NT - 02.04.1985, Side 1
lagaboð
■ Þessi mynd var tekin af
mótmælafundi fyrir framan
danska þinghúsið í gær en
100.000 manns tóku þátt í
honum. Hluti mótmælend-
anna réðst til inngöngu í /
þinghúsið og reyndi að leggja
það undir sig. Verkamenn
víðsvegar um Danmörku
hafa nú hafið skæruverkföli í
trássi við lög og verkalýðsfor-
ystuna og margir hvetja til
ólöglegs allsherjarverkfalls. ,
Sjá nánar um verkföll /
og mótmælaaðgerðir í /
Danmörku bls.21 /
Verður ekkert úr einvígi Margeirs og Shvidlers?
Deilt um mótsstaðinn
' &
vegna ferðakostnaðar
■ Svo gæti farið að ekkert
verði úr einvígi Margeirs Pét-
urssonar og ísraelsmannsins
Shvidlers um réttinn til að tefla
• á millisvæðamóti. Finninn
Helme sem er forseti Evrópu-
sambands FIDE, situr fast við
sinn keip og ætlar einvíginu að
fara fram í ísrael. Hann hefur
hins vegar skrifað til Skáksam-
bands Norðurlandanna bréf og
beðið um að þau kosti ferð
Margeirs þangað sameiginlega
að einhverju leyti. Þorsteinn
Þorsteinsson forseti Skáksam-
bands íslands sagði í gærkvöldi
að hann teldi ólfldegt að
norrænu skáksamböndin kærðu
sig um að leggja út fé í ferða-
kostnað íslendinga.
jafnt á milli íslenska skáksam-
bandsins og þess ísraelska.
Þessu hefur Helme hafnað. Þor-
steinn Þorsteinsson ræddi hins
vegar í gærkvöldi við aðalrítara
FIDE í Luzern í Sviss og hefði
sá ætlað að setja sig í samband
við Helme strax í dag og reyna
að finna lausn á málinu. Milli-
svæðamótin eiga að hefjast í
apríl og ríður á að botn fáist í
þessa deilu sem fyrst.
Póstur og sími getur keypt Stóra norræna út í ársiok:
Símgjöld til útlanda gætu
Danir
hunsa
Af hálfu Skáksambands fs-
lands hefur verið haldið fast við
það að einvígið verði haldið í
hlutlausu landi og hefur verið
talað um Amsterdam eða
Luxemburg í því sambandi.
Ferðaskostnaður skiptist þá
Handtökur:
Grunur um
fíkniefni
■ Lögreglan í
Reykjavík handtók
seint í gærkvöldi
nokkra einstaklinga
sem grunaðir voru
uni að hafa fíkniefni
undir höndum.
Amar Jensson deildar- !
stjóri hjá fíkniefnalögregl-
unni varðist allra frétta af ;
málinu, þegar NT hafði j
«i samband við hann á tólfta )
tímanum í gærkvöldi, þar i
;| sem yfirheyrslur voru
skatpmt á veg komnar. j
ijí Þegar NT fór í prentun var j
é ekki vitað hvort grunur
1 lögreglunnar hafði verið |
1 staðfestur.
lækkað um 20% á næsta ári
- við afnám tekjuhlutdeildar ritsímafélagsins
Allar líkur eru á að áhrif
Stóra norræna ritsímafélagsins
hverfi að mestu hér á landi í lok
ársins en þá getur íslenska ríkið
keypt hlut félagsins í jarðstöð-
inni Skyggni sem er síðasti ang-
inij af samningi milli félagsins
og ríkisins frá 1960. Að sögn
verkfræðings Pósts og síma lítur
út fyrir að þessari yfirtöku ríkis-
ins fylgi veruleg lækkun á sím-
gjöldum á milli íslands og ann-
arra landa.
Samningur ríkisins og Stóra
norræna, snérist upphaflega um
byggingu og rekstur sæstrengj-
anna Scotice og Icecan en með
í samningnum fylgdi að Stóra
norræna hefði einkarétt á síma-
þjónustu við landið. Þegar
sæstrengirnir reyndust ófull-
nægjandi vegna aukningar sím-
tala og sjónvarpssendinga, og
jarðstöðin var byggð árið 1977,
var endursamið við Stóra norr-
æna á þann veg að félagið
eignaðist hluta í jarðstöðinni. í
samningnum er gert ráð fyrir að
íslenska ríkið geti keypt hlut
Stóra norræna í jarðstöðinni,
en þann hluta sem ekki verður
þegar afskrifaður um áramótin
1985-86. Nýti ríkið sér ekki
forkaupsréttinn mun Stóra
norræna eiga sinn hlut til ársins
1992 þegar ríkið eign'aðist hann
án nokkurra fjárútláta.
Kaupverð eignarhlutans nú í
árslok verður 7,5 milljónir
danskra króna eða 28 milljónir
íslenskra króna.
Gústav Arnar, yfirverkfræð-
ingur Pósts og síma, sagði í
samtali við NT að vegna fjárút-
látanna við kaupin yrði e.t.v.
ekki samstundis sú lækkun á
símgjöldum sem útganga Stóra
norræna og afnám tekjuhlutdeild-
ar þess gæfi tilefni til. En Gústav
sagði að lækkunin gæti orðið á
bilinu 10-20%.
Stóra norræna mun áfram
eiga sæstrengina að fullu, og er
líklegt að strengirnir héðan til
Færeyja og héðan til Grænlands
verði áfram starfræktir til örygg-
is, en að strengurinn til Kanada
verði aflagður.
■ Leigubflar hópuðust saman á Barónsstíg í gær eftir að sendibfll frá Steindóri og leigubfll frá Hreyfli
lentu í árekstri. Eins og sést á myndinni benda hemlaför leigubílsins til að hann hafl bakkað framan á
sendibflinn. NT-mynd: Sverrir
■ Lögreglan í Reykjavík var
alloft kvödd til í gær vegna
árekstra milli leigubfla og sendi-
bfla frá Steindóri og í a.m.k.
tveim tilfellum urðu skemmdir
á bflum.
Það fyrra var á Barónsstíg í
nágrenni Sundhallarinnar en
þar óku saman bifreið frá
Steindóri og leigubifreið frá
Hreyfli en leigubíllinn mun hafa
bakkað framan á sendibílinn.
{ síðara tilvikinu óku saman
leigubíll og fólksbíll sem frarn-
kvæmdastjóri Steindórsstöðvar-
innar ók. Lögreglan var oftar
kvödd út vegna erja bílstjóra en
þar mun ekki hafa verið urn
alvarlega árekstra að ræða.