NT


NT - 04.02.1985, Side 19

NT - 04.02.1985, Side 19
caj Decker gifti sig.. ...og heitir nú Mary Slaney ■ Mary Decker, banda- ríska hlaupadrottningin, gifti sig í byrjun janúar. Eiginmaður hennar er breski kringlukastarinn Richard Slaney. Frá og með 9. febrúar mun Decker því heita Slaney og taka þátt í mótum undir því nafni. Fyrsta keppni Slaney verður í East Rutherford í New Jersey á næstunni. Þar mun hún keppa í 1500m hlaupi og meðai keppenda verður ólympí- umeistarinn Maricica Pu- ica frá Rúmeníu. Decker heitir nú Mary Slaney, enda nýgift Mánudagur 4. febrúar 1985 19 íþróttir ,Handknattleikur: Armenningar lágu á Akureyri Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri: ■ Ármenningar léku tvo leiki í 2. deildarkeppninni í hand- knattleik á Akureyri um helg- ina, gegn KA og Pór. Þeir máttu sætta sig við að halda heim án þess að hafa fengið svo mikið sem eitt stig, því liðið tapaði báðum leikjun- um. Fyrri leikurinn var gegn Þór og var hann æsispennandi á lokamínútunum en ekki að sama skapi vel leikinn. Liðin skiptust lengst af um forystuna en Þór hafði eins marks forystu í hálfleik 11-10. Árntenningar kontust vel yfir þegar líða fór á seinni hálfleik, staðan var til dæmis 19-16 fyrir þá þcgar um 10 mínútur voru eftir. Þór tókst að jafna 20-20 en þegar 2 og xh mínúta var til leiksloka komst Armann aft- ur yfir. Kristján Kristjánsson sem er betur þekktur sem knatt- spyrnumaður hjá Þór, jafnaði úr vítakasti þegar ein mínúta var til leikslóka og þegar 13 sekúndur voru eftir skoraði hann sigurmarkið með gegn- umbroti. Kristján, Sigurður Pálsson og Aðalbjörn Sveinbjörnsson skoruðu 5 mörk hver fyrir Þór en þeir Haukur Haraldsson og Ingólfur Steingh'msson gerðu einnig 5 ntörk fyrir Árntann. Á laugardag léku KA og Ármann, en Ármann vann KA létt í fyrri umferð mótsins og er það eini ósigur KA í mótinu. Að þessu sinni urðu Armenningar þó að sætta sig við ósigur, KA sigraði 22-17 eftir að staðan var 11-9 í leik- hléi. Þessi leikur var aldrei góður, fullur af mistökum á báða bóga og bæði liðin geta eflaust leikið betur. Jón Kristjánsson var markahæstur hjá KA með 6 mörk og Logi Einarsson gerði 4. Bragi Sigurðsson skoraði 4 mörk fyrir Ármann. Einn leikur var í 1. deild kvenna á Akureyri, Þór fékk Fram í heimsókn og er skemmst frá því að segja að Framstelpurnar unnu auðveld- lega eins og við var búist ,28-13. Það bar helst til tíðínda að Guðríður Guðjónsdóttir skor- aði 15 mörk í leiknum. 1. deild kvenna: FH vann ÍBV Frá Sigfúsi Guúmundssyni í Eyjum: ■ Einn leikur var í 1. deild kvenna í handknattleik á föstu- dagskvöldið. ÍBV og FH spil- uðu í Eyjum og er óþarfi að eyða mörguni orðum á leikinn. FH-stúlkunar höfðu mikla yfir- burði og sigruðu með 38 mörk- um gegn 13. Staðan í hléi var 21-6. Mörk FH gerðu Kristjana 7, Margrét 6, Kristín og Sigurborg og Arndís 4 hver, Anna 5, Hildur 3, Heiða og María 2 og Inga 1. Fyrir IBV skoraði Anna 5, Eyrún 3 og Ragna, Unnur, Andrea, Vilborg og Ólöf 1 mark hver. Maraþonhlaup: Wellssigraði ■ Bandaríkjamaðurinn Jeff Wells sigraði í maraþonhlaupi sem fram fór á Nýja Sjálandi á laugardaginn. Wells skaust framúr heimamanninum Gra- ham Macky á síðustu metrum hlaupsins en Macky hafi haft forystu í hlaupinu allan tíinann fram að því. Þriðji var Rick Sayre frá Bandaríkjunum. Tími Wells var 2:16,43 klst., en Macky fór sprettinn á 2:17,40 klst. í kvennaflokki sigraði Kersti Kakobsen frá Danmörku á tímanum 2:37,12 en önnur var Sue Schneider frá Bandaríkj- unum á tímanum 2:42,44. Götuhlaup: Kenýa-sigur ■ Kenýainenn voru í sviðs- Ijósinu í 10 kílómetra götu- hlaupi sem fram fór á laugar- daginn í Florida. Úrslit í hlaup- inu réðust ekki fyrr en á síðasta metranum. Sigurvegari varð Simeon Kigen frá Kenya, en hann hljóp á tímanum 28 mín og 38 sekúndum. Annar varð Bretinn Mike McLeod sem varð einni sekúndu á eftir Kigen. Sama tíma og McLeod fékk Kenyamaðurinn Sosthen- es Bitok, en var úrskurðaður í þriðja sæti. Það var heitt í veðri þegar hlaupið fór fram, og sagði Kig- en að hann kynni best við að hlaupa ef hitinn væri mikill „það minnir mig á Kenya,“ sagði hann eftir hlaupið. I kvennaflokki sigraði Lyn Williams frá Kanada á tíman- um 32,34 mínútum. Budd sigraði ■ Zola Budd sigraöi sanníærandi í víðavangshlaupi sem haldið var í Ipswich um helgina. Vegalengdin sem hlaupin var var 5,7 kílómetrar, og var Zola rúmum fjögur hundruð metrum á undan næsta keppanda. Hin fyrrum suður-afríska Zola Budd mun líklega taka þátt í al- þjóðlegu víðavangshlaupi um næstu helgi sem haldið verður í Birkendhead. Gengur þú frá framtali þínu eða bókhaldi eins og þjóflirá nóttu eða þolir það dagsbirtu og nákvæma rannsókn? Skattsvikarinn er innbrotsþjófnum engu betri, en fórnarlömbin margfalt fleiri - hver einasti heiðarlegur framteljandi. Á árinu 1984 var stöðum við skatteftirlit fjölgað um tuttugu. Því má búast við stórauknu eftirliti með skattalagabrotum. Viðurlög sem brotlegir skattaðilar geta átt yfir höfði sér fara eftir eðli hvers brots. Dæmi eru um að skattaðilar hafi þurft að greiða hundruð þúsunda í skattsektir, auk skatta af vantöldum tekjum og eignum. fjármálaráðuneytið

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.