NT - 19.03.1985, Blaðsíða 2
(97
Þriðjudagur 19. mars 1985
Frumvarp Alexanders:
Greiðslubyrði íbúðalánanna
fylgi kauphækkunum framvegis
■ Greiðslubyrði verðtryggðra fasteignaveðlána hefur
aukist um liðlega 37% umfram launahækkanir frá árinu
1980, sem er það mikið að jafnvel fólk sem sýndi ýtrustu
aðgæslu á áformum sínum um fasteignakaup er nú komið
að mörkum greiðslugetu sinnar eða yfír hana, segir m.a. í
skýrslu nefndar sem félagsmálaráðherra hefur falið að
kanna fasteignamarkaðinn og gera tillögur til úrbóta.
Jafnframt segir að leiðir eins og breyting raunvaxta, afnám
verðtryggingar og lenging lánstíma mundu ekki einar sér
leysa þann vanda sem skapast hefur vegna hinnar auknu
greiðslubyrði. Nýrra leiða verði því að leita.
Niðurstaðan var „jöfnun
greiðslubyrði'1, sem nú er til
umfjöllunar í ríkisstjórninni í,
formi lagafrumvarps, sem vænt-.
anlega verður fljótlega lagt fram
á Alþingi. í frumvarpinu ergert
ráð fyrir að greiðslubyrði af
lánum (þ.e. afborgun, verð-
trygging og vextir) miðist fram-
vegis við þróun launa, þ.e.
kaupgreiðsluvísitölu. Áætlað er
að þetta eigi við unr öll fast-
eignaveðlán einstaklinga, sem
tekin eru vegna íbúðakaupa/
bygginga til eigin nota, hvort
sem er hjá opinberum sjóðum,
lífeyrissjóðum eða innlánsstofn-
unum og hvort sem þau eru
verðtryggð eða óverðtryggð.
Jafnframt að hægt sé að semja
um greiðslujöfnun í sambandi
við greiðslu eftirstöðva í al-
mennum fasteignaviðskiptum. í
bráðabirgðaákvæði í frumvarp-
inu er gert ráð fyrir að greiðslu-
jöfnunin nái einnig til húsnæðis-
SK»UHi!l*W»NAOUH
■ „Afborganir lána“ stendur á skiltinu - en það eru einmitt þessar afborganir sem orðið hafa mörgum
íbúðakaupandanum erfiðar á hinum síðustu og verstu tímum.
NT-mynd Sverrir.
stjórnar- og lífeyrissjóðslána
sem veitt hafa verið eftir 1. jan.
1983.
Með lögunum á að koma í
Beðið eftir frum-
kvæði Seðlabanka
Gera bankarnir tillögur um hækkun vaxta umfram verðtryggingu?
■ „Það verður ekki svo mikil
breyting á hækkun lánskjara-
vísitölunnar um næstu mánaða-
mót að tilefni sé til stórlækk-
unar vaxta,“ sagði Tryggvi
Pálsson, hagfræðingur Lands-
bankans, þcgar NT spurði hann
um hugsanlegar vaxtabreyting-
ar í þessari eða næstu viku.
Því hefur verið spáð að láns-
kjaravísitalan muni um mánaða-
mótin hækka um 2,3% sem
þýðir 31% hækkun á ársgrund-
velli.
„Lækkun vaxta hlýtur að
koma fyrst og fremst frá Seðla-
bankanum núna. Viðskipta-
bankarnir eru svo aðþrengdir
eftir vaxtaákvörðunina urn ára-
mótin að þeir geta vart staðið
fyrir lækkun útlánavaxta eins og
stendur," sagði Geir Magnús-
son, bankastjóri Samvinnu-
bankans í samtali við NT.
Seðlabankinn hafnaði ýmsum
tillögum viðskiptabankanna um
hækkun útlánavaxta um ára-
mót, og beinlínis lækkaði vexti
á verðtryggðum reikningum.
Geir Magnússon sagði að síðan
hefðu bankarnir verið að tapa
peningum.
Ákvörðun Seðlabankans um
BHM ekki
í verkfall
■ Vegna fréttar NT í gær um
vinnustöðvun BHM er rétt að
taka fram að stjórn BHM hefur
ekki tekið ákvörðun uni eða
boðað vinnustöðvun félaga
BHM.
lækkun vaxta umfram verð-
tryggingu gildir til loka mars.
Samkvæmt heimildum NT getur
svo farið að bankarnir geri nú
aftur tillögur um hækkun vaxta
á verðtryggðum útlánum.
Að hrista af
sér krata
■ í hinu ágæta blaði
„Dagskrá" í Vestmannaeyj-
um, birtist nýlega eftirfar-
andi vísa:
Málglaður hann metið setti
mun það cflaust lengi standa
af sér hristi á cinu bretti
alla krata Norðurlanda
Fyrir þessu er hið heims-
þekkta skáld í Eyjum,
Göngu-Hrólfur, skrifað og
blaðið bætir síðan við: Nú er
að bara spurning hver eigi
sland. '
„Það var verst að þurfa að
missa þetta einbýlishús,"
sagði ein daman við tíðinda-
mann NT á staðnum þegar
spjalli um ferðina var lokið.
Og herrann bætti við:
„Þú skalt bara ekki minn-
ast á þetta við fasteignamat-
ið, - þetta með húseignina
þarna uppfrá."
Nei ekki orð, - þið munið
það lesendur góðir.
£
Leyndarmál á
fjöllum uppi
■ Það var hress hópur sem
kom ofan af Landmannaaf-
rétti í gærdag eftir hrakning-
ar í illviðri á snjósleðum
fjarri mannabyggðum. En
eins og sagt er frá annarsstað-
ar í þessu blaði þá tókst þeim
að koma sér upp snjóhúsi
þar sem fötin voru þurrkuð
og hópurinn sat svo þar í
einum hnapp. Þegar einn
þurfti að rétta úr fótunum
varð annar að draga sínar
býfur að sér en allt gekk í sátt
og samlyndi.
Það var því ekki nema von
að þau söknuðu hússins síns
lítilega sem nú bíður autt og
yfirgefið uppi á Hrafntinnu-
skeri, fjarri mannabyggðum
og engum til gagns.
Við verðum að setja skjáturnar inn, Víkingarnir eru að koma!
veg fyrir að greiðslubyrði af
fasteignaveðlánum hækki um-
fram kaupið, þó svo að raun-
vextir eða lánskjaravísitala
hækki umfram laun, eins og
gerst hefur undanfarin ár. I
slíkum tilfellum yrði hluti greiðsl-
unnar færður sem skuld á
ákveðnum „mismunarreikn-
ingi", sem gæti orðið til að
léngja lánstíma’nn éf kaupþró-
unin væri neikvæð allan lánstím-
ann. Ef tekið er mið af 100 þús.
króna láni teknu í ársbyrjun
1980 til 5 ára með 5% vöxtum
og lánskjaravísitölu og tveim
afborgunum á ári væri ioka-
greiðsla þess nú rúmlega 76 þús.
krónur. Með greiðslujöfnun
hefði heildargreiðsla nú verið
rúmlega 51 þús. krónur. Á mis-
munarreikning hefði hins vegar
safnast upp 106 þús. króna
skuld, sem greiddist upp á þrenr
viðbótargjalddögum.
En raunvextir og lánskjara-
vísitala getur líka hækkað
minna en kaup. Þannig hækkaði
lánskjaravísitala t.d. 15,2%
minna en kauptaxtar á árabilinu
1977-1982. I þeim tilfellum
hækka heildargreiðslur af lán-
unum og lánstíminn styttist. Svo
aftur sé tekið mið af láni eins og
að ofan greinir, teknu í ársbyrj-
un 1977 en til 6 ára hefði
lánstíminn styst í 5 ár.
Þótt breytingar á hinum ýmsu
vísitölum gangi í nokkrum
bylgjum telja hagfræðingar að
þær muni nokkuð haldast í
hendur þegar til lengri tíma er
litið. Varðandi langtímalán eru
því taldar yfirgnæfandi líkur á
að lánskjara- og kaupgjaldsvísi-
tala muni fylgjast sæmilega að,
og lánin þar með borgast upp á
svipuðum tíma og reiknað er
meðviðtöku þeirra. Þ.e. að á
„slæmu“ árunum safnist inn á
mismunarreikninginn, sem eyð-
ist síðan eða lækki í „góðu“
árum.
■ Jósep Lilliendahl.
Enn yfir-
heyrslur
■ Maðurinn sem lést í rysking-
um á trésmíðaverkstæði JHS-
innréttinga í Kópavogi aðfara-
nótt fímmtudagsins 14. mars s.l.
hét Jósep Lilliendahl Sigurðs-
son. Hann var fæddur 14.11
1955 og lætur eftir sig þrjú börn.
Enn er unnið að yfirheyrslum
yfir Sigurði Adólf Frederiksen
sem hefur játað að hafa myrt
hinn látna. Hann hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald til
1. júní.