NT - 19.03.1985, Blaðsíða 21
(Jtlönd
Stríðið milli írans og írak:
Óbreyttir borg-
arar skotmörk
Bahrain-Brussel-Teheran-Reuter
■ Stríðið milli írana og íraka
hefur magnast mikið á undan-
förnum dögum. Báðir stríðs-
aðilar hafa ráðist á borgir, þar
sem fjöldi óbreyttra borgara
hefur fallið, og margir óttast að
fleiri ríki dragist inn í átökin.
íranir segjast hafa skotið nið-
ur fjórar orrustuþotur frá írak í
gær og ráðist á Bagdad jafn-
framt því sem þeir hafa hótað
nýjum árásum hvenær sem er.
Mikil sprenging varð í miðborg
Bagdad í gær sem íranir segja
stafa af flugskeytaárás þeirra á
borgina. Sprengingin truflaði
hátíðahöld almennings í Bag-
dad sem var að halda upp á
sigur sem írakar segjast hafa
unnið á írönum í Suður-írak.
íranir halda því fram að þeir
hafi fellt eða sært 12.000 her-
menn frá írak og tekið 3000
fanga í síðustu sókn sinni inn í
írak á fenjasvæðum í Suður-
írak en Irakar segja að þessi sókn
þeirra hafi nú verið stöðvuð.
Hussein konungur Jórdaníu
og Hosni Mubarak forseti
Egyptalands komu til íraks í
gær til að ræða um möguleika á
friðsamlegri lausn stríðsins en á
sama tíma vöruðu íranir íbúa og
gesti í Bagdad við því að borgin
Sovéskar kjarnorku
flaugar í Hollandi?
Bóndi heimtar virkt hlutleysi og býður landið sitt
Amstcrdam-Rcukr
■ Hollenskur bóndi hefur undir SS-20 eldflaugar fari svo ákveði að heimila Bandaríkjun-
boðið Sovétríkjunum landið sitt að hollenska ríkisstjórnin um að koma stýriflaugum fyrir í
landinu.
Albanskir kommúnistar:
Skutu forsætis
ráðherra sinn
Vín-Reuter
■ Opinbert málgagn Flokks
vinnunnar í Albaníu, Zeri I
Poppullit, viðurkenndi nú á
laugardaginn að fyrrverandi
forsætisráðherra Albaníu, Meh-
met Shehu, hefði verið skotinn
árið 1981. Áður héldu stjórn-
völd því fram að hann hefði
framið sjálfsmorð.
Shehu var áður einn nánasti
aðstoðarmaður Enevers
Hoxha, æðsta leiðtoga Albana.
En Albanir halda því nú fram
að Shehu hafi alla tíð verið
njósnari Bandaríkjamanna,
Sovétmanna og Júgóslava sent
hefði tekist að lauma sér inn í
æðstu stöður flokksins á fölsk-
um forsendum.
Fyrst þegar skýrt var frá
dauða Shehu í Albaníu var sagt
að hann hefði framið sjálfsmorð
vegna taugaálags. Síðar réðst
Hoxha á hann fyrir að hafa
verið njósnari og sagði að hann
hefði framið sjálfsmorð þegar
Hryðjuverk:
Rafmagn rof*
iið á Korsíku
Ajaccio-Reuter
■ Háspennustöð nálægt
Ajaccio á Korsíku skemmdist
mikið nú í sprengingu á sunnu-
dnginn. Rafmagnslaust varð á
svæðinu eftir sprenginguna.
Enginn særðist í sprenging-
unni sem talið er að aðskilnaðar-
sinnar á Korsíku hafi staðið
fyrir.
upp komst um svik hans. Og nú
hafa Albanir loksins viðurkennt
að þeir hafi sjálfir skotið hann
þótt ekki sé með fullu ljóst
hvort hann var beinlínis tekinn
af lífi eða hvort hann féll í
skotbardaga.
Leendert Plaisier sagði Reut-
ers-fréttastofunni að hann hefði
skrifað sovéska sendiráðinu og
boðið fram 44 hektara
land sitt sem staðsett er í miðju
Hollandi.
„Ef ríkisstjórnin ákveður að
styðja ekki afvopnun verðum
við að sýna virkt hlutleysi,“
sagði hann.
Holland er eina NATO-
landið, sem Bandaríkjastjórn
hefur augastað á undir stýri-
flaugar sínar, sem hefur enn
ekki sæst á að leyfa þær. Holl-
enska stjórnin mun taka
ákvörðun sína í nóvember.
19. mars 1985 21
væri óörugg þar sem þeir myndu
gera fleiri árásir á hana.
Mörg ríki hafa hvatt írani og
íraka til að þyrma óbreyttum
borgurum í þessu stríði sínu.
Efnahagsbandalag Evrópu
sendi í gær frá sér hvatningu til
stríðsaðilanna þar sem þeir voru
hvattir til að ráðast ekki á skot-
mörk þar sem lífi almennings
væri steypt í hættu. Forseti Sam-
einuðu þjóðanna, Paul Lusaka
frá Zambiu, hvatti líka til friðar
í gær og lýsti vonbrigðum með
að stríðsaðilar skyldu ekki hafa
hlustað á friðartillögur alþjóð-
legra stofnana.
Vísindagarðar hafa víða verið stofnaðir á Vesturlöndum til að
auka samstarf háskóla og iðnfyrirtækja á sviði þróunarstarfsemi og
rannsókna sem ætlað er að leiði til tækninýjunga. Árangur af
starfsemi vísindagarða er umdeildur.
Bretland:
Hagnast háskólarnir
mest á vísindagörðum?
■ Háskólar hagnast meira á þátt-
töku í vísindagörðum en iðnaðar-
fyritækin sem þátt taka í þeim með
háskólunum. Eða svo segir í niður-
stöðu nýlegrar skýrslu sem birt var
í síðustu viku.
Skýrslan, sem hagfræðingurinn
Jean Curríe tók saman, er hluti
rítraðar sem fjallar um hagfræði
tækniþróunar.
Currie byggir athugun sína á
viðtölum við embættismenn við-
skiptaráðuneytisins á Bretlandi og
í iðnaðarráðuneytinu þar, stjórn-
endur vísindagarða, yfirvöld í við-
komandi bæjar- og sveitarfélögum
og stjómendur fyrirtækja sem taka
þátt í vísindagörðum.
Háskólarnir hagnast á því að
stunda rannsóknir með fyrirtækj-
unum sem standa að vísindagörð-
unum og með því að skipuleggja
kennslu sína og námskeið á grund-
velli rannsóknanna. Eitt þeirra
dæma sem Currie nefnir er Brunel
háskóli, en í vísindagarði honum
tengdum heldur fyrirtækið Bow-
ford Engineering suðunámskeið
fyrir stúdenta.
Menn greinir þó á um ágæti
vísindagarða. Allan Jones sem
starfar hjá Tækniþróunarmiðstöð-
inni á Bretlandi, sagði á ráðstefnu
í V-Berlín í febrúar s.h „Vís-
indagarðar á Bretlandi, sem byggj-
ast á samstarfi við háskóla, eru
ekki nægilega atvinnuskapandi,
vekja ekki áhuga fyrirtækja sem
eru leiðandi á sviði tækninýjunga
og fyrirtæki sem hafa verið stofnuð
á grundvelli rannsókna viðkom-
andi háskóla eru ekki þátttakend-
ur í vísindagörðum þeirra."
Ian Dalton dregur þessa skoðun
Jones mjög í efa. Dalton starfar
við Herriot-Watt háskólann og er
forseti Samtaka vísindagarða.
Herriot-Watt háskólinn varð fyrst-
ur til að stofna vísindagarð á
áttunda áratugnum.
Dalton segir að einn þriðji hluti
fyrirtækja sem standa að vísinda-
görðum séu í eigu háskólanna og
hafi útbreiðslu tækniþekkingar að
markmiði; einn þriðji hluti fyrir-
tækjanna eru bein afsprengi tækni-
nýjunga sem einstakir starfsmenn
háskólanna hafa stofnað og einn
þriðji hluti fyrirtækjanna eru utan-
aðkomandi fyrirtæki sem hafa ekki
áður haft nein tengsl við háskól-
ana. Currie segir að hver vísinda-
garður hafi leitt til að minnsta
kosti eins tæknifyrirtækis.
Dalton segir að rangt sé að mcta
vísindagarðana á grundvelli mögu-
leika þeirra til að skapa atvinnu til
skamms tíma, árangur af starfi
þeirra felst í tækniþróun sem þeir
stuðla að og skapar atvinnu þegar
til langs tíma er litið.
New Scicntist.
Breskur biskup:
Lögregluríki
á Bretlandi
I.ondon-Rcutcr
■ Breskur biskup segir að
Bretland sé að breytast í
lögregluríki undir stjórn
Margrétar Thatchers.
Dr. David Jankins biskup
af Durham, sem er þekktur
fyrir ákveðnar skoðanir sín-
ar á þjóðmálum, sagði í
viðtali við breska sjónvarps-
stöð nú um helgina, að útlit-
ið fyrir framtíðina sé slæmt
nema Thatcher breyti þeirri
stefnu sinni að skipta þjóðfé-
laginu upp í aðstæðar fylk-
ingar.
Biskupinn sagði að það
væri útlit fyrir eflingu lög-
regluríkis þar sem lítill hóp-
ur auðmanna væri verndao-
ur fyrir stöðugt stækkandi
hópi fátækra og eignalausra.
Eftir viðtalið gagnrýndu
margir biskupinn fyrir að
láta í Ijós svo ákveðnar
skoðanir á stjórnmálum. En
Robert Runcie erkibiskup
af Kantaraborg varði David
Jenkins biskup og sagði að
kirkjunnar menn hefðu rétt
til að ræða um stjórnmál.
Það væri skylda þeirra að
ræðaöllmannlegvandamál.
Snjókoma
íRóm
Róm-Rcutcr
■ Snjóstormur og þrumu-
veður gckk yfir Ítalíu nú á
sunnudaginn aðeins fjórum
dögum áður en ítalir lýsa
opinberlega yfir vorkom-
unni.
Þetta er í annað skiptið á
þessu ári sem Rómverjar
hafa lent í snjóbyl um miðj-
an dag en slíkt er annars
mjög sjaldgæft í þessari
suðrænu borg.
Bandaríkjamenn komnir
í hóp skuldaþjóðanna
Washinpton-Rciitcr ® ® ™
Washington-Rcutcr
■ Viðskiptaráðherra Banda-
ríkjanna, Malcolm Baldríge,
sagði í gær að Bandaríkjamenn
skulduðu nú líklega meira en
þeir ættu inni hjá öðrum þjóð-
um og þeir hefðu tapað sterkri
stöðu sinni sem alþjóðlegur
fjárfestingaraðili sem þeir hefðu
byggt upp eftir heimsstyrjöldina
síðari.
Ráðherran skýrði frá þessu
um leið og hann sagði frá því að
viðskiptahalli Bandaríkjanna
hefði numið 101,6 milljörðum
dollara á seinasta ári sem er
meiri halli en nokkurn tímann
áður í sögu Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn skulduðu
erlendum lánardrottnum 3,7
milljörðum dollara meira en
þeir áttu inni hjá útlendingum
árið 1914 en síðan hafa þeir
ávallt átt meira inni hjá útlend-
ingum en þeir skulduðu.
Engill dauðans hátt metinn:
Milljón mörk
fyrir Mengele
Augsburg-Reuter.
■ Saksóknarinn í Frankfurt hefur
boðið eina milljón vestur-þýskra
marka fyrir upplýsingar sem leiði til
handtöku stríðsglæpamannsins Josefs
Mengele sem varð 74 ára þann 16.
mars.
Mengele er ásakaður fyrir morð á
400.000 föngum í Auschwitz-fanga-
búðum Þjóðverja í Póllandi í seinni
heimsstyrjöldinni. Hann fékk ástríðs-
árunum viðurnefnið engill dauðans
vegna þess hvað hann myrti marga.
Þjáningafullar „læknisfræðirannsókn-
ir“ hans á föngunum voru líka al-
ræmdar.
Áður hafði saksóknaraembættið í
Frankfurt boðið 50.000 mörk fyrir
upplýsingar um Mengele en nú var
þessi upphæð hækkuð upp í eina
milljón marka sem er hæsta upphæð
sem boðin hefur verið fyrir glæpa-
mann í Þýskalandi.
Auglýsingar um verðlaunin og
mynd af Mengele hafa verið birtar.
„Saturno“ leðursettin eftirspurdu fást nú í tveimur
litum. Yerð kr. 67.500.-
HÚSGÖGN OG *
INNRÉTTINGAR oq f\(\
.SUÐURLANDSBRAUT 18 QO OíJ