NT - 15.04.1985, Page 19
Mánudagur 15. apríL 1985 19
IFIHIM 111%
Samúel Örn Erlingsson (ábm.), Pórmundur Bergsson, Gylfi Þorkelsson, Sveinn Agnarsson
Knattspyrna - 6. flokkur:
Tommahamborgaramót
- haldið í Eyjum í sumar afTý ogTomma
■ Týr, Vestmannaeyjum
og Tomma-hamborgarar
ætla að endurtaka Tomma-
hamborgaramótið fyrir 6.
flokk í knattspyrnu, sem
tókst svo vel í fyrrasumar.
Að þessu sinni verður mótið
haldið dagana 19-24. júní og
verður leikið á „mini-
völlum" með sjö manns í
liði. Keppt verður bæði í A
og B flokki.
Þá verður einnig haldið
innanhússmót í knattspyrnu
og ýmislegt fleira verður gert
sér til skemmtunar svo sem
kvöldvökur og skoðunar-
ferðir um Vestmannaeyjar.
Veitt verða verðlaun fyrir
1, 2. og 3. sætið í báðum
flokkum, sem og fyrir prúð-
asta liðið. Markakóngur
mótsins mun fá sérstaka
viðurkenningu og kosnir
verða besti útispilarinn og
markvörðurinn.
Pátttökugjald verður 2500
kr. á mann og er innifalið í
því verði ferðir með Herjólfi
fram og til baka, ein máltíð
á dag, gisting og skoðunar-
ferð.
Vegna mikillar þátttöku í
fyrra hefur fólki verið bent á
að skrá keppendur hið fyrsta
í síma 98-1754. Þátttaka nú
veröur takmörkuð við 500
rnanns og rennur skráningar-
tíminn út 15. apríl, í dag.
■ Pétur Yngvason, HSÞ hefur náð góðu bragði á einum KR-ingi, sem er á handahlaupum á leið í
gÓIfíð. NT-mynd: Róbert.
Sveitaglíma Íslands 1985:
YFIRBURDIR
MNGEYINGA
- unnu KR-inga með 12 vinningum gegn 4 - Einungis tvær sveitir með -
■ Sveit HSÞ sigraðií sveita- Um: Ólafi Hauki Ólafssyni, Bjarnasyni og Marteini Magn-
glímu Islands 1985 eins og Árna Þór Bjarnasyni, Helga ússyni.
undanfarin ár. Sveitaglíman
sem haldin var á laugardaginn
var í íþróttahúsi Melaskóla og
tóku aðeins tvær sveitir þátt,
sveit HSÞ og sveit KR.
Þingeyingarnir sigruðu með
nokkrum yfirburðum, hlutu 12
vinninga gegn 4 vinningum KR-
inga. Sveitirnar voru skipaðar
fjórum keppendum, fyrir utan
varamenn, og bestum árangri
einstaklinga náðu bræðurnir
Pétur og Kristján Yngvasynir,
HSÞ, en þeir hlutu 3Vi vinning
af fjórum mögulegum. Þeir töp-
uðu því engri glímu en gerðu
báðir jafnglími gegn Ólafi
Hauki Ólafssyni. Eyþór Péturs-
son fékk 3 vinninga, tapaði glímu
sinni gegn Arna Þór Bjarnasyni.
Árni Þór fékk flesta vinninga
KR-inga eða IVi.
í sigursveitinni voru þessir:
Pétur Yngvason, Kristján
Yngvason, Eyþór Pétursson og
Hjörtur Þráinsson. Varamaður
HSÞ var Geir Arngrímsson.
Sveit KR var skipuð eftirtöld-
Eyþór Pétursson, HSÞ með bragð í uppsiglingu.
NT-mynd: Róbert.
Skólakeppni Frjálsíþróttasambandsins:
Suðurland sigraði
Ungur kúluvarpari í skólakcppni FRÍ. Kúluvarparinn Helgi Þór Helgason fylgist með.
NT-mynd: Róbert.
■ Skólakeppni Frjálsíþrótta-
sambands íslands var lialdin á
laugardag, en þetta er keppni
milli fræðsluumdæma landsins
og er keppt í tveimur flokkum
hjá báðum kynjum. Keppni
þessi er haldin undir kjörorð-
inu „Bindindi er best" og styrk-
ir Áfengisvarnarráð hana.
í stigakeppninni sigraði
Suðurland, hlaut 105 stig og
var þaö nokkuð öruggur sigur.
f stelpnaflokki náðu Heiöa
Bjarnadóttir, Reykjanesi,
Hugrún Magnúsdóttir, Vest-
urlandi og Helena Víðisdóttir,
Austurlandi. bestum árangri,
hlutu allar 14 stig.
Fanney Sigurðardóttir,
Reykjavík, hlaut 16 stig í
telpnaflokki og varð stigahæst
keppenda þar.
1 flokki stráka hlaut Jósef
Skúlason, Suðurlandi, 15 stig
og Þröstur Ingvarsson,
Norðurlandi vestra, hlaut 16
stig í keppni pilta.
1. Suðurland
2. Austurland
3. Norðurland eystra
4. Norðurland vestra
5. Reykjanes
6. Reykjavik
7. Vesturland
8. Vestfirðir
stig
105
87,5
83
82
77
72
64
35,3