NT - 02.03.1985, Blaðsíða 1
■ Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, í ræðustól á fundi þeim sem haldinn var með
yfirmönnum í gær. Fundarsókn var góð, en hljóöið í mönnum var þungt. NT-inynd: Árni Bjama.
Hveragerði:
Árekstur milli
hests og bíls
■ Árekstur varö milli
bifreiöar og manns á
hesti í Hveragerði í gær
með þeim afleiðingum að
flytja þurfti knapann í
flýti til Reykjavíkur á
sjúkrahús. Reyndist
hann brotinn á báðunt
fótum, og nreð höfuðá-
verka
Slysið bar að með
þeint hætti, aðbifreiðinni
var ekið að krossgötum
um leið og hestamanninn
bar þar að. Hafnaði hest-
urinn á hliö bílsins nteð
þeim afleiðingum að
knapinn kastaðist yfir
bílinn og hlaut fyrr-
greinda áverka. Hestur-
inn var hinsvegar leiddur
á brott og bíllinn
skemmdist lítillega.
Gæftir aldrei betri
en í vetur og:
Sjómanna-
verkfall
nær
ekki til
Grímseyjar
■ Hann lét slagveðrið utanglugga ekkert á sig fá, þessi strætisvagnafarþegi, heldur las blöðin í rólegheitunum í gær. NT-mynd: ah.
■ Grímsey er sjálfsagt einn af
fáum ef ekki einasti útgerðar-
staður landsins þar sem yfir-
standandi sjómannaverícfall
hefur engin áhrif haft, en útgerð
og fiskvinnsla ganga betur en
oftast áður, vegna einstakra
gæfta fyrstu mánuði þessa árs.
Sem dæmi má nefna að í febrúar
gaf á sjó í 25 daga af 28, sem
þykir tíðindum sæta hjá smábát-
um á þessum árstíma. í landi er
unnið lágmark 10 tíma á dag og
oftast um helgar líka, að því er
NT frétti í Fiskverkun KEA í
Grímsey.
Frá Grímsey róa nú 4 bátar,
3 tíu til ellefu tonna, sem sleppa
því við verkfall vegna stærðar/
smæðarinnar og auk þess einn
u.þ.b. 30 tonna bátur. Áhöfn
þess báts er eigendur hans ásamt
öðrum útgerðarmönnum sem
eru þar af leiðandi ekki í sjó-
mannafélagi og því ekki í verk-
falli eins og flestir aðrir
sjómenn.
Verða samningar yfirmanna á fiskiskipum samþykktir?
„Búið að kreista hvern
dropa úr þessu kjaftæði“
- sagði Helgi Laxdal, en víða heyrðust óánægjuraddir
■ Fundir voru haldnir víðs-
vegar um land í gær, þar sem
ræddir voru nýgerðir samningar
Farmanna- og fískimannasam-
bandsins við útgerðarmenn.
Víða voru uppi óánægjuraddir,
og ekki verður Ijóst hvort
samningarnir verða samþykktir
fyrr en á sunnudaginn þegar
allsherjartalning fer fram í
Reykjavík.
Skipstjóra- og stýrimannafé-
lagið Bylgjan á Isafirði gerði
samkomulag við Útvegsmanna-
félag Vestfjarða, og var það
samkomulag lagt fyrir fund sem
hófst í gærkvöldi klukkan 21.
Ekki var vitað hvernig atkvæði
féllu þegar NT fór í prentun í
nótt.
Sigurður R. Ólafsson, for-
niaður Sjómannafélags Vest-
fjarða, sagði í samtali við NT í
gærkvöldi að sjónrenn á Isafirði
væru ekki sáttir við það sam-
komulag sem Bylgjan hefði
gert, og að sjómenn þar vestra
væru farnir að huga að kröfum
þeinr sern yrðu lagðar fram
þegar samningstími þeirra væri
útrunninn.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, hvatti fund-
armenn á fundi, sem haldinn
var með Vélstjórafélagi íslands
og skipstjóra- og stýrimannafé-
laginu Öldunni til þess að sam-
þykkja samningana. „t>að er
búið að kreista hvern dropa úr
þessu kjaftæði," sagði Helgi
þegar að hann steig úrpontu, og
var á leið-til Eskifjarðar þar sern
haldinn var fundur unr samning-
ana í gær. Guðjón A. Krist-
jánsson, forseti FFSÍ, hélt fund
með yfirmönnum sjónranna á
Snæfellsnesi, í félagsheimili í
Ólafsvík. Samkvæmt heimild-
um NT var hljóð í mönnum
frekar þungt, og allsendis óvíst
að samningarnir yrði samþykkt-
ir.
Samningafundur var haldinn
í deilu sjómanna og útgerðar-
manna í gærkvöldi en hann varð
árangurslaus. Nýr fundur hefur
verið boðaður í deilunni klukk-
an 10 í dag.
Prófkjörumrektor
Háskóla íslands:
Páll og
Sigmundur
ótvíræðir
sigur-
vegarar
■ Páll Skúlason, próf-
essor í heimspekideild, og
Sigmundur Guðbjarnar-
son, prófessor í verk- og
raunvísindadeild, urðu ó-
tvíræöir sigurvegarar for-
kosninganna sem fram
fóru um rektorsembætli
háskólans í gærdag.
Páli hlaut 30,6% at-
kvæða þar af 49 atkvæði
kennara og 345 atkvæði
nemenda, en Signtundur
hlaut 30,5% þar af áttatíu
atkvæði kcnnara og 118
atkvæði nemenda. At-
kvæði stúdenta giida ió á
móti atkvæðum kennara,
og því er Ijóst að Páll
nýtur fylgis stúdenta, á
nteðan Sigmundur hefur
stuðning kennaranna.
Aðspuröur kvaðst Páll
Skúlason ekki kunna skýr-
ingu á því mikia fylgi stúd-
enta sem hefði komiðfram
í prófkjörinu, en kvaðst
þakklátur fyrir það traust
sem honum væri sýnt. „Ég
vona að þær kosningar
sem framundan eru muni
vekja umræðu um há-
skólann, og stuðla að já-
kvæðri umfjöllun um mál-
efni hans, því það er ákaf-
lega brýnt að almenningur
geri sér grein fyrir mikil-
vægi þessarar stofnunar í
þjóðlífinu“ sagði Páll.
„Ég er að sjálfsögðu
mjög þakklátur fyrir þann
áhuga sent mínir kollegar
og samstarfsmenn hafa
sýnt á því að ég sinni þessu
starfi," sagði Sigmundur
Guðbjarnarson, er NT sló
á þráðinn til hans, eftir að
úrslit prófkjörsins voru
kunn. Kvaðst Sigmundur
ekki hafa gert sér grein
fyrir því hvað kæmi út úr
prófkjörinu, enda hefði
hann lítið haft sig í frammi
í þessum kosningum.
Nýir kjósendur vilja nýja f lokka
— sjá skoðanakönnun NT bls.8-9