NT - 04.02.1985, Blaðsíða 24
■ „Þetta voru grátleg
mistök, ég sá Palla biðja um
boltann og misskildi hann,
líka af því að ég gat ekki sent
hann beint inn á línuna. Ég
tók séns sem ég hefði ekki
átt að taka og þetta átti bara
ekki að gerast, sagði Kristján
Arason í samtali við NT í
Lyon um mistök sín, undir
lok leiksins í gær.
Páll Ólafsson tók undir
þessi orð, og sagði við ætluð-
um ekki að taka neinn séns,
að mínu mati, þetta átti ekki
að verða neitt sirkusmark,
ég bað Kristján um að horfa
á línuna og boltinn átti að
koma, því ég var frín Þetta
var misskilningur, og við
þessu er ekkert að gera. Það
var slæmt að þetta skyldi
gerast, og hreint og beint
ótrúlegt að þetta skyldi skila
sér í marki hjá Tékkunum.
Einar Þorvarðarson mark-
vörður íslenska liðsins
sagði um þetta sarna atvik;
„Ég reiknaði með boltanum
yfir, hann átti að vera yfir,
ég trúði ekki eigin augum,
þegar boltinn lenti í net-
inu. Ég var of framarlega,
það er alveg rétt, en ég
reiknaði heldur ekki með að
við myndum glopra boltan-
um beint í hendur þeirra, og
allra sfst að það kæmi skot
svona. Hann var ægilega
fljótur að hugsa, enda mjög
góður leikmaður. Ég hefði
átt að klára þennan bolta,
. það var þó lán í óláni að
þetta gerðist ekki í mikilvæg-
ara móti,“ sagði Einar Þor-
varðarson í samtali við NT
eftir leikinn við Tékka í gær.
Bogdan sagði eftir leikinn
í samtali við NT: „Þessi leik-
ur var ekki slæmur. íslenska
liðið lék í heildina vel, og
strákarnir léku til sigurs.
Þreyta einkenndi bæði liðin.
Þessi úrslit eru ekki slæm
gegn besta liði Tékka. Á
góðum degi eigum við að
geta unnið þetta lið með
tveimur til þremur mörkum,
en það gekk ekki upp.“
Spurður um lokamínútuna,
sagði Bogdan: „Þetta var
fáránlegt, að reyna þetta, að
skora sirkusmark, í lok leiks
sem var í raun ómögulegt að
tapa. Þetta voru hrikaleg
mistök, og Kristján Arason
verður að skýra hvernig hon-
um datt þetta í hug. Hinsveg-
ar léku Tékkarnir upp á ann-
að stigið og töfðu leikinn.
Þetta var mjög góður árang-
ur hjá íslenska liðinu, í þessu
móti, eins og tékkneska liðið
hefur leikið á þessu móti, og
ekki síst þegar Iitið er á þá
staðreynd að við höfðum
jafntefli í vasanum."
. , _ ■ Páll Ólafsson var góður í Frakklandi og í leiknum í gær á móti Tékkum skoraði hann 5 mörk. Páll varð í þriðja sæti í kjörinu besti
Tournoi de France: maðurmótsms. NT*mynd: Sverrir
HRIKALEGT LOKAMARK
- er Tékkar lögðu íslendinga í síðasta leiknum á Frakklandsmótinu
Lokastaðan
■ Lokastaðan á mótinu
Tournoi de France varð
sem hér segir: 1'aflan sýn-
ir leiki, sigra fjalntefli,
tapaða leiki og loks stiga-
fjölda þegar upp var
staðið.
Tékkóslóvakía .... 5 5 0 0 10
ísland .........5302 6
Frakkland.......5302 6
Ungverjaland.... 5 3 0 2 6
lsrael..........6 104 2
Frakkland-B..... 5 0 0 5 0
NT spjallar
við Sigga Jóns
á Hillsborough
— sjá bls. 18
Kristján Ara
markahæstur
ísland prúðast
-sjá bls. 22
íþróttir á
8 síðum í dag
bls. 17-24.
■ Ótrúleg lokamínúta gerði
það að verkum að ísland tapaði
fyrir Tékkum í síðasta leiknum
í Tournoi de France keppninni
í Frakklandi, með 17 mörkum
gegn 16.
Eftir að hafa verið tveimur
mörkum undir ekki löngu fyrir
leikslok, náði íslenska liðið
þrátt fyrir mistök og harða
mótspyrnu að jafna leikinn og
brj.óta sókn Tékka á bak aftur,
nokkrum sekúndum fyrir leiks-
lok. íslenska liðið geystist í
sókn, en komst lítið áleiðis
gegn harðri vörn Tékkanna,
sem ekki vildu jafnteflið úr
hendinni, þrátt fyrir þá stað-
reynd að eins marks tap fyrir
íslandi, myndi duga Tékkum
til sigurs í mótinu. Hrapallegur.
misskilningur milli þeirra
Kristjáns Arasonar og Páls
Ólafssonar leiddi til þess að
Kristján sendi ævintýralega
sendingu inní teiginn sem Páll
náði hvergi að koma nærri.
Tékkneski markvörðurinn og
besti maðurinn á vellinum náði
boltanum, og eldsnöggt tók
hann sína ákvörðun og kastaði
boltanum yfir allan völlinn, og
yfir Einar Þorvarðarson, sem
stóð fyrirutan vítateiginn þegar
Barda markvörðurTékka kast-
ar boltanum. Það munaði ekki
nema nokkrum millimetrum að
Einari tækist að ná til boltans,
þegar hann smaug undir þver-
slána og sigur Tékka varð stað-
reynd um leið og tíminn rann
út.
Tékkneska liðið byrjaði af
krafti leikinn gegn íslending-
um, og lék harða vörn, sem
íslendingar virtust ekki átta sig
á í byrjun. Tékkar náðu forystu
2- 0. Fyrsta markið skoraði
besta stórskytta liðsins og besti
útileikmaður tékkneska liðsins,
Bernard, og annað markið kom
eftir glæsilega línusendingu
þessa hávaxna leikmanns á
línumanninn Kodrc sem skor-
aði örugglega. íslenska liðið lét
ekki deigan síga, og Kristján
Arason skoraði fyrsta mark
liðsins með glæsilegu langskoti
undir tékknesku vörnina, á átt-
undu mínútu leiksíns. Páll
Ólafsson jafnaði metin, er hann
komst einn í hraðaupphlaup,
með tvo Tékka á hælunum og
rakti hann boltann upp allan
völlinn og skoraði. Tékkar eiga
næsta orð, en Kristján jafnar
metin með glæsilegu langskoti
3- 3. Síðan er jafnt á öllum
tölum, Tékkar voru þó yfirleitt
fyrri til þess að skora, og síðan
komast íslendingar yfir í fyrsta
skipti í leiknum með glæsilegu
hraðaupphlaupi hjá Páli Ólafs-
syni. Þá taka Tékkar góðan
kipp og skora þrjú næstu mörk.
íslendingar svara með tveimur,
og voru þar að verki Alfreð
Gíslason með fallegt mark úr
langskoti, og síðan labbaði Páll
í gegnum tékknesku vörnina
eftir að hafa platað hana uppúr
skónum, og jafnaði. Tékkar
komast yfir 8-7, en Páll er enn
á ferðinni og jafnar. Einar
Þorvarðarson varði vítakast frá
Bernard hinum hávaxna, þegar
fintm mínútur voru til loka
fyrri hálfleiks. Staðan í leikhléi
var jöfn, 9-9.
í seinni hálfleik byrja íslend-
ingar af krafti og Kristján kem-
ur íslendingum yfir. Slæmur
kafli hjá íslenska liðinu leiðir
til þess að Tékkar skora þrjú
mörk og breyttist staðan úr
11-10 íslandi í hag, í 11-13
Tékkum í hag.
Jafnt er síðan 14-14, þegar
Bardek kemur Tékkum yfir.
Nú fór í hönd kafli mistaka og
óðagots hjá íslenska liðinu.
Fyrst skýtur Alfreð í stöng, og
Kristján kemst á auðan sjó, en
á óskiljanlegan hátt ver Barda.
Tékkar skora sitt sextánda
mark, með heppni, þegar línu-
maðurinn Korc fékk boltann
eftir að Einar hafði varið stór-
glæsilega skot frá einni stór-
skyttunni. Alfreð minnkar
muninn í 15-16, ogsíðan kemur
annar slæmur kafli hjá íslenska
liðinu, og hefði verið haldið
öðruvísi á málunum, þessar
mínútur, er hugsanlegt að
leikurinn hefði farið á annan
veg en raun ber vitni. En ís-
lendingar gáfust ekki upp, og
eiga heiður skilinn fyrir það.
Sextánda mark Islands kom
eftir góða línusendingu frá Páli
Ólafssyni, inná Þorgils Óttar,
sem skoraði eins og hann hefði
aldrei gert annað. Staðan 16-16
og tvær og hálf mínúta til
leiksloka. Tékkar ætluðu að
halda fengnum hlut, og léku
fyrir utan íslensku vörnina, og
létu brjóta á sér, og héldu
boltanum, þar til troðfull höllin
í Lyon ómaði af ópum áhorf-
enda, sem fannst dómararnir
gefa Tékkum allt of mikinn
tíma. Tékkar voru í sókn í
heilar tvær mínútur sem ekki
lauk fyrr en íslenski varnar-
veggurinn með Geir Sveinsson
í broddi fylkingar nær boltan-
um. Hraðaupphlaup var í upp-
siglingu, og þrír íslendingar
fríir á veliinum, en Geir kom
ekki boltanum frá sér, þar eð
leikreyndasti maður Tékka
Bardon, stökk á Geir og hélt
honum föstum þar til dómar-
arnir gáfu honurn rauða
spjaldið. Nú voru fjörutíu sek-
úndur eftir af leiktímanum, og
þær nýttu íslendingar ekki sem
skyldi.
Kristján Arason fékk auka-
kast þegar sjö sekúndur voru til
leiksloka, og fór þá eins og
áður segir. Leikurinn í heild
var góður, hjá íslenska liðinu.
Tékkneska liðið var besta liðið
á mótinu, og hefur á að skipa
mjög sterkum mönnunt, og
m.a. Evrópumeisturum úr liði
Dukla Prag^og liðið var nánast
það sama og lék hér fyrir tveimur
árum. Það er þó óhætt að segja
að óðagot hafi sett svip á ís-
lenska liðið á stundum. Það
jákvæðasta við þetta allt saman
var þó að íslenska liðið tapaði
aldrei einbeitingunni, og barð-
ist alltaf til sigurs, en ein mistök
í lokin gerðu þann draum að
engu.
Páll Ólafsson var bestur ís-
lensku leikmannanna, ásamt
þeim Kristjáni Arasyni og Ein-
ari Þorvarðarsyni sem varði vel í
leiknum.
Mörkin gerðu fyrir Island:
Páll Óiafsson 5, Kristján Ara-
son 4, Alfreð Gíslason 4, Þor-
gils Óttar Mathiesen 2 og Þor-
björn Jensson.
MarkahæsturTékka varstór-
skyttan Bernard og var ásamt
markverðinum Barda besti
ntaður leiksins. Barda varði
alls 12 skot í leiknum.
Samúel Örn
Erlingsson
skrifar frá
Frakklandi