NT


NT - 15.04.1985, Síða 6

NT - 15.04.1985, Síða 6
Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi Kópavogi: Mánudagur 15. apríl 1985 6 Eyjan á höfuðborgarsvæðinu ■ Um áratugaskeið hefur Kópavogur haft ýmsa sérstöðu meðal sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu og um margt skarað fram úr. Ef til vill var þaö aldurssamsetning íbú- anna, scm haft hefur þessi áhrif en Kópavogur var bær barnanna frá fyrstu tíð. Hér hefur manneskjan setiö í fyrir- rúmi frá upphafi. Menn hafa lagt rækt viö félagslega þjón- ustu allt frá fyrstu árum bæjar- ins, sem aðeins tveggja ára gamall hóf rekstur eigin stræt- isvagna. Árið l%4 var t’yrsta barnaheimilið tekiö í notkun og nú er betur að barnaheimil- um okkar búið en almennt gerist. Skömmu eftir 1970 var tekin upp nýskipan félagsmála, sent var algjört nýntæli á þeirn tíma. Hér hefur verið rekið þróttmikið unglingastarf og vinnuskóli sem stendur undir nafni. Bærinn hefur að veru- legu leyti verið byggöur á fc- lagslcgum grunni t.d. hafa 80% íbúðabygginga á s.l. 10 árum verið byggöar af bygg- ingasamvinnufélögunt. Yntis- legt af þessu hefur orðið öðrum sveitarfélögum til fyrirmyndar. Önnur virðast kappkosta að ná sama marki. Svo dænti sé nefnt þá ketriur borgarstjórinn í Reykjavík varla svo fram í fjölmiðlum að hann geti ekki einhvers sem honunt tekst eins vel eða betur en okkur. Varla er borgarstjórinn í Rcykjavík að bera sig santan við einhverja skussa. Eyjan í íhaldshafinu Nú hefur Sjálfstæðisflokkur- inn meirihluta í öllunt sveitarfé- lögunum á höfuðborgarsvæð- inu nema Kópavogi og hefur aldrei náð því hér. Hefur svo verið að mestu alla þessa ára- tugi. Framsóknarflokkurinn hefur átt drjúgan þátt í þessari stefnumötun, sem að frarhan er lýst. Hann hefur verið i meirihlutasamstarfi öslitið frá 1%2. Fyrst með forverum AI- þýðubandalagsins síðan með Sjálfstæðisflokki og frá 1978 nteð Alþýðubandalagi og Al- ■ Kópavogur hei’ur vcriö bær harnanna frá fyrstu tíö. þýöuflokki. Samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn á sínum tíma breytti engu ,um þessi mannlegu viðhorf bæjarins til íbúanna. Enda var það því aðeins gerlegt að á þeim tíma sátu frjálslyndir sjálfstæðis- menn í bæjarstjórn. Menn eins og Axel Jónsson og Sigurður Helgason. Nú hafa aðrir tekiö við þeirra sætum, menn ann- arrar stefnu, sem er lengst til hægri í stjórnmálum. Kveður nú við annan tón úr þeim flokki í bæjarstjórn. Frjálshyggjan „Ég vil fá aö borga fyrir þá þjónustu sem ég fæ,“ er ntarg- tuggin setning úr ræðum þeirra þetta kjörtímabil einkum þó Ásthildar Pétursdóttur. Félag- ar hennar eru þar svo sem engir eftirbátar í þessari pré- dikuna m.k. ekki þcgar kem- ur að tillögum þeirra um stefnu bæjarins í þessu efni. Fyrir skömrnu var til afgreiðslu fjár- hagsáætlun fyrir árið 1985. Þá fluttu þeir breytingatillögur við fjárhagsáætlun vinstri flokk- anna sem m.a. fela í sér eftir- farandi atriði. Þeir vilja lækka útsvar úr 10,8% í 10,5% en það eru um kr. 6.700.000. Til þess að mæta þcssari tekjulækkun bæjarins vilja þeir lækka útgjöld og auka tekjur m.a. með eftirfar- andi atriðum. Lækkun á fjár- hagsaðstoö og hækkun á endurgreiðslum vegna veittrar fjárhagsaðstoðar kr. 1.480.000. Hækkun greiðslu fyrir heimilishjálp kr. 250.000. Félagsstarf aldraðra - lækkun á rekstri kr. 428.000. Hækkun daggjalda á dagvistarstofnun- um kr. 2.071,000. Nýtt gjald kr. 20 fyrir hverja komu barns á gæsluvöll kr. 1.300.000. Hætta rckstri Kópasels (dag- vistarstofnun) í haust og for- eidrar taki við rekstrinum að öllu leyti ef þeir j)á kæra sig um kr. 1.600.000. A þessum þátt- um einum, sem ég nú hef talið og allir grípa beint ofan í pyngju íbúanna, vilja þeir taka aftur útsvarslækkunina og ríf- lega það. Þetta heitir skattalækkun í þeirra málflutningi en er það ekki. Þetta er aðeins tilflutn- ingur á skattheimtu. Þeir vilja lækka útsvarið á þeim sem komnir eru til manns og hafa efni og ástæður eins og sagt er til þess að bera sinn skerf af sameiginlegum byrðunt samfé- lagsins. Þeim vilja þeir hjálpa til þess að verða stöndugri. Á móti vilja þeir innheimta ríf- lega þessa upphæð af fólkinu sem á börn á dagvistarheimii- unum og notar gæsluvellina, af sjúka fólkinu sem þarf á heim- ilishjálp að haida og af félags- starfi aldraða fólksins og svo minnka aðstoð við þá sem misst hafa fótanna í lífsbarátt- unni og þurfa á aðstoð að halda til þess að ná sér á strik á ný. Ekki er nú stórmannlega að farið. En stefnan er klár. Grímulaus íhaldsstefna nú um stund kölluð frjálshyggja. Stefna, sem miðar að auðsöfn- un fárra á kostnað fjöldans. Þetta er stefna sem gengur í þveröfuga átt við stefnu Frant- sóknarflokksins sem stefnir að því að jafna kjör fólksins í landinu og gefa fjöldanum tækifæii til þess að vera efna- lega sjálfstæður En þetta er það sem hljómar svO' fjálglega frá Ásthildi og félögum hennar að „fá að borga fyrir þá þjónustu sem ég fæ“ og eins og hún bætir svo við „ég vil svo glöð gera þaö." Eins og er nota hún og hennar líkar lítið þessa þjónustu bæjarins, þetta er fólk sem stendur í blóma lífsins búið að koma börnunum af herðum sér og ellin ekki farin að gera vart við sig. Að vera maður Það er hollt fyrir hvern og einn að líta í eigin barmog ígrunda hvenær á lífsleiðinni það er, sem það kemur sér vel að sveitarfélagið létti undir með honum í lífsbaráttunni. Það er enginn vafi á því að það eru þau ár þegar verið er að stofna heimili, börnin að vaxa úr grasi og verið er að koma yfir sig þaki. Og síðar þegar hallar að ævikveldi að létt sé af fólki einsemd með félagsstarfi og heimilishjálp þegar heilsan bilar. Ýrnsa hendir það að verða fyrir áföllunt í lífsbaráttunni og þurfa á aðstoð að halda til þess að ná sér á strik á ný. Þetta hafði ég haldið að væru sannindi sem allir nútímamenn í okkar þjóðfélagi virtu og styddu af ráðurn og dáð vegna þess að þetta er réttlát stefna. Þetta er félagshyggja sent stefnir að ræktun þjóðfélags sjálfstæðra manna í efnalegu tilliti svo að þeir geti gengið í gegnum lífið nteð fullri reisn. Eg skil ekki réttlætismat sjálf- stæðismanna sem með tillögu- flutningi sínum í bæjarstjórn vilja lækkka útsvör á hinurn betur stæðu þegnum þjóðfé- lagsins og bæta svipaðri upp- hæð á þá efnalegu minnimáttar sem síst af öllu geta bætt á sig meiri gjöldum. Þessi stefna sjálfstæðismanna, ef fram- kvæmd yrði. myndi á ör- skömmum tíma breyta Kópa- vogi í bæ þar sent auðurinn er meira metinn en maðurinn. Borgarstjórinn í Reykjavík kem- ur varla svo fram í fjölmiðlum að hann geti ekki einhvers sem honum tekst eins vel eða betur en okkur. Varla er borgarstjór- inn í Reykjavík að bera sig sam- an við einhverja skussa. „Grísir gjalda, gömul svín valda“ ■ Það er ólga meðal bænda nú. Hið hefðbundna félaga- form bændastéttarinnar virðist vera að riðlast og bændur farn- ir að stofna starfsgreinarfélög eftir því hvaða framleiðslu þeir stunda. Undirrótin virðist reyndar vera sú hin sama og hrjáir þjóðfélagið allt. Bændur eins og almennir launþegar skiptast í tvennt eftir afkomu. Annarsvegar eru þeir sem fjárfestu fyrir 1979 meðan lán voru óverðtryggð og hins vegar þeir sem hafa verið að byggja upp á allra síðustu árunt. Þeir sitja í skuldasúpu sem þeir sjá ekki fram úr. í grófum dráttum er þetta þannig að eldri bændur hafa það bærilegt en yngri bændur sjá ekki út úr banka- tilkynningum um síhækkandi lán. Á sama tíma hefur land- búnaðarframleiðslan minnkað, tekjurnar lækkað og vextir hækkað. Þetta er auðvit- að alveg ófært. Þeir sem eiga fjánnagn eða skuldlausar fast- eignir hafa allt sitt á þurru. Hinir eiga ckkert nerna stig- hækkandi skuldir. Skuldir bænda aukast Ingi Tryggvason formaður stéttarsambandsins segir um þetta í viðtali við NT í sl. viku: „Við höfunt ekki neinar ná- kvæmar upplýsingar um stöðu bænda. En skuldir bænda við viðskiptastoínanir þeirra hafa aukist þrátt fyrir að um 700 þeirra hafi á síðasta ári fengið lausaskuldalán. Það lagaði á- standið aðeins í bili en síðan jukust skuldirnar aftur. Og þetta kemur okkur ekki veru- lega á óvart. Framleiðslan hef- ur minnkað, almenn laun í landinu hafa lækkað og laun bænda taka mið af þeim. Vext- ir hafa hækkað þannig að fjármagnskostnaðurinn við búreksturinn í heild er orðinn miklu meiri en reiknað er með í verðlagsgrundvellinum. Yfir- leitt hafa allir sem staðið hafa í fjárfestingum með verð- tryggð lán átt í erfiðleikum. Ofan á þetta bætist svo erfitt tíðarfar undanfarin ár eða frá 1979 og allt til 1983. 1984 var tíðarfar aftur mjög gott en áhrifa þess er ekki ennþá farið að gæta að ráði." Grísir valda, gömul svín valda Þorfinnur Björnsson bóndi á Löngumýri skrifar skemmti- lega grein um vanda bænda í NT í vikunni undir fyrirsögn- inni „Grísir gjalda, gömul svín valdat' Hann er aldeilis ekki sáttur við forystu bændasam- takanna. Hann segir í upphafi greinar sinnar: Nú síðustu mánuði hefur vandi húsbyggjenda sem reist hafa sér hurðarás um öxl, verið mjög til umræðu. Hafa þeir myndað samtök sem orðin eru að mjög öflugum grátkór. Hann gefur landsfrægum bændabarlóm ekkert eftir. Þessi grátkór á samúð mína alla enda eru vandamálin svip- uð og megin þorri bændastétt- arinnar á við að glíma, þar sent vextir og verðbætur æða áfram óheft en launin eru skrúfuð niður. Þó finnst mér bændur standa þarna lakar að vígi. í fyrsta lagi þarf rúmur helmingur bænda að fjár- magna með lánsfé allan sinn rekstur. í öðru lagi ef bændur fara á hausinn er ekki nóg með að þeir missa eigur sínar allar heldur standa þeir líka uppi atvinnulausir. Það er ástæðan fyrir því að fjöldi bænda er enn ekki hættur búskap, þó þeim virðist allar bjargir bannaðar." ...komnir af léttasta skeiði Og Þorfinnur sýnir það að hann er ekki sonur Björns bónda fyrir ekki neitt: „Ein ástæðan fyrir misjafnri afkomu bænda er að þeir sem kosnir eru til trúnaðarstarfa eru flestir af sama sauðahúsi. Það er sveitasiður að kjósa ekki nema efnaða bændur sem eru þá yfirleitt komnir af létt- asta skeiði. Virðist einu gilda þó þetta séu lággáfaðir menn, sem ekki hafa neitt nýtt til málanna að leggja. Það gefur auga leið að þessir menn geta ekki, þó þeir vildu, sett sig í spor frumbýlinga og þeirra sem staðið hafa í framkvænidum síðustu árin. En þeir eiga hins vegar létt með að sjá að t.d. niðurfelling söluskatts á nýjum búvélum kemur þeim sjálfum að miklu gagni. Að fella niður söluskatt og jafnvel tolla af varahlutum hefði hins vegar komið öllum jafnvel, og orðið til að nýta gamlar vélar mun betur. En ein ástæðan fyrir slælegri kjarabaráttu er hve bændur eru pólítískir. Þeim gengurþví ákaflega illa að sameina krafta sína til virkrar kjarabaráttu. Ef menn eru kosnir pólitískt þá aukast líkurnar á að þeir sýni ístöðuleysi og undirlægju- hátt gagnvart sínum flokk." Undir þetta má taka fyrir utan þetta með lággáfurnar að sjálf- sögðu, en tæpast eru aðrir hagsmunafulltrúar mikið há- gáfaðri en forsvarsmenn bænda. En það má hið sama segja um forystumenn bænda og forystumenn í stjórnmála- flokkum, verkalýðshreyfingu. alþingsmenn og ríkisstjórn. Þeir eru allir af þeirri kynslóð sem byggði upp fyrir sparifé gamla fólksins og þegar þeir voru búnir að því þá lokuðu þeir dyrunum á eftir sér, skildu börnin sín eftir með yfirverð- tryggð lán og háa vexti. Þess vegna búa tvær þjóðir í þessu Iandi. Og sjálfsagt kemst skuldugi hluti þjóðarinnar seint til valda. Skuldirnar sjá til þess að hann hefur annað að gera en að taka þátt í félags- ntálum, nema að farið verði að ráðum Þorfinns Björnssonar, en við gefum honum lokaorðin hér í dag; með þeirri viðbót að aðalsmenn finnast nú víðar en

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.