NT

Ulloq

NT - 30.03.1985, Qupperneq 8

NT - 30.03.1985, Qupperneq 8
 rfiT Laugardagur 30. mars 1985 8 Luli IWIín ■ Samtök Psoriasis- og Exemsjúklinga Aðalfundur SPOEX 1985 verður haldinn mið- vikudaginn 10. apríl n.k. að Hótel Esju kl. 20.30.. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Umræður um skipulag SPOEX-deilda 3. Lanzarote-ferðir. 4. Önnur mál. Stjórnin Bændur athugið! Tímanleg pöntun tryggir hagstæðasta verðið. Traust varahlutaþjónusta. Leitið upplýsinga í símum 91-83065 og 91-667366. ECKART vakumdælur. 9500 1/mín. með smurdælu. Hagstætt verð. ORKUTÆKNI H HYRJARHÖFÐA 3, 110 REYKJAVÍK SÍMl; 91-83065. Gullfalleg ítölsk sófasett Margar gerðir nýkomnar f WmS$lfr’*u 1 ; .... - '... J r..~ - 3. 1 1 ¥ ■ ' *! pmt t: ' i Ótrúlega lágt verð: Frá kr. 44.850.- í tauáklæði og frá kr. 67.500.- í leðuráklæði HÚSGÖGN OG INMRÉTTINGAR SUÐURLANDSBRAUT18 68 69 00 Hannes Hannesson bóndi á Kringlu í Grímsnesi Fæddur 27.08 1913 Dáinn 14.12.1984 Hannes á Kringlu var fæddur að Stóra- Hálsi í Grafningi 27. ágúst 1913. Hann var þriðji elsti í röðinni af 10 systkinum og dvaldi heima þar til hann réðist sem vetrarmaður að Völlum í Ölfusi árið 1929, og var síðan kaupamaður á Vill- ingavatni og í Króki í Grafningi. I nóvember 1930 kemur Hannes fyrst í Grímsnesið og gerist vetrarmaður í Sól- heimum hjá Sesselju H. Sigmundsdóttur, sem þá var að reisa barnaheimili þar. Það hefur verið mikið happ fyrir barnaheimil- ið og Sesselju að fá svo duglegan og verklaginn mann til þess að standa þar fyrir búi og annast aðdrætti til búsins, þar sem vegur var enginn í næsta nágrenni, mýrarsund og torleiði út að Borg og margs þarf búið við eins og sagt var forðum. Næstu 10 árin er Hannes við þessi störf í Sólheimum eða þar til hann kaupir jörðina Kringlu í Grímsnesi árið 1940 og hefur þar búskap. Þarna gerist það sama og svo víða í sveitum landsins á þessum árum, bústofn eykst, túnið stækkar og nýjar byggingar rísa, bóndinn á langan vinnudag og allt færist í betra horf. Hannes kvæntist Þórkötlu Hólmgeirs- dóttur frá Þórustöðum í Mosvallahreppi í V-ísafjarðarsýslu, ágætri konu og eign- uðust þau eina dóttur, Sigríði, sem nú hefur tekið við búi ásamt manni sínum Sigurði H. Haraldssyni. Þaueiga5börn. Þórkatla lést árið 1977. Um 1950 fer Hannes að gefa sig að félagsmálum hér í sveit og starfaði hann lengi í stjórn Búnaðarfélagi Grímsnes- hrepps og sat í hreppsnefnd til 1982. Hann naut trausts sveitunga sinna enda óvenju glöggur og réttsýnn maður og einstaklega hjálpfús og handtakagóður hvar sem þörf var fyrir vinnufúsar hendur. Hannes var deildarstjóri Sláturfélags Suðurlands í Grímsneshreppi á annan áratug og fjallkóngur í eftirleitum frá 1952. Auk þess að vera réttarstjóri í Hólaréttum hin síðari ár. Ég hef átt því láni að fagna að komast með Hannesi í eftirleitir s.l. 15 ár. Úr þessum ferðum er rnargs að minnast en verður ekki talið hér, þó vil ég nefna að oft hugðum við óbreyttir snralar að kóngurinn okkar hefði innbyggðan radar því allt sem til þarf til þess að vera góður smali sameinaðist í Hannesi, ratvísi, fyrirhyggja og ráðdeild, auk þess að þekkja flest fjármörk í nálægum sveitum. Úr þessum ferðum okkar verður niinn- isstætt sambandið á milli Lubba, Glóa og Hannesar, og ekki efa ég að handan við móðuna miklu hafa þeir hist og tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Við Gríntsnesingar höfum misst góðan bónda og eftirminnilegan persónuleika. 1 Samband afans á Kringlu við barnabörnin var afar náið og elskulegt og hafa þau misst mikið. En við biðjum þann sem öllu ræður að blessa þau og fjölskylduna alla. Blessuð veri minning Hannesar á Kringlu. Böðvar Pálsson •j' I Nú er hann Hannes okkar á Kringlu jdáinn, hann dó nokkrum dögum fyrir jól, ! eftir stutta legu á sjúkrahúsi. Hann gekk | ekki heill til skógar síðustu árin. Hannes var fæddur að Stór-Hálsi í Grafningi og fluttist til okkar í Grímsnes- I ið árið 1930, þá fyrst sem vinnumaður til i ------------------------ ‘ Sesselju Sigmundsdóttur sem var þá ný- byrjuð á uppbyggingu á barnaheimili Sólheima og það talaði hún um að hefði verið sér mikill styrkur í byrjunarörðug- leikunum, sá hann þar um búskap og aðdrætti. Búskapur var hans áhuga og æfistarf, Hannes gerðist bóndi að Kringlu sem er næsti bær við Sólheima, og var þar áfram mikill og góður vinskapur á milli heinril- anna á meðan Sesselja lifði. Hannes giftist árið 1949 Þórkötlu Hólmgeirsdóttur frá Þórustöðum í Ön- undarfirði, hún dó árið 1977. Og var þeirra hjónaband til fyrirmyndar þau eignuðust eina dóttur Sigríði Margréti, er hún gift Sigurði Haraldssyni úr Reykja- vík. Þau hafa stofnað heimili á Kringlu og eiga 5 börn. Það er einmitt samband þessara barna og afans sem verða mér alltaf minnisstæð, var hann oft með þau á hnakknefinu eða hann sat með þau í fanginu. Það var hans mikla gæfa að Sigga og Siggi settust að á Kringlu svo hann gat notið samvista við þau. Því Hannes var mjög barngóður,átti líka gott með að hæna að sér börnin á hinum bæjunum. Við sem eftir lifum hér í sveitinni finnum til mikils tómleika, því þar fór mikill persónuleiki og góður nágranni. Það var eins og hann fyndi það á sér þegar hann þurfti að gera greiða og lét hann alltaf líta þannig út að hann hefði ekkert fyrir því. Þetta var honum svo eiginlegt að vera alltaf við hendina. Eitt dæmi gæti ég nefnt, hann var beðinn um að lána rakstrarvélina sína hann var sjálfur ekki búinn að raka saman sinn flekk nefndi það ekki en rakaði hann saman með hrífu. Aðra sögu sagði mér stúlka sem var á ferð á milli Sólheima og Kringlu, skall þá á snjómugga þetta var áður en vegur og sími kom þar á milli bæja. Hannes hafði verið að gefa á beitarhús sem stóðu í annarri átt datt honum þá það sanna í hug að hún hefði villst af leið, og fór að gá að stúlkunni sem var orðin villt, sagði hún mér að hann ætti í sér lífið. Hann átti líka lífið í margri kindinni. Hannes var búinn að smala mikið um dagana bæði fyrir sjálfan sig og aðra var réttarstjóri og fjallkóngur um langt tímabil og leysti þau störf með mikilli prýði því hann var bæði kappsfullur og úthaldsgóður. Klukkan var ekki alltaf margt þegar upp var staðið ef hann spáði vel, hann var betri en nokkur veður- fræðingur, því ef Hannes sló nótt og dag þá var öruggt að hinir gátu byrjað líka. Það var eins og Hannes mætti vera hreint að öllu ef krakkarnir eða við konurnar fórum í reiðtúr þá var hann alltaf til í að vera með. Ekki gerði Hannes víðreist á yngri árum. en síðan að bændur fóru að fara í bændaferðir á vegum bændasamtakanna, fór hann að fara líka og núna í sumar fór hann til fjögurra landa með félagi aldraða og naut hann vel þeirra ferðar. Hannes tók þátt í ýmsum félagsmálum og talaði oft á almennum bændafundum og hafði lag á að láta fundarmenn hlusta. Hann var þriðji elstur af tíu systkinum auk einnar hálfsystur. Samband þessara systkina var alveg sérstaklega gott, ef einn bróðirinn þurfti að reisa hús eða koma öðru í verk voru þeir þá allir rnættir til hjálpar. Eru þrír af bræðrum hans farnir á undan honum. Ég vil senda systkinum hans og fjölskyldunni á Kringlu innilegar samúðarkveðjur frá okkur öllum á Stærri-Bæ. Halldóra Jónsdóttir Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélritaðar.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.