NT

Ulloq

NT - 02.03.1985, Qupperneq 11

NT - 02.03.1985, Qupperneq 11
2. mars 1985 11 BB Einar J. Helgason bóndi Holtakotum Fæddur 7. júní 1896. Dáinn 20. febrúar 1985 „Fjallmenn að reka inn fjallmenn að reka inn. Farið frá dyrunum kóngur- inn er að koma, til að reka inn safnið." Loksins hafði lítilll drengur fyrir 45 árum séð sjálfan kónginn og hann spurði; „en mamma hvar er kórónan?" Svarið kom; „okkar kóngur þar enga kór- ónu!“ Þannig leit undirritað- ur fyrst Einar í Holtakotum, og níu árum síðar var ég orðinn liðsmaður hans við fjársmölun á Kili. Einar var fæddur að Upp- sölum í Flóa 1896 í byrjun sumars sem var óvenju sól- ríkt og gott. En í þann mund er engjasláttur stóð sem hæst dundi ógæfan yfir er hinir hroðalegu jarðskjálftar á suðurlandi gengu yfir. Bær- inn í Uppsölum hrundi yfir fólkið og um síðir var Éinari bjargað út um rifu á stafnin- um, þá tveggja mánaða gömlum. Foreldrar Einars sem ný- lega höfðu byrjað búskap, misstu allt sitt og stóðu uppi slipp og snauð. Bærinn og öll önnur hús meira og minna hrunin, svo var og í stórum hluta af öllu Árnesþingi. Enginn cfnivið- ur var til í landinu að reisa öll þau hús sem hrunin voru, og því aðeins þeir efnameiri sem gátu greitt í peningum sem fengu það sem til var. Ungu hjónin í Uppsölum voru ekki meðal þeirra, því ekki annað að gera en hætta búskap og fara í vinnumennsku. Var Einari því komið fyrir hjá frændfólki sínu er bjó upp í Hrunamannahreppi. Með þeim hjónum Jóhanni Ein- arssyni móðurbróður sínum og Ragnhildi Halldórsdóttur flutti Einar sig svo út í Bisk- upstungur árið 1909 að Hala- koti í Bræðratunguhverfi. Árið 1921 tók Einar svo við búinu er hann gekk að eiga heitkonu sína Jónasínu Sveinsdóttur, er einnig var úr Hrunamannahreppi. Árið 1925 fluttu þau sig að Holta- kotum og bjuggu þar óslitið til ársins 1967 er Jónasína lést. Holtakotin höfðu verið í eyði áður en Einar flutti þangað, þurftu þau hjón því að byrja á að byggja flest hús frá grunni og erfiðir tímar fóru í hönd, sem var heims- kreppan mikla. Þar að auki hlóðust fljótt á Einar marg- vísleg félagsmálastörf. í miðjum byggingafram- kvæmdum var hann orðinn oddviti sveitarinnar og hafði í mörg horn að líta. Kom þar mest til að Einar var harðgreindur og treystu sveitungarnir honum til að standa fyrir forustu um hreppsmál. Nokkur innan- sveitarólga hafði ríkt árin á undan. Þurfti því traustan mann til að koma lagi á hlutina. Því trausti brást Einar ekki, lagði nótt við dag og hætti ekki fyrr en öllum mál- um hafði verið komið í lag. í oddvitatíð Einars var byggður heimavistarskóli í Reykholti. Var það mikið starf fyrir bónda með stóra fjölskyldu að sjá um ,svo mikið fyrirtæki sem snríði slíks húss var. Vegur var aðeins kominn að Torfastöð- um, og mikið af efninu keyrt síðasta áfangann á hestvögn- um. Engan síma hafði oddvitinn heldur, og margar ferðirnar fór hann ríðandi að Torfastöðum vegna hreppsmálanna. Mörg önnur störf hafði Einar með höndum þó fæst verði hér talin upp. Hann var í fjölda ára umboðsmaður Samvinnutrygginga hér í sveit. Kom í því starfi best fram trúvekni hans, nýtti hann hverja stund að sinna tryggingarmálum, ferðaðist hann þá um á milli manna og benti þeim á það sem betur mætti fara. Einar var um áratugi fjall- kóngur og réttarstjóri í Tungnaréttum sem að fram- an getur, minnast flestir Tungnamen hans í því em- bætti sem hins rólega og yfirvegaða foringja. Stýrði hann liði sínu aíltaf heilu heim. íengu var slakaðáfyrr en síðasta kind var komin í réttargerðið. Þá varhandtak- ið hlýtt og þétt er kvaðst var eftir oft volksamar ferðir um þokudimman Kjalveg. í bókinni Göngur og réttir lýsir Einar þessum ferðum og afréttinum. Má þar sjá að jafnvel fór honum að hafa pennann að amboði. í þess- um lýsingum kom best fram eiginleiki Einars sem for- ingja, greind hans og að finna farsælustu leiðina öll- um til heilla. Þau hjón eignuðust 5 börn er öll hafa gifst. Helgu er byggði Hjarðar- land 1949, Ingigerði er býr á Tálknafirði, Ragnhildi erbýr á Selfossi, Hlíf sem býr á Akureyri og Dórotheu er býr í Reykjavík. Upp úr 1950 byrjaði Einar svo að byggja öll hús upp að nýju á jörðinni og 71 árs byggði hann að lokurn mynd- arlegt íbúðarhús með tveim- ur íbúðum aðra fyrir sig en hina fyrir þá sem hann leigði jörðina. Sýnir það best kjark hans og áræði að þá er flestir eru hættir umsvifum, stóð Einar enn með hamar og sög vann myrkranna á milli. 1 þessu nýja húsi átti Einar svo sitt æfikvöld meðal bóka sinna og vina, þangað var gaman til hans að koma og fræðast um liðna tíð, fram á síðustu ár var minni hans óbilugt, og með gleði í huga minntist hann þeirra fjöl- mörgu Tungnamanna sem hann hafði haft samskipti við hér í 75 ár. Með virðingu kveð ég hann og býð honum blessun- ar guðs. Björn Sigurðsson. Þeim fækkar bændunum sem hat'a alist upp og starfað við búskaparhætti sem tíðk- uðust fyrr á öldum og eiga þannig rætur í þeirri menn- ingu sem hefur mótað ís- lenskt þjóðlíf sterkast fram til þessa. Einn þeirra, Einar J. Helgason, fyrrum bóndi í Holtakotum Biskupstung- um, verður til moldar borinn í sveit sinni í dag. Líf hans og starf bar þess glöggt vitni að ræturnar lágu eftur í aldir. Hann byrjaði að búa áður en hægt var að panta flesta hluti úr kaupfélaginu. Menn urðu að framleiða sjálfir flest það sem til framfærslu þurfti -og smíða þau tæki og áhöld sem þurfti til. Stundir til að sinna öðrum hugðarefnum voru fáar. En nýttar vel. Og raun- ar er það svo að jafnan gefst tími til að sinna því sem einkum er hugleikið - þótt lífsbaráttan sé ströng. Þannig gafst Einari jafnan tími til að sinna margháttuðum félags- málum, miklum lestri og nokkrum skriftum. Einar Jörundur Helgason var fæddur að Uppsölum í Hraungerðishreppi í Flóa þann 7. júní 1896. Foreldrar hans voru hjónin Helgi Jóns- son bóndi og Kristbjörg Ein- arsdóttir. Þau hættu búskap og fluttu til Reykjavíkur þeg- ar Einar var um 2 ára að aldri, og var hann þá tekinn í fóstur af Jóhanni Einars- syni, móðurbróður sínum, og Ragnhildi Halldórsdótt- ur, konu hans, sem bjuggu lengst af í Halakoti (síðar Hvítárbakka) í Biskupstung- um. Einar gékk í Flensborgar- skólann og lauk þaðan prófi um tvítugsaldur. Árið 1921 kvæntist hann Jónasínu Sveinsdóttur, frá Kjarnholt- um í Biskupstungum, sem lést árið 1967. Þau byrjuðu búskap í Halakoti en fluttu 1925 að Holtakotum í Bisk- upstungum þar sem Einar byggði bæinn upp. Þar bjuggu þau Jónasína síðan og eignuðust sex börn sem öll eru á lífi nema ein stúlka sem dó í bernsku. Einar naut þess að starfa að félagsmálum og ávann sér fljótlega traust og virðingu á þeim vettvangi meðal sveit- unga sinna. Flest búskaparár sín átti hann sæti í hrepps- nefnd og oddviti var hann um skeið. Einnig var hann áratugum saman í stjórn Búnaðarfélags Biskups- tungna og formaður Fóður- birgðafélags Biskupstungna var hann meðan það félag starfaði, 1940-1968. Það trúnaðarstarf sem Einari mun hafa þótt vænst um var starf fjallkóngs þeirra Biskupstungnamanna, enda tengdist það sérstöku áhug- máli hans, landfræðum og staðfræðum. Fjallkóngur var hann 1930-1963 ogmunýkju- laust að fyllyrða að afrétt Biskupstungnamanna hafi Einar þekkt eins og lófa sína. Hann ritaði afargeinar- góða afréttarlýsingu í „Göngur og Réttir" sem Bragi Sigurjósson tók saman og auk þess ritaði hann kafla í bókinni „Sunnlenskar byggðir - Tungur, Hreppar, Skeið" sem Búnaðarsam- band Suðurlands gaf út árið 1980. Einar var hagur maður og smíðaði margt - rn.a. sá hann urn byggingu nýju réttanna í Tungunum á sínum tíma. . Auk félagsmálanna gegndi Einar lengst af aukastarfi sem umboðsmaður trygg- ingafélags í sveit sinni, enda naut nákvæmni hans og sam- viskusemi sín vel við þau störf. Hann undi sér vel við skrifborð sitt - við skriftir eða lestur hin seinni ár. Einar var hæglátur maður og dagfarsprúður. Hógværð og mannúð einkenndu tal hans og framgöngu. Hann var vel ern og hélt skýrri hugsun til hins síðasta. Þótt heilsunni hrakaði síðustu árin fylgdist hann vel með - og aldrei leið svo dagur að hann tæki sér ekki bók í hönd. Hann var ekki í rónni fyrr en mest af hinu vandaða bókasafni hans var komið til hans íherbergiðá hjúkrunar- heimilinu Ljósheimum á Selfossi þar sem hann lést 20. febrúar s.l. Hörður Bergmann VALFODUR: INNIHALOSRIKT 06 FÓDURSPARANDI Iralfóöur er fljótandi dýrafóöur, framleitt úr nýjum fiski. Við fram- leiösluna er ekki notast viö hita, sem skaðar næringargildi hráefnisins. Jralfóöur er fóöursparandi, vegna þess hve prótein i ööru fóðri nýtist vel, sé Valfóður gefiö með. V ’alfóöur er mikilvægt meö ööru fóöri, vegna liffræöilegs gildis þess. v leid L r alfóöur er ódýr, innlend fram- leiósla. eitið nánari upplýsinga. VIÐ SETJUM CEYMSLUTANK HEIM Á BÆ, ÞÉR AO KOSTNAOARLAUSU. P.O. BOX 269 222 HAFNARFJORÐUR SIMI 91-651211 SIMI i VERKSMIÐJU: 92-2273 Eigum eitt ókeyrt eintak af þessum frábæra og eftirsótta bíl. Er verðurtil sýnis í sýningar- sal okkar að Smiðjuvegi 4. Laugardag kl. 1-6 og sunnudag kl. 1-5. EGILL VILHJÁLMSSÖN Sm/ðjuvegi 4c, Kópav. mmmmm^ Willys Cherokee 1983 j I Hiólastólarall í Laugardalshöll 36 þekktir stjórnmálamenn, íþróttamenn og hjólastólanotendur keppa á stórkostlegu hjólastólaralli, sem Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, stendur fyrir í tilefni 25 ára afmælis síns, í Laugardalshöll sunnudaginn 3. mars. Keppnin verður sett kl. 14:00 en Lúðrasveitin Svanur mun leika frá kl. 13:30. Á milli umferða verður sýndur breakdans, Rúrik Vignir Albertsson og fél., Þjóðlagakvartettinn Frost syngur. Sjálfsbjörg

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.