NT - 15.04.1985, Side 24
.
■■ . HBI | I .. I,... : --4 .... .<■ > . '
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskríft og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
—
'
meistarar
- sagði Sigurður Sveinsson í samtali við
v-þýska sjónvarpið - Sigurður skoraði 10 mörk
gegn Kiel og er markahæstur
■ Við verðum heimsmeistarar
í Sviss 1986,“ sagði Sigurður
Sveinsson og glotti er þýskur
sjónvarpsmaður spurði hann
eftir leik Lemgó og Kiel í vestur-
þýsku 1. deildinni í handknatt-
leik, hvort lslendingar ætluðu
sér ekki einhvern tírna að verða
Ólympíu- eða heimsmeistarar.
Sigurður var í miklu stuði í
þeim leik og gerði 10 mörk fyrir
lið sitt Lemgó. Það dugði þó
ekki til því Kiel, undir stjórn
Jóhanns Inga, sigraði 21-17 þótt
svo leikið væri á heimavelli
Lemgó.
Jóhann Ingi lét taka Sigga úr
umferð alian leikinn en það
gekk þó ekki vel. Sigurður skor-
aði þrjú marka sinna úr vítum.
Jafnræði var með liðunum mest
allan leikinn, en þegar u.þ.b.
fjórar mínútur voru eftir seig
Kiel fram úr og tryggði sér
sigurinn.
Sigurður er enn markahæstur
í deildinni með 154 mörk, þar af
70 úr vítum.
Önnur úrslit urðu þessi.
Reinfusche-Hiittenberg....... 28-26
Messenheim-Hofweier.......... 24-19
Handewitt-Dusseldorf......... 22-18
Gummersbach-Schwabing........ 21-14
■ Sigurður Sveinsson er markahæstur 11. deildinni í handknattleik í V-Þýskalandi. Hann lét þýska sjónvarpsmanninn ekki eiga neitt
hjá sér þegar hann spurði Sigurð hvort Islendingar ætluðu sér að verða heimsmeistarar einhvern tíma. NT-mynd: ah.
Handboltinn í V-Þýskalandi:
Essen lagði Grosswallstadt
Þrumufleygar Alfreðs skullu þrisvar í rammanu m - Alfreð lék vel og skoraði 6 mörk.
í Sviss ’86
■ Alfreð Gíslason og félagar í
Essen fóru létt með Grosswall-
stadt í leik liðanna í 1. deild
v -þýska handknattleiksins í
gærkvöldi. Leikurinn fór 26-15
eftir að staðan hafði verið 12-5
í hálfleik. Leikmenn Grosswall-
stadt reyndu hvað þeir gátu í
seinni hálfleik að minnka mun-
inn og tóku Alfreð og Fraatz úr
umferð. En þeir voru ekki lengi
að sjá við því og voru báðir
mjög hreyfanlegir svo sókn Ess-
en lenti aldrei í vandræðum.
Fraatz lék sérlega vel og gerði
12 mörk (3 víti) og Alfreð átti
einnig skínandi leik, skoraði
sex mörk (tvö víti).
Þess má geta að þrjú skot
Alfreðs lentu í rammanum á
marki andstæðinganna.
Bergkamen, lið Atla Hilm-
lagði Brodda í úrslitum í einliðaleik
■ Guðmundur Adolfsson
stöðvaði sigurgöngu Brodda
Kristjánssonar í einliðaleik
karla á íslandsméistaramótinu
í badminton sem haldið var á
Akranesi í gær. Það var hörku-
leikur sem endaði 18-16 og
15-12.
í einliðaleik kvenna varð
einnig hörkuviðureign en
Þórdís Edwald og Kristín
Magnúsdóttir áttust við. Þór-
dís sigraði en úrslitin í hrinun-
um urðu 11-2, 8-11 og 12-10.
í tvíliðaleik karla léku
Broddi Kristjánsson og l’or-
steinn Páll Hængsson til úrslita
gegn Snorra Ingvarssyni og
Árna Hallgrímssyni og sigr-
uðu 18-16 ogt 15-11, hörku-
spennandi hrinur.
í tvíliðaleik kvenna urðu
íslandsmeistarar Þórdís
Edwald og Elísabet Þórðar-
dóttir en þær stöllur sigruðu
Kristínu Magnúsdóttur og
Ingu Kjartansdóttur í úrslita-
leik 15-4 og 15-12.
Kristín Magnúsdóttir náði
að þessu sinni aðeins í einn
íslandsmeistaratitil, einhvern-
tíma hefði það ekki þótt mikið
af hennar hálfu. Hún var fs-
landsmeistari ásamt Brodda
Kristjánssyni í tvenndarieik en
þau sigruðu Þorstein Hængs-
son og Ingu Kjartansdóttur í
úrslitaleik.
í undanúrslitunum í tvennd-
arkeppninni unnu þau Kristín
og Broddi, Guðmund Adolfs-
son og Kristínu Berglindi
Kristjánsdóttur, en þessi hafa
oft eldað grátt silfur á mótum
undanfarin ár. M.a. urðu þau
síðartöldu Reykjavíkurmeist-
arar síðast.
■ Guðmundur Adolfsson (til hægri) lagði Brodda Kristjánsson
að velli í úrslitum í einliðaleik á íslandsmótinu í badminton.
Broddi hafði ekki tapað úrslitaleik á íslandsmóti í mörg ár.
íslandsmótið í badminton á Akranesi:
arssonar vann Dankersen ör-
ugglega með 24 mörkum gegn
19. Góðursigurífalibaráttunni.
Þegar fimm umferðir eru eftir
í deildinni eru lærisveinar Jó-
hanns Inga Gunnarssonar hjá
Kiel efstir með 32 stig, Gum-
mersbach er í öðru sæti með 31
og Essen í þriðja með 30 stig.
Þess má geta að um næstu
helgi verður stórleikur en þá
mætast Essen og Kiel í Kiel.
Kiel á einnig eftir að leika gegn
Gummersbach og það á útivelli.
Alfreð Gíslason hefur nú
framlengt samning sinn við Ess-
en um eitt ár. Hann fær góða
vinnu hjá tölvufyrirtæki fyrri-
part dags og í samtali við NT
sagðist hann vera mjög ánægður
með samninginn.
Evrópukeppnirnar í handknattleik:
■ Fyrri úrslitaleikirnir í Evr-
ópukeppnunum í handknattleik
voru nú um helgina. Mótherjar
FH, Metaloplastika Sabac
lögðu Atletico Madrid að velli í
fyrri leiknum í Evrópukeppni
meistaraliða 19-12. CSKA
Moskva lagði mótherja
Víkings, Barcelona frá Spáni
30-23.
Sjö marka munur spönsku
liðunum í óhag í báðum
keppnum, en allt getur gerst á
Spáni. Spönsku liðin eiga bæði
heimaleiki sína eftir.
Frjálsíþróttir í Bandaríkjunum:
íris best
á stórmóti
■ íris Grönfeldt sigraði í
spjótkasti á háskólamóti í
Knoxville í Tennessee fylki í
Bandaríkjunum. Hún kastaði
spjótinu 55,10 metra, en þetta
er eitt stærsta háskólamótið í
Bandaríkjunum.
Þá kepptu Eggert Bogason
og Sigurður Einarsson á há-
skólamóti í Lafayette í Louisi-
ana. Sigurður sigraði í spjót-
kasti er hann varpaði spjótinu
74,54 metra og Eggert varð
fjórði í kringlukastinu með
55,64 metra.
Þessi þrjú hafa öll náð lág-
marksárangri til keppni á meist-
aramóti háskólanna, sem haldið
verður í Austin í Texas um
mánaðamótin maí-júní.
Bikarkeppni HSÍ:
Stjarnan og FH
í undanúrslit
■ Tveir leikir fóru fram
í 8-liöa únilitum bikar-
keppni HSÍ í íþróttahús-
inu við Digranesskóla í
gærkvöldi.
Fyrst lagði Stjarnan
Þrótt að velli með 36
mörkum gegn 28 eftir að
staðan í hálfleik hafði
verið 14-13 Stjörnunni í
vil. Markahæstir hjá
Stjörnunni voru Sigurjón
Guðmundsson með 8 og
sömuleiöis Hannes Leifs-
son; Magnús Teitsson
skoraði 7. Hjá Þrótti
skoraði Konráð Jónsson
mest eða 10 mörk en Páll
Ólafsson kom næstur
með 7 mörk.
Hinn leikurinn var
viðureign HK og FH og
sigraði FH með 31 marki
gegn 25. Staðan í hálfleik
var 14-13 FH í vil.
Reykjavíkurmótið
Fram
vann
■ Fram vann KR með
þremur mörkum gegn
engu á Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu í gær-
kvöldi á gervigrasinu i
Laugardal.
Það var Ómar Torfa-
son sem gerði tvö marka
Framara en Guðmundur
Steinsson „gullskór"
skoraði það þriðja.