NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 23.04.1985, Qupperneq 5

NT - 23.04.1985, Qupperneq 5
Bjargráð útgerðarinnar: Endurbætur minnka olíueyðslu um 40% -Fjárfestingsemborgarsig á þremur til fjórum árum ■ Stefán Sandholt, bakari, Leif Örbom, framkvæmdastjóri AB Juvel og Lars-Eric Danielsson, markaðsstjóri AB Juvel. NT-mynd: Árni Bjarna. Sænska hveitið vinsælt á Fróni ■ Eftir að skift hefur verið um vél, skrúfu, rafal og bætt inn gír á togaranum Ásbirni RE 50 er olíueyðsla hans yfir 40% minni en var áður, en togarinn er nú nýkominn úr slipp á Akranesi þar sem breytingin var gerð. Talið er að viðgerðin borgi sig upp á þremur til fjórum árum. „Ætli þetta þyki ekki nokkuð góð fjárfesting,- svona miðað við margt annað,“ sagði Vil- hjálmur Ingvarsson fram- kvæmdastjóri hjá ísbirninum sem gerirÁsbjörn út. Sagði Vil- hjálmur að viðgerðin hefði kost- að um 24 milljónir en olíueyðsla togarans hefði áður numið um 15 milljónum króna á ári miðað við núgildandi verðlag og lækk- aði væntanlega um 40% eða meira. Sú tæknilega breyting sem þarna er gerð er að sett er stærri skrúfa og um leið einn gír sem fær hana til að snúast hægar en sú verkan er hagkvæmari hvað snertir orkuþörf. Ráðist var í framkvæmdina á Ásbirni eftir að vél togarans brotnaði á síð- asta ári og er nýja vélin ekki eins orkufrek og sú sem var áður í togaranum. Ásbjörn er 442 lesta og smíðaður 1978 í Noregi. „Ef mönnum verður gert það fjárhagslega kleift að ráðast í þessar framkvæmdir þá held ég að það sé ein sú besta búbót sem hægt er að fá fyrir útgerðina," sagði Vilhjálmur, „enda mjög alvarlegt þegar olíukostnaður getur numið því sama og nær allar kaupgreiðslur og manna- hald.“ ■ „Við erurn mjög ánægðir, sem Norðurlandabúar að ís- lendingar kunni að meta sænska Juvel-hveitið,“ sögðu Leif Ör- bom og Lars-Eric Danielsson frá AB Juvel er þeir voru staddir hér á landi í síðustu viku. „Innflutningur Juvel-hveitis á Islandi hófst árið 1978 og hefur verið í stöðugri sókn síðan. Sala hefur aukist um 107% á síðustu tveimur árunt. í fyrra voru flutt til íslands 4171 tonn af Juvel- hveiti, bæði til bakara og í neysluumbúðum," sögðu Leif og Lars-Eric. AB Juvel hefur í hyggju að bjóða nokkrum bökurum til sín á ári hverju til að kynna þeint notkun á hveitinu. Litli leikklúbburinn 25 ára: Heimatilbúið leik- rit á afmælissýningu ■ Litli leikklúbburinn á ísa- Hanna Lára Gunnarsdóttir, fara flestir með mörg hlutverk. firði verður 25 ára á árinu og Pétur Bjarnason og Páll Ás- í fréttatilkynningu um sýning- afmælissýningin verður á nýju geirsson en leikstjóri er Rúnar una segir að leikritið eigi sér „heimatilbúnu" verki. Nefnist Guðbrandsson sem setti upp enga fyrirmynd úr raunveru- það „Engin mjólk og ekkert „Pið munið hann Jörund" eftir leikanum, og ef einhverjir þyk- sykur“ og fjallar á gamansaman Jónas Árnason hjá Litla leik- ist þekkja persónur eða atburði hátt um hótelrekstur á litlu klúbbnum fyrr í vetur. á sviðinu þá sé það alger til- byggðarlagi. Höfundar eru Leikarar í verkinu er 14 og viljun. Bandalag jafnaðarmanna Kerfisflokkarnir ábyrgir fyrir bílafríðindunum ■ Þingmenn Bandalags jafnaðarmanna hafa sent frá sér ályktun þar sem spurt er hvers vegna fulltrúar kerfisflokkanna hafi þagað um lífeyrissvindlið þegar að þeir fordæmdu bankaráðin sín vegrm bílastyrkj- anna, en ofan á bílafríðindin njóta topparnir margfaldra lífeyrisgreiðslna sem eru úr öllu samræmi við kjör annarra launþega. Spyrja þingmenn Bandalags jafnaðar- manna hverja Alþýðuflokkurinn ætli að reka vegna þessa máls og bent er á að það sé engin tilviljun að þingmenn og flokks- broddar hafi hreiðrað um sig í þessum embættum, því þingmenn hafi notað sér að stöðu sína og trúnað kjósenda til að skapa sér þægilegar aðstæður að hverfa að þegar kjósendur hafna þeim. Því sé til lítils að skella skuldinni á menn úti í bæ, því sökin sé Alþingis. Segir í alyktun þingmanna Bandalags jafnaðarmanna að það sé ekki til neins að skipta um menn í bankaráðunum, þjóðin verði að kalla kerfisflokkana til ábyrgðar og taka af þeim það andstyggilega leikfang sem þeir hafa gert sér úr stjórnkerf- inu. íslandsdagar í Hagkaup - stórátak til sölu á ís- lenskum vörum í maí ■ „íslandsdagar í Hagkaup" er kjörorð stórátaks í sölu á íslenskum vörum sem Hagkaup hefur ákveðið að efna til dagana 7. til 18. maí næst komandi. Félag íslenskra iðnrekenda - sem forráðamenn Hagkaups hafa leitað til um samvinnu í þessu átaki - hafa sérstaklega fagnað framtaki Hagkaups, en þar gefst um 60 félagsmönnum FÍI kostur á að njóta þessa söluátaks. Markaðshlut- deildarkannanir eru sagðar sýna að íslensk- ar vörur eigi nú í vök að verjast í samkeppni við innfluttar og markmiðið með „íslands- dögum í Hagkaup" er að snúa þeirri þróun við, að því er segir í frétt frá Hagkaup. Þær tvær vikur sem söluátakið nær yfir mun Hagkaup standa fyrir ýmsum uppá- komum í öllum 5 verslunum fyrirtækisins í Reykjavík, Njarðvík, og á Akureyri. Þar má nefna tískusýningar, vörukynningar og vörusýningar sem verða í samvinnu við íslenska framleiðendur. Allar íslensku vöru- rnar verða merktar á sérstakan hátt og allir starfsmenn Hagkaups, um 500 að tölu, munu á einn eða annan hátt taka þátt í kynningarstarfinu og aðstoða viðskiptavini. Sumir hafa gleymst — og gleymast enn — þegar verið er að hanna byggingar. Það em þeir fötluðu. Samt em þeir allt að því tíundi hluti þjóðarinnar. Öll þekkjum við afleiðingar slysa, sjúkdóma og elli. Og ættum því að vera tilbúin að leggja eitthvað af mörkum til þess að allir geti komist leiðar sinnar. Margar opinberar byggingar, sem metnar hafa verið með tilliti til þarfa fatlaðra, hafa fengið 15-20 stig af 100 mögulegum. ráða verslunum, samkomuhúsum, þjónustu- miðstöðvum og fjölbýlishúsum. Það er hægt að leggja sitt af mörkum. En það verður að láta í sér heyra við þá sem ráða íbúi í fjölbýlishúsi getur t.d. gert sitt til að láta hjá ríki og bæ. Láta í sér heyra við þá sem merkja bílastæði fyrir fatlaða nálægt inngangi. Útilokum ekki suma og jafnvel okkur sjálf síðar meir! Vfljiþinn skiptir líka máli SAMSTARFSNEFND UM FERLIMÁL FATLAÐRA

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.