NT - 02.04.1985, Síða 4
Ný endurhæfingardeild í Sjúkrahúsi ísafjarðar:
Opnun fullbúinnar deildar
stöðvuð vegna einnar hurðar
Sinubruni í
Breiðholti
■ Slökkvilið Reykjavík-
ur var kvatt að Alaska
Breiðholti í gærdag vegna
sinubruna. Eldurinn ógn-
aði viðkvæmum trjágróðri
en slökkviliðið réð niður-
lögum eldsins fljótlega.
Útkallið barst um klukkan
14.
■ ísfirðingar hafa að undanförnu bæði brosað
og verið nokkuð mæddir yflr þeirri vafasömu
frægð að eiga fullbúna sundlaug, sem ekki fæst
opnuð vegna ónögra brunavarna. Telja þeir sig
þar eiga a.m.k. Islandsmet ef ekki meira.
Sundlaugin, sem hér um
ræðir, er hluti af nýrri endur-
hæfingardeild í nýja sjúkrahús-
inu á ísafirði, sem stendur nú
fullbúin með öllum tækjum.
Hugmyndin var að opna hana
um mánaðamótin janúar/febrú-
ar. Endurhæfingardeildin hefur
verið á hálfgerðum hrakhólum
síðustu 2-3 árin þar sem henni
var komið fyrir uppi í rjáfri á
gamla spítalanum. Aðstæður
þar voru óviðunandi og mjög
erfiðar og því eðlilegt að fólk
hlakkaði til að komast á nýja
staðinn í lok janúar.
En þá kom babb í bátinn.
Brunavarnareftirlit, sem kom
til að taka út deildina, harð-
bannaði að hún yrði tekin í
notkun fyrr en búið væri að
koma upp rammgerðri bruna-
varnarhurð í gangi deildarinnar
til-að skilja hana frá lítilli kap-
ellu og nokkrum fleiri stofum
sem liggja að sama gangi. Hurð-
inni var komið fyrir í snarheit-
um og síðan hefur verið beðið
eftir mönnum að „sunnan" til
að taka út þessa mikilvægu
hurð. Frá brunahættusjónar-
miði telja kunnugir að fólk
(starfsfólk og sjúklingar) hljóti
þennan tíma að hafa verið í
stórum meiri hættu á gamla
loftinu. En reglur eru reglur.
Að undanförnu hefur starf-
semi sjúkrahússins á ísafirði
smátt og smátt verið að færast
úr gamla húsinu yfir í það nýja.
Röntgendeildin er llutt og
heilsugæslustöðin að fullu kom-
in í nýja staðinn. Nú er verið að
innrétta lyflækningadeild þar
sem eru um 30 rúm.
Félag einstæðra foreldra:
Hyggst kaupa 9 íbúða hús
fyrir bráðabirgðaþjónustu
- borgin lánar 2 milljónir
■ Borgarráð Reykjavíkur
samþykkti á fundi s.l. þriðju-
dag að veita Félagi einstæðra
foreldra lán að upphæð tvær
milljónir vegna kaupa félags-
ins á nýju húsnæði fyrir neyð-
ar- og bráðabirgðaþjónustu.
Féð er fært á fjárveitingu
vegna leiguíbúða.
Félag einstæðra foreldra
hefur rekið þessa þjónustu í
tæp þrjú ár í húsi sínu í
Skeljanesi 6. Þau ár sem sú
starfsemi hefur verið við lýði
hafa yfir 200 manns búið þar,
foreldrar og börn.
Félág einstæðra foreldra
hefur nú augastað á húsi,
sem gæti hýst 9 fjölskyldur í
senn, í Skeljanesi 6 rúmast
10 fjölskyldur í einu.
r
NT-mynd: Ámi Bjama
■ Frá votheysfundinum. Fyrirlesarinn er Grétar Einarsson sem fjallaði um tækni við votheysgerð.
Bændur á S/V landi funda um vothey:
„Boðar þáttaskil í fram-
þróun votheysverkunar“
- sagði Stefán Jasonarson við setningu f undarins
■ „Ef svo fer fram sem horfir
ætti þessi fundur að boða nokk-
ur þáttaskil í hinni hægfara
framþróun votheysverkunar hér
á Suð-Vesturlandi að loknum
tveimur illræmdustu rigningar-
sumrum í áratugi. Með votheys-
kveðju." Þannig fórust Stefáni
Jasonarsyni orð við setningu
votheysfundar í Bændahöllinni
síðastliðinn föstudag. Þarna var
á ferðinni fræðslu- og umræðu-
fundur um votheysmál sem
Búnaðarfélagið og fleiri stóðu
að en frumkvæðið kom frá Stef-
áni. 8 erindi fræðimanna og
bænda, sem reynslu hafa af
votheysverkun, voru flutt. Að
þeim loknum voru umræður og
stóð fundurinn fram eftir degi.
Meðal framsögumanna var
Bjarkar Snorrason kúabóndi í
Flóanum sem undanfarin ár hef-
ur einungis verkað í vothey.
Hann sagði reynslu sína góða
og heyjaöflun trygga.
AA-samtökin:
Afmælisfundur á föstudaginn langa
■ AA-samtökin halda árlegan
afmælisfund sinn á föstudaginn
langa í Háskólabíói og hefst
hann kl. 21. íslandsdeild sam-
takanna var stofnuð á föstudag-
inn langa árið 1954, og hefur sá
dagur verið hátíðisdagur þeirra
æ síðan, sama upp á hvaða
mánaðardag hann hefur borið.
Ý msir AA-félagar koma fram
á fundinum á föstudag, og einn-
ig koma fram gestir frá Al-Anon
og Al-Ateen samtökunum, sem
eru samtök aðstandenda alkóhó-
lista. Kaffiveitingar verða eftir
fundinn.
AA-samtökin starfa í 156
deildum á íslandi, auk þess sem
starfandi eru 8 íslenskumælandi
deildir á erlendri grundu. í
Reykjavík eru margir fundir
haldnir dag hvern og byrja þeir
fyrstu um kl. 7.30 á morgnana,
en hinir síðustu undir miðnætti.
Þeir sem vilja fá upplýsingar um
fundina og fundarstaði geta snú-
ið sér til skrifstofu samtakanna
að Tjarnargötu 5 í Reykjavík,
sem er opin alla virka daga kl.
13-17. Síminn er 12010. Þá hafa
■ Surtseyjarfélagið hefur
ákveðið að reisa nýtt hús á
eynni Surtsey, vegna þess
hversu lélegt hús félagsins,
sem fyrir er, er orðið. Hinn
nýi staður er fyrirhugaður
ofar á eynni, og verður húsið
sunnar og austar en það
gamla. Staðsetningin mun
vera nálægt borholunni sem
boruð var í eynni.
Að sögn Gunnars Björns
Jónssonar sem situr í stjórn
Surtseyjarfélagsins verða til-
AA-samtökin símaþjónustu í
síma 16373 alla virka daga kl.
boð opnuð í bygginguna rétt
eftir páska, og hafa gögn
þegar verið send til nokkurra
aðila varðandi bygginguna.
Þá sagði Gunnar að ákveðið
hefði verið að húsið yrði um
40 fermetrar.
■ Á myndinni sést gamli
skálinn í Surtsey, en hann
mun vera að hruni kominn. í
hans stað verður reistur nýr
skáli austar og sunnar á
eynni.
17-20.
Surtseyjarfélagið:
Reisir hús í Surtsey
Fréttastofa útvarps:
Gagn-
rýnd
vegna
fréttar
■ Útvarpsráðsfulltrúar
gagnrýndu það á fundi sín-
um á föstudaginn að
fréttastofa útvarpsins
skyldi hafa greint svo ná-
kvæmlega frá hvarfi Ber-
víkurinnar frá Ólafsvík
sama kvöldið og hún fórst.
Engin trygging hefði verið
fyrir að náðst hefði til
aðstandenda og hefðu þeir
getað áttað sig á því af
fréttinni um hvaða bát var
að ræða.
Það var Eiður Guðna-
son fulltrúi Alþýðuflokks-
ins í útvarpsráði sem hóf
umræðurnar um málið.