
sem það kæmi harðast niður á
hollenskum verkamönnum og
myndi stefna atvinnuöryggi
þeirra í hættu.
Enn
eykst
gróði
Volvo
Cautaborg-Reuter
■ Gróði Volvo jókst enn
á síðasta ári. í frétt frá
fyrirtækinu segir að deildir
Volvo, sem framleiða
þungavinnuvélar muni
renna saman við banda-
rískt fyrirtæki og verði
stofnað nýtt risafyrirtæki
á því sviði.
Forstjóri Volvo, Per
Gyllenhammar sagði að
gróði fyrirtækisins á síð-
asta ári hafi verið 7 mill-
jarðar S.kr. (28 milljarðar
í.kr) og hafi gróðinn aukist
um 68% frá fyrra ári. Gyll-
enhammar lýsti einnig
áætlun fyrirtækisins um að
reisa nýja bílaverksmiðju
í Vestur-Svíþjóð.
Gróði Volvo jókst þrátt
fyrir minni sölu.
Hið nýja risafyrirtæki
sem Volvo og bandaríska
fyrirtækið Clark Equip-
ments munu stofna mun
verða þriðja stærsta fyrir-
tæki sinnar tegundar, næst
á eftir bandaríska fyrir-
tækinu Caterpillar og jap-
anska fyrirtækinu Ko-
matsu.
Volvo hefur þanist út á
undanförnum árum og
hefur m.a. fjárfest í
olíuleit, matvælafram-
leiðslu og í evrópskum
bönkum.
Volvo er almennings-
hlutafélag en sænskir elli-
lífeyrissjóðir eiga stóran
hluta hlutafjársins.