NT - 15.04.1985, Side 14
Mánudagur 15. apríl 1985 14
luaim rw uiairriM a iiia immin aaATim* ivwnif'.Ari imC
Sjónvarp kl. 20.40:
Grettir gerir vinum
sínum lífið leitt
■ Grettir, sá yndislega and-
styggilegi og eigingjarni
köttur, sem heilsar upp á les-
endur NT daglega, skemmtir
sjónvarpsáhorfendum í 25 mín-
útna löngum þætti í kvöld og
hefst útsending kl. 20.40.
Nú fara Grettir, Jón og Odd-
ur í útilegu úti í skógi. Auðvit-
að sætir Grettir færi, þegar Jón
og Oddur fylgjast ekki með
honum, og étur allar vistirnar
upp til agna. Pað er svo sem
ekki í fyrsta skipti! Og auðvit-
■ Grettir er Ijótur, leiðinleg-
ur köttur, sem allir hafa gaman
af!
að verða þeir reiðir við Gretti,
sem sýnir þá skömmustutil-
finningu að láta sig hverfa.
Um kvöldið læðist Grettir
þó heim, rétt í tíma til að
bjarga Jóni og Oddi úr klóm
trítilóðs pardusdýrs, sem hafði
sloppið úr dýragarði. Að því
afreksverki loknu fyrirgefst
Gretti græðgin sem hann sýndi
í útilegunni. Og vafalaust held-
ur hann uppteknum hætti,
enda ólæknandi átvagl, leti-
hlunkur og eigingjarn eftir
því!
Þýðandi er Guðni Kolbeins-
son.
Útvarp kl. 13.30:
Sjónvarp kl. 21.40:
Rás2kl. 16.
Reggí í Nálarauganu
■ í Nálarauganu í dag. kl. 16
á Rás 2 heldur Jónatan Garð-
arsson áfram að skemmta sér
og öðrunt áheyrendum með
því að leika ska- og reggítón-
list.
Skatólist segir Jónatan vera
undanfara reggítónlistarinnar
og eiga upptök sín á Jamaica
eins og reggí. Hún varð vinsæl
úti í heimi á árunum 1961-
1968, en hvarf þá í skuggann
af reggí. Skatónlistin var
svo úti í kuldanum þar til á
árunum 1978-‘79 að hljóm-
sveitin Madness tók hana upp
á arma sína og á árunum
1978-1983 tóku ýmsar breskar
hljómsveitir ástfóstri við hana.
Það má eiginlega tala um að þá
hafi verið endurreisnartímabil
skatónlistar.
Lög I rá heims-
styrjaldar-
árunum síðari
■ Áreiðanlcga verða margir
af aldursflokkinum „á miðjum
aldri", sem sperra eyrun er
þátturinn „Lög frá heimsstyrj-
aldarárunum síðari" verður á
dagskrá í dag kl. 13.30. Það
verða þá endurnýjuð kynni við
margan söngvara og góðar
söngkonur og hljómsveitir,
Við fáum m.a. að heyra
Veru Lynn og Marlene Dietr-
ich syngja vinsæl lög frá þess-
um árum. Vcra Lynn syngur
þarna t.d The Whitc Cliffs of
Dover, sem oft hefur hcyrst í
útvarpinu í gcgnum árin (m.a.
í þáttum hjá Jónasi Jónassyni
útvarpsmanni hér áður fyrr).
Marlene syngur auðvitað „Ich
bin von Kopf bis Fuss auf Licbe'
eingestellt" og fleiri góð lög, -
fengum við að vita hjá Tónlist-
ardeildinni.
Beer Barrel Polka er hér
sungið af kór með hljómsveit.
Það hefur verið þekkt hcr á
landi meö danska textanum.
„Hvor er min Kone" og,
Bertha Willmot syngur „Bless
Them All".
■ Marlene Dietrieh, liin
heimsfræga söngkona, fæddist
í Bcriín 27. des. 1901 - og
heitir reyndar Maria Magdal-
ena von I.osch réttu nafni!
Þáðu
menn
mútur?
■ Mánudagsmynd sjón-
varpsins að þessu sinni er
finnsk sjónvarpsmynd, sem
hlotið hefur nafnið Æ sér gjöf
til gjalda á íslensku, og hefst
sýning hennar kl. 21.40.
í myndinni er lýst mála-
rekstri sem rís út af meintri
mútuþægni háttsettra
embættismanna í sambandi við
kaup á dýrum sjúkrabílum fyr-
ir bæjarfélag eitt. Leikendur
eru ýmist atvinnuleikarar, lög-
menn eða dómarar og leik-
stjóri er Carl Mesterton.
Mánudagur
15. apríl
10.00 Fróttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Forustugr. landsmálabl. (útdr.).
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 „Allt kemur óvart“ Endurtek-
inn samtalsþáttur Steinunnar Sig-
urðardótturvið Málfriði Einarsdótt-
ur frá kvöldinu áður.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.20 Barnagaman Umsjón: Sólveig
Pálsdóttir.
13.30 Lög frá heimstyrjaldarárun-
um síðari.
14.00 „Eldraunin“ eftir Jón
Björnsson. Helgi Þorláksson les
(15).
14.30 Miðdegistóleikar. a. „Leik-
hússtjórinn", forleikur eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart. St. Martin-
in-the-Field hljómsveitin leikur; Ne-
ville Marriner stjórnar. b. „My
Snowy-Breasted Pearl“, irskt
þjóðlag. RobertTearsyngur. André
Previn leikur á píanó. c. „Pansy
Faces“ eftir William H. Penn. Benj-
amin Luxon syngur. André Previn
leikur á píanó. d. „Once Again"
eftir Arthur Sullivan. Robert Tear
syngur. André Previn leikur á pi-
anó.
14.45 Popphólfið - Sigurður Krist-
insson. (Rúvak).
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar: Píanó-
tónlist.
17.10 Síðdegisútvarp - Sigrún
Björnsdóttir, Sverrir Gauti Diego
og Einar Kristjánsson. - 18.00
Snerting. Umsjón: Gísli og Arnþór
Helgasynir. Tilkyningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Valdimar Gunn-
arsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn Tryggvi
Agnarsson lögmaður talar.
20.00 Lög unga fólksins Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. a. Spjall um þjóð-
fræði Dr. Jón Hnefill Aðalsteins-
son tekur saman og flytur. b. Úr
Ijóðum Hugrúnar Höfundur les.c.
Einsöngvarakvartettinn syngur
við undirieik Ólafs Vignis Al-
bertssonar. d. Rjúpnaveiði Þór-
unn Eiriksdóttir á Kaðalstöðum
segir frá. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.30 Útvarpssagan: „Folda" eftir
Thor Vilhjálmsson Höfundur les
(14)
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 I sannleika sagt. Um Landa-
kotsspítala Umsjón: Önundur
Björnsson.
23.15 íslensk tónlist. Sinfóniuhljóm-
sveit Islands leikur; Páll P. Pálsson
stjórnar. a. „Veislan á Sólhaugum",
leikhústónlist eftir Pál Isólfsson. b.
Lög eftir Emil Thoroddsen úr sjón-
leiknum „Pilti og stúlku".
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Mánudagur
15. apríl
10:00-12:00 Morgunþáttur. Stjórn-
andi: Gunnlaugur Helgason.
14:00-15:00 Út um hvippinn og
hvappinn. Stjórnandi: Inger Anna
Aikman.
15:00-16:00 Sögur af sviðinu Stjórn-
andi: Sigurður Þór Salvarsson.
16:00-17:00 Nálaraugað. Reggitón-
list. Stjórnandi: Jónatan Garðars-
son.
17:00-18:00 Rokkrásin Kynning á
þekktri hljómsveit eða tónlistar-
manni. Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helgason.
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
Mánudagur
15. apríl
19.25 Aftanstund Barnaþáttur með
innlendu og erlendu efni: Tommi
og Jenni, Dæmisögur, Súsí og
Tumi og Marít litla (Nordvision -
Norska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Grettir fer i útilegu Bandarísk
teiknimynd. Kötturinn Grettir,
hundurinn Oddurog Jón, húsbóndi
þeirra fara í söguríkt ferðalag.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
21.05 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
21.40 Æ sér gjöf til gjalda (Muta och
kör) Finnsk sjónvarpsmynd. Leik-
stjóri er Carl Mesterton en leikend-
ur eru ýmist atvinnuleikarar, lög-
menn eða dómarar. Myndin lýsir
málarekstri sem rís út af meintri
mútuþægni háttsettra embættis-
manna í sambandi við kaup á
dýrum sjúkrabílum fyrir bæjarfélag
eitt. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
(Nordvision - Finnska sjónvarpið).
23.15 Umræðurþáttur Páll Magnús-
son stjórnar umræðum um efni
myndarinnar hér á undan og hvort
svipaðir atburðir gætu átt sér stað
hér á landi.
23.45 Fréttir í dagskrárlok.