NT - 04.02.1985, Side 23
■ Kristján Ágústsson gerði 38 stig fyrir Val gegn UMFN.
ÍR sigraði KR
■ Öllum á óvart sigruðu ÍR-ing- enn 96-96.
ar KR í úrvalsdeildinni í körfu í Leiktíminnrannútogþaðþurfti
gærkvöldi. ÍR- að framlengja.
ingar höfðu aðeins forskotið í ÍR komst í 105-102 ogþaðdugði
byrjun en KR jafnaði 20-20 og til sigurs, KR bætti aðeins einu
komst yfir. ÍR náði forystunni stigi við og lokatölur því 105-103.
aftur en KR hafði yfir í leikhléi, Stigin skorðuðu: ÍR: Gylfi 27,
58-53. I seinni hálfleik náði ÍR Hreinn 18, Björn 12, Ragnar 11,
yfirhöndinni og leiddi lengst af en Hjörtur 11, Karl 14, Bragi 4 og
KR hafði eitt sig tilgóða þegar ein Vignir 8. KR: Birgir Mikaels 40,
mínúta var eftir. Þá skoraði Karl Guðni 25, Ástþór 13, Þorsteinn 8,
Guðlaugsson 3 stig en KR jafnaði Birgir J. 8, Jón 6 og Matthías 3.
Mánudagur 4. febrúar 1985 23
Annar sigur Vals
■ Seinni viðureignin í úrvals-
deildinni sem fram fór í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi, milli
Vals og Njarðvíkinga, var álíka
skemmtileg á að horfa og hin
fyrri.
Valsmenn voru ákveðnari
allan tímann og sigruðu nokk-
uð örugglega, þó það hafi ekki
munað nema 2 stigum í lokin,
103-10L Valsmenn höfðu allt
upp í 17 stiga forystu og Njarð-
víkingar komust aldrei nær en
5 stig, nema rétt í lokin.
Kristján Ágústsson átti stór-
leik hjá Val og skoraði 38 stig
en aðrir eiga einnig hrós skilið,
í báðum liðum.
Virðist Höllin hafa
svona góð áhrif á liðin, en
leikirnir í gær voru með þeim
allra bestu í vetur. Stigin skor-
uðu: Valur: Kristján 38, Torfi
15, Leifur 14, Einar og Páll 9,
Jón 8, Jóhannes 6 og Sigurður
5. UMFN: Valur 31, ísak 20,
Hreiðar og Ellert 13, Gunnar
9, Jónas 4 og Helgi 2.
Blak:
Allt á eina
bókina lært
Engin óvænt úrslit
jB Þrír leikir voru á íslandsmót-
inu í blaki um helgina. í fyrstu
deild karla voru tveir leikir og
kepptu Þróttur og Víkingur, og
síðan ÍS og HK.
Hvorugur leikurinn var tilþrifa-
mikill, og úrslit á þá leið sem búist
var við. Þróttur sigraði Víking
ineð þremur hrinum gegn engri.
Hrinurnar fóru sem hér segir:
15-13,15-9 og 15-7. Leikurinn var
í alla staði hinn eðlilegasti, og
ekkert sem virðist geta ógnað
þeim Þrótturum, nema ef væri ÍS.
Víkingar voru sprækastir í fyrstu
hrinunni, og veittu þá Þrótturum
örlitla keppni, en síðan dró af
Víkingum, þegar leið á leikinn, og
úrslitin urðu síðan 3-0 fyrir Þrótt.
Verðskuidaður sigur það.
HK keppti við ÍS og var aldrei
nein spurning hvernig sá leikur
færi. ÍS vann þrjár hrinur í röð, án
þess að HK tækist að svara fyrir
sig. 3-0 fyrir ÍS og hrinurnar fóru
15-10,15-8 og 15-19 . Það var lágt
risið á HK mönnum og ekki að sjá
að þeir standi sig eins og búast
hefði mátt við í byrjun keppnis-
tímabilsins.
Þróttur og Víkingur kepptu í
fyrstu deild kvenna, og var sá
leikurinn ójafn og voru Þróttar -
stúlkurnar mun sterkari aðilinn.
Úrslitin urðu þau að Þróttur vann
þrár hrinur, á móti engri hrinu
hjá Víkingsstúlkunum. Hrinurnar
fóru þannig 15-6,16-14 og 15-5.
Neeskens með
Gronningen
■ Johan Neeskens knattspyrnukapp-
inn góðkunni frá Hollandi, hefur ákveð-
ið að leika að nýju í hollensku knatt-
spymunni. í þetta skiptið ætlar Neeskens
að leika með Gronningen, sem um
þessar mundir er í fjórða sæti í hollensku
fyrstu deildinni.
Nú eru liðin tíu ár frá því að Neeskens
lék í hollensku knattspyrnunni, og er
öruggt að kappinn á eftir að setja svip
sinn á leiki Gronningen liðsins. Ferill
Neeskens er langur og eftir því glæsileg-
ur. Alls hefur kappinn, sem orðinn er
þrjátíu og þriggja ára gamall, leikið 49
sigurleiki fyrir hollenska landsliðið, á 11
árum og síðast var það gegn Frökkum í
nóvember 1981, þegar Holland tapaði
með tveimur mörkum gegn engu, og
mistókst að komast í úrslit heimsmeist-
arakeppninnar á Spáni 1982.
bera óumdeilanlega
hæstu bankavextina
viixriR
Nú hækkum við vexti úr 34% á ári í 37%.
, .. Þar sem vextir eru færðir tvisvar á ári verður ársávöxtunin
AVOXTUN 40,4%.
VERÐ-
BÓLGA
Verðbólguspá Seðlabanka íslands og Þjóðhagsstofnunar
gerir ráð fyrir 20% hækkun lánskjaravísitölunnar á árinu
1985, en við hana miðast vaxtakjör verðtryggðra reikninga.
VERÐ-
TRYGGING
Sparifé á 18 mánaða reikningum nýtur fullrar verðtryggingar.
Vaxtakjör eru borin saman við kjör 6 mánaða verðtryggðra
reikninga, en miðað við þessa spá, þurfum við tæplega á því
að halda!
VERTU
ÁHYGGJULAUS
Þetta er góður kostur fyrir þá sem vilja vera algjörlega
áhyggjulausir um sparifé sitt í 18 mánuði eða lengur.
BUNAÐARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
VŒ) ÖNNUMST INNLAUSN
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
'Vextir eru breytilegir til hækkunar
eða lækkunar samkv. ákvörðun Búnaðarbanka íslands