NT - 29.01.1985, Qupperneq 4
Ll
Þriðjudagur 29. janúar 1985
■ Á aldrinum 2 Vi til 3 ára cru allar barnatennurnar komnar í Ijós, heilbrigðar og hreinar tennur... ■
Tannverndardagur í grunnskólum landsins:
...en svona geta þær líka litið út. Skemmdar og óhreinar tennur.
Laugardagssælgæti getur dregið úr
sælgætisneyslu aðra daga vikunnar
- hægt er að draga úr tannskemmdum með fyrirbyggjandi aðgerðum
■ Sérstakur Tannverndiir-
dagur verður í grunnskólum
landsins í dag til að vekja
athygli á liinni hágu tannheilsu
þjóðarinnar.
Eins og koinið hefur frant í
umfjöllun undanfarið, virðast
að jafnaði skemmast fleiri
tennur í (slendingum cn í
nokkurri annarri þjóð í heim-
inum.
Hinar Noröurlandaþjóðirn-
ar hafa sýnt fram á að hiegt cr
að fækka tannskemmdum með
fyrirhyggjandi starfi og má
sem dæmi nefna að Finnum
hefur tekist að fækka tann-
skemmdum um nær 50% á 6
árum og Norðmenn hafa náö
sama árangri á 9 árum.
Ein af orsökunum fyrir hinni
háu tíðni tannskemmda hér-
lendis er talin vera hin mikla
sykurneysla íslendinga, cn við
eigum hcimsmet í sykur- og
sælgætisneyslu . auk þess sem
mátar venjur okkar eru með
afbrigðum slæmar fyrir tann-
heilsuna.
Meðal þess sem gert verður
í tilefni Tannverndardagsins
er að dreifa litprentuðum
bæklingi í skólunum sem nefn-
ist „Biti mili rnála" og verður
rætt við börnin um matarvenj-
ur og sælgætisát. Einnig verður
skólanesti og skólamáltíðir at-
huguð með tilliti til tann-
verndar. Sérstök áhersla verð-
ur lögð á svonefnt laugardags-
sxlgæti, en með því er átt við
að sælgæti sem börn og ung-
lingar ef til vill fá í vikunni er
geymt og þess neytt í einu, t.d.
á laugardegi. Með því móti er
tönnunum síður hætt við
skemmdum. bessi regla hefur
komist á meðal hinna Norður-
landaþjöðanna og átt þátt í
góðum árangri þeirra í fækkun
tannskemmda.
Hefur verið ákveðið að efna
til samkcppni meðal 7-H) ára
barna um efnið laugardags-
sælgæti til að örfa áhuga þeirra
á málefninu. Mun samkeppnin
vcrða um ritgerð, myndasögu
eða teikningu og verða veittar
viðurkenningar fyrir bestu úr-
lausnirnar í hverjum aldurs-
hópi í hverjum skóla. Skal sam-
keppninni (okið fyrir 20. febrú-
ar nk. og þeim úrlausnum sem skal skilað til menntamála- Það er heilbrigðisráðuneytið
eiga að hljóta viðurkcnningu ráðuneytisins fyrir l. mars. sem beitirsérfyrirTannvernd-
\fm a
lt®;a iftií:<
■ Glerungur tannanna á í vök að verjast þegar kúrfan fer yfir línuna eins og gerist þegar sætinda
er neytt á milli mála eins og neðri kúrfan sýnir.
ardeginum í samvinnu við
Tannlæknadeild HÍ, Tann-
læknafélag íslands og Skóla-
tannlækningar Reykjavíkur-
borgar. Til fróðleiks hefur ver-
ið dreift í alla skóla landsins
„kennarakveri um tennur",
sem ætlað er til aðstoðar við
fræðsluna. í tillögunum sem
gerðar liafa verið um varnarað-
gerðir gegn tannskemmdum er
gert ráð fyrir að komið verði á
skipulagðri fræðslu um tennur.
varnir gegn tannskemmdum og
réttar matarvenjur. Þá er gert
ráð fyrir að foreldrar fái
fræðslu um tennur og varnir
gegn tannskemmdum við
mæðraog ungbarnaskoðun, að
foreldrum sé gefinn kostur á
ókeypis flúortöflum fyrir börn
sín, reynt verði að koma á
skipulagðri flúortöflugjöf í
leikskólum og komið verði á
flúorskolun tanna skóiabarna
með o,2% Naf upplausn,
kennd verði tannhirða með
flúorburstun einu sinni á ári og
komið verði á skipulögðum
skólatannlækningum þar sem
þær eru ekki þegar fyrir hendi.
Skelfiskdeilan leyst:
Bíldudals-
bátar aft-
ur á sjó
■ Skelfiskbátarnir átta frá
Kíldudal héldu út á rækjumiðin
í gærmorgun, eftir að deila
sjómanna við Rækjuver leystist
á föstudagskvöld, fyrir milli-
göngu sýslumannsins í Barða-
strandasýslu. Höfðu hátarnir
lcgið bundnir við hryggju í hálf-
an mánuð.
Samkomulagið felst í því, að
Rækjuver grciðir sjómönnun-
um rúmlega 7% ofan á fyrri
greiðslur fyrir aflann, en síðan
verða sjóprufur cndurteknar í
byrjun næstu vertíðar. Fimm
bátar úr félagi smábátaeigenda
fá til samans 2-300 þúsund krón-
ur og sjómenn á þremur bátum
Rækjuvers fá samsvarandi í
sinn lilut.
SSK, I Verktakar verði metn
| ir strangar en gert er
■ „Þetta eru mjög gagnleg-
ar uinræður, cn það komu
fram skiptar skoðanir um
livort mikið væri að. Meiri-
hlutinn var á því, að ástandið
væri ekki nógu gott livað
varðaði lágu tilboðin. Hins
vegar komu frain raddir um,
að það ætti að fara varlcga í
að hnika því til,“ sagði Othar
Örn Petersen framkvæmda-
stjóri Verktakasambands ís-
lands iiin ráðstefnu, sem
samhandið hélt í síðustu
viku. Þar voru saman konmir
um 160 manns, verktakar,
ráðgjafar og verkkaupendur,
og ræddu vcrktakaiðnuðinn
á Islandi.
Nokkur framsöguerindi
voru flutt á ráðstefnunni, og
síðan fjölluðu starfshópar
um afmarkaða þætti, sem
snerta verktaka, verkkaup-
endur, svo og hinn almenna
skattgreiðanda. Othar Örn
sagði, að umræðustjórarnir
rnyndu hittast aftur í næstu
viku og draga sarnan heild-
arniðurstöður fundarins.
Meðal þess, sem rætt var,
var spurningin um hvort setja
ætti reglur fyrir verktakaiðn-
aðinn. Sagði Othar Örn að
komið hefðu fram raddir um.
að verktakar sjálfir hefðu
frumkvæðið að því að skapa
reglurnar. Einnig sagði
hann, að menn hefðu al-
mennt verið á því, að meta
ætti verktaka strangar en nú
er gert, áður en þeir fá verk-
efnin, sem þeir hafa boðið í.
■ Um 160 manns niættu á ráðstefnu Vcrktakasambands íslands um
verktakaiðnaðinn á íslandi. NT-mvnd: An
Landleiðir:
Samið við
bílstjóra
■ Kjarasamingur milli
Landleiða og bílstjóra
fyrirtækisins var undirrit-
aður í síðustu viku og
hefur hann verið staðfest-
ur af beggja hálfu.
Samningurinn er nánast
hinn sami og gerður var
við bifreiðastjóra hjá al-
mennum sérleyfisferðum í
byrjun desember, en hann
tók mið af samkomulagi
ASÍ og VSÍ. Haldnir voru
þrír samningafundir og að
sögn Ágústar Hafbergs
forstjóra Landleiða var
mjög góður andi ríkjandi
á þeim.
Bílstjórar Landleiða
voru með lausa samninga
í september, en þeir fengu
síðan hækkanirnar, sem
samið var um á milli ASÍ
og VSÍ.